Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 19
Kynningarblað - Gler og gluggalausnir 3Vikublað 30.–31. mars 2016
Glersýn: Betra verð og betri
þjónusta á eigin körfubílum
B
rátt fer í hönd sá
árstími þegar mest er
að gera í gluggaþvotti
en aðalvertíðin í þeim
bransa er frá miðjum
apríl og fram í júlí, þó að slík
verkefni hafi jafnast nokkuð
út yfir árið frá því sem áður
var. Mikilvægt er fyrir markað
inn að geta leitað til aðila sem
anna eftirspurn og hafa tækja
búnað til að taka að sér stór
og smá verkefni. Glersýn sf. er
klárlega slíkur aðili en fyrir
tækið á tvo öfluga körfubíla.
„Með því að eiga okkar eigin
körfubíla getum við boðið betra
verð auk þess að anna alltaf
eftir spurninni,“ segir Ingvi
Reynir Berndsen hjá Glersýn.
Annar körfubílanna sem fyrir
tækið á er stærsti körfubíll
landsins, með 35 metra bómu, og
dugar hann í flestöll verkefni sem
til staðar eru á þessum markaði.
Hinn körfubíllinn, með 22
metra bómu, er nýuppgerður á
glussakerfi, þannig að hann not
ast lítið við rafmagn og er því afar
fljótvirkur og einfaldur í notkun.
Glersýn sf. er rótgróið fyrir
tæki sem býður upp á fjölbreytta
hreingerningarþjónustu þó að
gluggahreinsun hafi verið aðals
merki fyrirtækisins í gegnum árin
þar sem það leggur mikla áherslu
á vönduð vinnubrögð, að sögn
Ingva Reynis Berndsen.
„Fyrirtækið var stofnað árið
2002 en byggir á gömlum grunni
þar sem stofnandi þess, Ingvar
Berndsen, rak það á eigin kenni
tölu frá árinu 1989. Starfsemin
hefur vaxið mikið síðan árið 2000
eftir að öll háhýsin voru byggð á
höfuðborgarsvæðinu og starfs
menn okkar búa yfir mikilli
reynslu. Við sérhæfum okkur í
gluggaþvotti og erum með marg
vísleg fyrirtæki í viðskiptum hjá
okkur; verslanir,
smærra skrifstofuhúsnæði og há
hýsi auk heimila,“ segir Ingvi.
Eins og áður segir býður Gler
sýn upp á fjölbreitta hreingern
ingaþjónustu sem felur í sér m.a.
iðnaðarþrif, gólfbónun, teppa
hreinsun og almenna ræstingar
þjónustu.
Ingvi segir það algengan
misskilning að Glersýn
þjónusti einungis stór fyrir
tæki.
„Glersýn sér um glugga
þvott fyrir allar stærðir húsa,
allt frá hæstu blokkum niður í
staka eldhúsglugga. Við erum
með mörg heimili í áskrift og
nær öll fyrirtæki sem skipta
við okkur eru í áskrift enda
felast mikil þægindi í því fyr
irkomulagi. Lítil fyrirtæki fá
okkur í heimsókn vikulega
eða á tveggja vikna fresti en
stærri fyrirtækin, sem eru
í tveggja til þriggja hæða
húsum, fá okkur gjarnan
mánaðar lega. Við
þvoum glugga í há
hýsum hins vegar
tvisvar til fjórum
sinum á ári,“ segir
Ingvar
Flestir við
skiptavinir Gler
sýnar eru á höfuð
borgarsvæðinu en
starfsmenn þess
fara þó reglulega í
nálæg bæjarfélög:
„Við höfum
undanfarin ár
einnig þjónustað
heimili og fyrir
tæki á Snæfellsnesi,
Akranesi, í Borgar
nesi, á Selfossi og í
Hveragerði og fyrir
tæki á Suðurnesj
um.“
Nánari upplýsingar um Glersýn
og þjónustu fyrirtækisins má fá á
heimasíðu og Facebooksíðu fyrir
tækisins. n