Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Page 30
Helgarblað 15.–18. apríl 201630 Menning
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
G
eisladiskar, hljómsveita-
bolir, myndasögur og
tölvu leikir eru uppi um
alla veggi – vínylplötur
og DVD-myndir í bak-
herberginu. Það er lágt til lofts og
gangurinn svo þröngur að maður
þarf að smeygja sér fram hjá öðr-
um gestum sem fletta í gegnum
endalausa staflana. Í græjunum er
þungarokk spilað á lágum hljóð-
styrk. Bjallan í hurðinni klingir.
Stöðugur straumur af viðskiptavin-
um rennur inn um dyrnar og nið-
ur í þessa litlu steinsteyptu við-
byggingu sem hýsir Geisladiskabúð
Valda á Vitastígnum.
Falinn á bak við stafla af diskum
á afgreiðsluborðinu er eigandinn,
maðurinn á bak við nafnið, Þor-
valdur Kristinn Gunnarsson, betur
þekktur sem Valdi. Þarna hefur hann
staðið vaktina í tæplega tvo áratugi
og fóstrað íslenska þungarokkssam-
félagið, skapað vettvang fyrir tón-
listar- og tölvuleikjanörda af öllum
stærðum og gerðum.
Þegar DV kíkti í heimsókn var
mikið að gera hjá Valda, nóg af
viðskiptavinum auk þess sem
skipulagning fyrir alþjóðlega plötu-
búðadaginn á laugardag var í full-
um gangi. Rokksveitin Sólstafir mun
spila fría tónleika í portinu á bak við
búðina – ef veðrið helst þurrt.
Elti tónlistina frekar
en peningana
„Ég byrjaði hérna sumarið 1998. Það
var bara af því að ég hafði áhuga á
tónlist og tölvuleikjum. Ég var að
klára viðskiptafræðinám við Háskól-
ann og ætlaði kannski að fara meira
út í eitthvað svoleiðis en svo hef ég
bara verið hérna síðan – ákvað að
elta tónlistina frekar en peningana,“
segir Valdi og glottir.
„Til að byrja með var ekkert
þarna bak við,“ segir Valdi og bend-
ir aftur fyrir sig að bakherberginu
sem nú er fullt af vínylplötum og
DVD-myndum. „Þetta voru diskar,
plötur og mjög mikið af vídeóspól-
um. Í byrjun var ég mikið að selja
notað en núna er örugglega sjötíu
prósent af því sem ég er með nýtt,“
segir hann.
Ungur maður kemur upp að af-
greiðsluborðinu og réttir Valda
þungarokksplötu á vínyl og forvitn-
ast svo um hvort það styttist í að
hann fái boli merkta sænsku svart-
málmssveitinni Watain. Það finnst
Valda líklegt og bendir honum á að
fylgjast með á Facebook-síðu búðar-
innar hvenær sendingin kemur.
Alveg frá upphafi hefur búðin
verið vettvangur og nánast heima-
völlur íslenska þungarokkara. „Ég
var sjálfur mikill þungarokkari
þegar ég var krakki og unglingur –
og er ennþá. Þegar ég byrjaði var ég
með aðeins meira svoleiðis efni en
eðlilegt var. Þannig að þetta var svo-
lítið eins og í myndinni The Birds
[eftir Alfred Hitchcock], það birtist
fyrst einn fugl og síðan koma hundr-
uð fugla á eftir honum.“
Last man standing
Þegar geisladiskabúðin hóf starf-
semi sína voru Skífan og Japis
risarnir á geisladiskamarkaðnum.
Valdi viðurkennir að hann hafi alls
ekki búist við því að vera sá síðasti
sem stæði eftir tæpum 20 árum
seinna.
„Maður var svo saklaus að maður
hélt alltaf að með tímanum myndi
úrvalið aukast og búðirnar verða
betri. En það sem hefur gerst er eig-
inlega þveröfugt. Í Hagkaup finnur
þú bara það sem er á topp 10, þar
er engin breidd. Það sem varð stóru
búðunum að falli var að þær voru
bara að veðja á það sem var vin-
sælt og seldist vel. Þegar internetið
tók yfir minnkaði salan rosalega á
Geisladiskurinn lifir
n Geisladiskabúð Valda er elsta plötubúðin í miðbænum n Rónar jafnt sem ráðherrar versla við Valda
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Á bak við
búðarborðið í
18 ár Valdi opnaði
Geisladiskabúð
Valda árið 1998.
„Þetta er
mjög breið-
ur hópur, allt frá
göturónum og
upp í ráðherra
Fagnar Alþjóðlega plötubúðadeginum Valdi fyrir utan geisladiskabúðina.
Metsölulisti
Eymundsson
6.–12. apríl 2016
1 JárnblóðLiza Marklund
2 Hælið Sankta PsykoJohan Theorin
3 Kryddjurtarækt fyr-ir byrjendur
Auður Rafnsdóttir
4 Independent peopleHalldór Laxness
5 Aðeins ein nóttSimona Ahrnstedt
6 Saga tónlistarinnarÁrni Heimir Ingólfsson
7 Kuggur 14 Hoppað í París
Kuggur 14 Hoppað í París
8 Hugskot - skamm, fram - og víðsýni
Friðbjörg Ingimarsdóttir/
Gunnar Hersveinn
9 Meira blóð Jo Nesbø
10 Kuggur 15 Rassaköst í Róm
Sigrún Eldjárn