Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Page 12
Helgarblað 15.–18. apríl 201612 Fréttir
LÍFRÆN EGG
nesbu.is
Í FYRSTA SINN Á ALMENNUM
NEYTENDAMARKAÐI
NESBÚ
EGG
Að skila eða ekki skila lyklum
B
jarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, krafðist þess í að
minnsta kosti tvígang
opinberlega á síð-
asta kjörtímabili að ríkisstjórn
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna segði af sér. Í fyrra skiptið
mældist stuðningur við ríkisstjórn-
ina 36,1 prósent en í það síðara
28,9 prósent samkvæmt könnun-
um MMR. Samkvæmt nýjustu
könnun MMR frá 6. apríl síðast-
liðnum, eftir að upplýst var um
aflandsfélagaeign ráðherra, mælist
fylgi við ríkisstjórn Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks 26 prósent. Í
minnst þrígang mældist síðasta
ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna með minna fylgi.
Hvor tveggja ríkisstjórn VG og
Samfylkingar og ríkisstjórn Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks gerði
breytingar á ráðherraliði sínu en
virti kröfu stjórnarandstöðu og al-
mennings um að víkja að vettugi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
hefur stigið til hliðar sem forsætis-
ráðherra og hefur núverandi ríkis-
stjórn boðað að gengið verði til
kosninga í haust, nokkrum mánuð-
um fyrr en áætlað var. Engin dag-
setning er þó komin á þær kosn-
ingar enn. Í brimróti síðustu daga
í skugga afhjúpunar Panama-skjal-
anna hefur bæði inn á þingi sem og
í kröftugum mótmælum verið há-
vær krafa um að einstaka ráðherrar
og/eða ríkisstjórnin segi af sér og
boðað verði til kosninga strax. Enn
á eftir að koma í ljós hvort orðið
verði við kröfum mótmælenda en
ljóst er að ýmsir núverandi stjórn-
arþingmenn og ráðherrar höfðu
uppi sambærilegar kröfur á síðasta
kjörtímabili þegar gaf á bátinn hjá
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
og Steingríms J. Sigfússonar.
DV ákvað því að rifja upp nokk-
ur dæmi um fylgisþróun síðustu
tveggja ríkisstjórna út frá lykildag-
setningum þar sem kröfur um af-
sögn og breytingar voru hafðar
uppi sem og hvað var að gerast í
þjóð félaginu á umræddum tíma.
Allar tölur um fylgi eru fengnar úr
gögnum og könnunum MMR. n
n Bjarni sagði vinstristjórnina umboðslausa með 36% fylgi n Krafði Jóhönnu um lyklana
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Hæðir og lægðir
Núverandi stjórnar-
þingmenn og ráðherrar
kröfðu síðustu ríkis-
stjórn afsagnar vegna
hinna ýmsu mála á
síðasta kjörtímabili.
Stuðningur við ríkis-
stjórn Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks
nálgast nú óðfluga
verstu lægðir vinstri-
stjórnarinnar.