Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Qupperneq 24
Helgarblað 15.–18. apríl 2016
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
IVECO Da
ily 4x4
- tilbúinn
í hvað se
m er!
Teppahreinsivörur
frá HOST
Decitex er merki
með allar hugsanlegar
moppur og klúta í þrifin.
UNGER
gluggaþvottavörur, allt
sem þarf í gluggaþvott
Erum einnig með:
Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18,
Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur
Sími: 660 1942 • marpol.is
Öflugur kísilhreinsir
Frábær á sturtugler, vaska,
keramikhelluborð
og fleira.
Frábærar
þýskar
ryksugur
frá SEBO
fyrir heimili
og fyrirtæki
24 Skrýtið Sakamál
Kúlnahríð í Kawit
n Bae og Colt-inn hans fóru í bæinn n Engum var hlíft
Þ
ann 4. janúar, 2013, gekk
Ronald nokkur Baquiran
Bae berserksgang í Kawit á
Filippseyjum.
Rétt upp úr klukkan níu
að morgni þessa dags gengu Bae
og starfsmaður hans og félagi, John
Paul Lopez, inn í verslun í Kawit. Þar
hittu þeir fyrir þrjú börn úr Caimol-
fjölskyldunni, sem Bae þekkti vel.
Eitt barnanna, Ken Cedric, þriggja
ára, var guðsonur Bae.
Bae spurði börnin hvort faðir
barnanna og nágranni hans, Berto
Caimol, væri á staðnum og svöruðu
þau að svo væri ekki. Ljóst er að Bae
líkaði ekki svarið því hann mund-
aði .45 kalibera Colt-skammbyssu og
skaut á börnin. Michaella, sjö ára, lét
þar lífið en systir hennar, Michelle,
tveggja ára, og Ken Cedric særðust.
Valkösturinn stækkar
Bae og Lopez yfirgáfu verslunina
og hlupu niður götuna. Bae skaut á
hvern þann sem varð á vegi hans og
Lopez sá um að hlaða byssuna þegar
þurfti. Þeir fyrstu sem féllu í valinn
voru Alberto Fernandez og hundur-
inn hans.
Síðan skaut Bae barnshafandi
konu, Rheu de Vera, í kviðinn og
einnig þriggja ára dóttur hennar,
Monicu.
Bræðurnir Al Dorio og Anton-
io voru svo ólánsamir að verða á
vegi félaganna. Antonio slapp með
skrekkinn, þrátt fyrir að vera skotinn
í bakið, en Al þurfti ekki að kemba
hærurnar.
Bae skaut að auki til ólífis fer-
tuga konu, Irene Funelas, og Boyet
Toledo, 44 ára.
Umsátur
Að lokum fór Bae heim til sín og áður
en langt um leið bar lögregluna að og
reyndi að fá hann til að gefast upp.
Bae var ekki á þeim buxunum og
lét kúlunum rigna yfir laganna verði.
Skothríð hans var svarað og var
Bae ekki til frásagnar þegar þessum
hildarleik, sem tók ekki nema hálfa
klukkustund frá upphafi til enda,
lauk.
Meðan á umsátrinu stóð tókst
Lopez að forða sér og var heitið verð-
launum fyrir vitneskju sem leiða
myndi til handtöku hans. Að lokum
sá hann þann kost vænstan að gefa
sig fram við lögregluna.
Sjö látnir og ellefu særðir
Þegar upp var staðið voru sjö látn-
ir auk Bae sjálfs og ellefu manns á
aldrinum tveggja ára upp í 73 höfðu
særst.
Fleira átti þó eftir að koma úr
kafinu því Lopez gaf við yfirheyrsl-
ur í skyn að ýmislegt annað en jarð-
veg væri að finna undir yfirborðinu
í kringum hús hans. Í ljós kom
að þar fór Lopez ekki með fleip-
ur því jarðneskar leifar eins manns,
Teodulo Villanueva, aðstoðar-
manns Bae, höfðu verið huslaðar
þar. Villanueva hafði árið 2003 svik-
ið Bae í tengslum við hanaslag þess
fyrrnefnda og galt fyrir með lífi sínu.
Ekki liggur ljóst fyrir hvað orsak-
aði atburðarás 4. janúar, 2013, sagt er
að Bae og Lopez hefðu innbyrt slatta
af áfengi og fíkniefnum áður en til
kastanna kom. n
Hundur Albertos Fólk eða dýr; Bae gerði
þar engan greinarmun á.
Ronald
Baquiran Bae
Lét kúlunum
rigna yfir allt og
alla.
„Ljóst er að Bae lík-
aði ekki svarið því
hann mundaði .45 kali-
bera Colt-skammbyssu
og skaut á börnin.