Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Síða 26
18 Sport Vikublað 30.–31. mars 2016 „Snýst allt um Ríó“ n Maraþonhlauparinn Kári Steinn Karlsson stefnir á ólympíulágmark í Dusseldorf n Kominn á síðasta séns Þ etta er hálfsúrt en maður lætur sig hafa klakann og myrkrið,“ segir maraþon­ hlauparinn Kári Steinn Karlsson í samtali við DV um hvernig það er að æfa langhlaup við þær aðstæður sem verið hafa á höfuð borgarsvæðinu í vetur. Kári Steinn hefur verið fremstur íslenskra langhlaupara um árabil. Undan­ farin misseri hefur hann unnið að því að ná lágmarki fyrir ólympíuleik­ anna í Ríó í Brasilíu, sem fram fara í ágúst. Það hefur ekki gengið áfalla­ laust fyrir sig. Framan af árinu í fyrra var hann í góðum gír; setti Íslands­ met í hálfu maraþoni og stefndi að því að ná ólympíulágmarki síðast­ liðið vor í Hamborg í Þýskalandi. Síðan seig á ógæfuhliðina. „Síðasta sumar reyndist mér erfitt. Ég þori ekki alveg að fullyrða um hvað gerð­ ist en ég var þreyttur, orkulítill og mig svimaði. Hugsanlega var það tengt ofálagi og ofþjálfun,“ segir Kári sem bæði æfði mikið og vann fulla vinnu. Hann rifjar upp að honum hafi ekki liðið sem best fyrir hlaupið í Hamborg. „Í hlaupinu sjálfu lenti ég svo alveg á vegg. Ég staulaðist í mark.“ Honum gekk illa að jafna sig eftir hlaupið og var ekki sjálfum sér líkur. Var nokkra mánuði að jafna sig Hann segist hafa gert þau mistök að ætla að bæta fyrir ófarirnar í Berlínarmaraþoninu um haustið. „Ég ætlaði að komast strax í stand og mátti ekkert vera að því að hlusta á líkamann. Ég æfði bara ofan í þreyt­ una og var í kapphlaupi við tímann allt sumarið.“ Rétt fyrir maraþonið varð honum ljóst að hann gæti ekki hlaupið. Hann hætti við þátttöku og hvíldi í mánuð, eitthvað sem hann að eigin sögn hefði átt að gera fyrr. „Það tók fleiri mánuði að ná alvöru æfingum aftur. Það var ekki fyrr en í desember eða janúar sem þetta var orðið eðlilegt og ég er loksins kom­ inn á gott ról.“ Telur sig eiga töluvert inni Kári tók þátt í HM í hálfmaraþoni um páskahelgina og náði þar ágæt­ um tíma þrátt fyrir rok og rigningu. Hann stefnir að því að ná ólympíu­ lágmarki í Dusseldorf þann 24. apríl. Til þess þarf hann að hlaupa á undir tveimur klukkustundum og 19 mínútum. „Það snýst allt um Ríó og þetta hlaup um helgina er liður í þeim undirbúningi.“ Kári keppti á síðustu Ólympíuleikum og hljóp þá á 2:18:47 sekúndum, í miklum hita – auk þess sem hann hljóp hluta leiðarinnar með stein í öðrum skón­ um. Kári Steinn hefur best hlaupið maraþon á 2:17:12 en telur sig geta bætt sig um tvær til þrjár mínútur, í sínu allra besta formi. Í slíku hlaupi þurfi hins vegar allt að ganga upp. „Þetta er spurning um að komast á startlínuna í sínu allra besta formi.“ Gott að æfa á Íslandi – á sumrin Kári viðurkennir að aðstæður til langhlaupa hafi ekki verið góðar á Íslandi í vetur. Hann fór í æfinga­ búðir á Tenerife fyrr í vetur en hefur annars æft heima. Hann segir að færðin hafi verið erfið á köflum í vetur og þá hafi hann tekið „gæða­ æfingar“ á hlaupabretti en að nú sé ástandið orðið betra. Aðstæð­ ur til langhlaupa séu mjög góðar á höfuðborgarsvæðinu að sumri til. „Það eru frábærir stígar í Heiðmörk og víða í Reykjavík. Á sumrin er Ís­ land heimsklassaæfingasvæði fyrir langhlaup.“ Þess á milli noti hann hlaupabretti og Laugardalshöllina. Kári Steinn segist vera kominn á síðasta séns þegar kemur að því að ná ólympíulágmarki. Markmiðið hafi verið að ná því í Hamborg í fyrra og svo Berlín, en það hafi farið for­ görðum. „Það er plan C að ná þessu í Dusseldorf núna í apríl. Ef það gengur ekki þá verður þetta þungur róður – þá á ég bara einn séns eftir.“ Skýringin er sú að til að ná góðum ár­ angri í Ríó þurfi hann að vera búinn að ná tveggja til þriggja mánaða uppbyggingu. Hann gæti átt eina „örvæntingarfulla“ tilraun eftir, náist markmiðið ekki í Dusseldorf. „En það væri ekki kjörundirbúningur.“ Lítið um styrktaraðila Kári verður þrítugur í maí en að hans sögn toppa hlauparar um þrítugs­ aldurinn, þó að menn geti náð góð­ um árangri einhver ár í viðbót eft­ ir það. Hann kostar æfingar sínar og „Þetta er spurning um að komast á startlínuna í sínu allra besta formi. Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Reynir í Dusseldorf Kári Steinn Karlsson er kominn á fulla ferð eftir erfitt ár í fyrra. Hann freistar þess að ná ólympíulágmarki síðar í mánuðinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.