Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 34
Vikublað 30.–31. mars 2016
asus.dv.is / Sími 512 7000
Fáðu
áskrift
að DV
og Asus
fartölvu
Kláraðu
dæmið
núna!
*Um er að ræða prent- og vefáskrift
að DV á 3.190 kr/mán. Skuldbinding
til 36 mánaða, greitt með kredikorti.
26 Menning Sjónvarp
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið
Engar minningar
RÚV sýnir áhrifamikla mynd um alzheimer
R
ÚV sýnir á morgun, mið-
vikudag, heimildamynd um
alzheimer, sjúkdóm sem við
óttumst mörg að fá og viljum
gefa mikið til að ekki hremmi
okkur, jafn skelfilegur og hann er.
Páll Magnússon og Jón Gústafsson
eru höfundar myndarinnar og Páll er
þar í rannsóknarhlutverki, fer á vett-
vang og tekur viðtöl.
Þar sem sú sem þetta skrifar hefur
séð myndina þá getur hún mælt með
henni. Myndin er bæði fróðleg og
áhrifamikil. Það er kúnst að koma
upplýsingum sem snúast um heila-
starfsemi og tölur til skila þannig að
eftir sé tekið, en það tekst þarna með
grafík sem er afar skemmtilega sett
fram.
Mynd sem fjallar um alzheimer
hlýtur að fjalla um manneskjur og
grimm örlög. Þarna er rætt stuttlega
við konu sem 48 ára gömul var
greind með alzheimer. Skyndilega
brestur hún í svo sáran grát að áhorf-
andinn finnur til. Þetta er sláandi
atriði. En þarna eru líka gleðilegar
stundir eins og viðtal við elsta Ís-
lendinginn, 107 ára gamlan mann
frá Stykkishólmi. Hann er ansi hress
miðað við aldur og minnisgóður.
Hann er einn af þeim heppnu. Enn
einn viðmælandi Páls er sjónvarps-
konan Sally Magnus son sem skrif-
aði merkilega bók um móður sína
sem varð alzheimer að bráð. Við-
talið er skemmtilegt og hressandi,
þrátt fyrir drungalegt efni því Sally
er einstaklega lífsglöð og sjarmer-
andi kona. Hún hefur mikla trú á
mætti tónlistar til að auka lífsgæði
alzheimers sjúklinga. Í myndinni sjá-
um við alzheimerssjúklinga og að-
standendur þeirra syngja saman og
þá er ekki annað hægt en að trúa á
sameiningartöfra tónlistarinnar.
Í þættinum fer Páll Magnússon
í minnispróf. Það er framkvæmt
þannig að áhorfandinn er í sömu
sporum og Páll og getur varla ann-
að en tekið prófið á sjálfum sér.
Þeirri sem þetta skrifar fannst sagan
sem Páll átti að leggja á minnið
ekki nægilega áhugaverð, saga með
sprungnu afturdekki og sölumanni
er ekki eitthvað sem maður nennir
að leggja á minnið. Þannig fyrirgefst
manni sennilega fyrir að hafa ekki
náð sama árangri í prófinu og Páll.
Ef þetta hefði verið rithöfundur sem
hefði farið á Borgarbókasafnið til að
fá lánaða innbundna skáldsögu eft-
ir Hemingway sem ekki hefði verið
til og í staðinn tekið skáldsögu eftir
Camus þá hefði maður engu gleymt.
Myndin endar á umfjöllun um
leit vísindamanna að lækningu við
alzheimer. Í þeirri leit mega menn
ekki gefa eftir. Það er dapurlegt hlut-
skipti að glata minningum og geta
ekki fundið hugsunum sínum orð. n
„Myndin er bæði
fróðleg og
áhrifamikil.
Páll Magnússon Fjallar um alzheimer í
áhrifamikilli heimildamynd.
Sally Magnusson
Hefur trú á því að tón-
list geti aukið lífsgæði
alzheimer sjúklinga.