Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Page 38
Helgarblað 15.–18. apríl 201638 Fólk
Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos
Bragðgóð grísk jógúrt að vestan
Tilboð á Lappset
útileiktækjum 2016
Leitið til sölumanna í síma 565 1048
HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI
- Leiðandi á leiksvæðum
jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is
Uppsetningar, viðhald og þjónusta
• Útileiktæki
• Girðingar
• Gervigras
• Hjólabrettarampar
• Gúmmíhellur
• Fallvarnarefni
„Þetta egg mun
breyta sögunni“
Kristen og Dax gerðu sér glaðan dag á frumsýningu GOT
L
eikarahjónin Dax Shepard og
Kristen Bell eru grjótharðir
aðdáendur þáttanna Game
of Thrones, eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd. Hjónin fengu
miða á frumsýningu þáttanna í Los
Angeles í vikunni og mættu í sér-
útbúnum hlýrabolum auk þess að
láta teikna á sig húðflúr á bringuna
sem átti að sýna aðdáun þeirra, en
á þeim stóð meðal annars: „ Winter
is coming“ eða veturinn nálgast,
setningu sem aðdáendur þáttanna
ættu að kannast vel við.
Svo virðist sem þau hafi lifað sig
betur inn í frumsýninguna en flestir
viðstaddir, en Kristen segir frá
þessu ævintýri þeirra á Instragram-
myndasíðunni sinni.
„Á einum tímapunkti lyfti ég
melónu upp yfir höfuðið á mér
og sagði: „Þetta egg mun breyta
sögunni“ og hljóp út um eldvarna-
hurð,“ segir hún og bætir við að
aðrir gestir hafi látið sér nægja að
drekka kokteila og spjalla saman í
jakkafötum og fínum kjólum.
Sjálf er Kristen önnum kafin við
að kynna kvikmyndina The Boss,
sem sýnd er í kvikmyndahúsum
um allan heim um þessar mundir.
Í myndinni leikur hún annað aðal-
hlutverkið á móti gamanleik-
konunni Melissu McCarthy. n
Grjóthörð Hér má sjá þau Kristen og Dax á
frumsýningunni. Mynd Kristen Bell/instaGraM
Úrvalssveit KK
Tónlistarmaðurinn og lífskúnstnerinn KK fagnaði 60 ára afmæli sínu á dögun-
um með tónleikum í Eldborg í Hörpu. KK spilaði að sjálfsögðu með úrvalssveit
íslenskra tónlistarmanna, meðal annars þeim Magnúsi Eiríkssyni, Jóni Ólafssyni,
Ellen Kristjánsdóttur og Eyþóri Gunnarssyni. Ljósmyndari DV rak inn nefið og
smellti af nokkrum myndum af þessum miklu hátíðahöldum.
Gleði Jón Ólafsson sveiflar hér vígalegum
blómvendi, en hann var að sjálfsögðu hluti
af úrvalssveit KK sem spilaði með honum.
Vinátta Magnús Eiríksson lét ekki sitt eftir liggja og steig á svið ásamt KK og Jóni Ólafs-
syni. KK og Magnús hafa spilað saman um árabil og félagsskapur þeirra hefur gefið af sér
mörg falleg lög, plötur og tónleikaferðalög.
systkini Ellen Kristjánsdóttir var að sjálfsögðu mætt til að fagna með bróður sínum.
Úrvalssveit spilaði með KK undir dyggri stjórn Eyþórs Gunnarssonar, eiginmanns Ellenar.