Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 6
6 Fréttir U m helgina umturnaðist líf Jónu Salmínu Ingimars­ dóttur eins og hendi væri veifað, þegar hatursfull um­ mæli í hennar nafni birtust í kommentakerfi DV. Í ummælunum er Samfylkingarkonunni og aktív­ istanum Semu Erlu Serdar óskað dauða í hryðjuverkaárás. Skjáskoti af ummælunum var deilt á Facebook­síðu Semu Erlu og í kjölfarið fóru þau eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla, margir deildu skjáskoti af þeim og Jónu Salmínu voru ekki vandaðar kveðjurnar. „Ég skrifaði þessi ummæli ekki,“ segir Jóna Salmína í samtali við blaðamann DV. „Ég hef gleymt að skrá mig út af Facebook og einhver hefur svo sett þessi ummæli við frétt á DV. Það hlýtur að hafa verið óvart, því ég veit ekki um neinn sem myndi vilja mér svona illt. Ég er það lítil manneskja í þessum heimi og á enga óvini.“ Fékk mjög á hana Jóna Salmína deildi ummælunum sjálf á Facebook aðfaranótt laugar­ dagsins. „Ég var komin upp í rúm og ákvað að kíkja aðeins á frétt­ irnar og Facebook fyrir svefninn. Þá sé ég þessa fyrirsögn frá kon­ unni sem deildi skjáskotinu fyrst á vegg Semu Erlu. Mér brá svakalega. Ég deildi þessu og spurði einfald­ lega hvað væri í gangi. Mér fannst þetta mjög óraunverulegt, því þetta er ekki minn karakter og ég myndi ekki segja svona við nokkurn einasta mann. Þegar ég sá allt það óhuggu­ lega sem ókunnugt fólk var að skrifa um mig brotnaði ég niður. Einhver óskaði þess að það yrði farið með mig niður í dal og ég tekin af lífi.“ Erfið nótt Nóttina notaði Jóna Salmína til að senda skilaboð til fólks sem hafði deilt skjáskotinu og tjáð sig á netinu um hatursummælin. „Flestir tóku mér mjög vel og eyddu ummælum og færslum. Margir sendu mér svör og báðust afsökunar. Mig langar að þakka þeim kærlega fyrir. Mér þótti þetta ekki bara erfitt mín vegna, heldur einnig vegna þess að margir fóru að rakka niður Vestmannaeyjar. Sögðu að þetta yrði nú bara þaggað niður, því þannig væru Vestmanna­ eyingar. Ég er búin að búa hér í fjög­ ur ár og þetta er yndislegur bær. Það eina sem ég hef yfir að kvarta er Herjólfur.“ Jóna Salmína segist hafa haft samband við netmiðla sem hafa fjallað um málið, en neitað að taka fréttir úr birtingu vegna skorts á sönnunargögnum. Sema Erla hefur ekki svarað skilaboðum frá Jónu. „Mér finnst mjög leiðinlegt að hún hafi lent í þessu og óska henni og fjölskyldu hennar alls hins besta. Þessi orð voru rosalega ljót og maður spáir í hvað hafi verið þarna á bakvið. Ég get ekki skilið það og trúi ekki að sú eða sá sem setti þetta inn hafi verið með öllum mjalla.“ Stuðningur frá vinum og vinnu- félögum Umræðan um helgina snerist að miklu leyti um að Jóna Salmína starfar sem leikskólakennari. „Ég vinn með litlum börnum og það er skelfilegt fyrir mína vinnu að hafa lent í þessu. Póstarnir hafa hrúgast inn til yfirmanns míns á leikskól­ anum, enda mikil ábyrgð að starfa með litlum börnum. Leikskólastjór­ inn og samstarfsfólk mitt stendur þétt við bakið á mér og veit að ég myndi aldrei skrifa neitt þessu líkt.“ Í gær skrifuðu fjölmargir vin­ ir og kunningjar Jónu Salmínu Facebook­færslur henni til stuðn­ ings. Eitt af því sem fólk benti á er að Jóna er með mikla les­ og skrif­ blindu. Hatursummælin um Semu Erlu voru hins vegar villulaus. „Það er ekki aðeins að ég sé ekki svona innrætt, heldur hefði ég aldrei get­ að skrifað þetta.“ Greinin sem hatursummælin birtust undir fjallaði um að Sema Erla Serdar hefði verið sökuð um herferð gegn Útvarpi Sögu, en Sema hefur verið kölluð skoðanakúgari og hryðjuverkamaður í beinni út­ sendingu. „Ég er ekki einu sinni búin að lesa greinina, enda á ég mjög erfitt með að lesa vegna les­ blindunnar,“ segir Jóna Salmína. Dæmir ekki flóttamenn En hvaða viðhorf skyldi þessi um­ deildasta kona helgarinnar hafa í innflytjendamálum? „Það sem er að gerast í heimin­ um er hræðilegt. Bæði ástandið í löndunum sem allt þetta fólk er að flýja og hryðjuverkaárásir um allan heim. Ég held að fólk sé hrætt um litla Ísland sem hefur til þessa ver­ ið laust við hryðjuverkaárásir. Ég ætla ekki að dæma fólk sem flýr til landsins, kalla það hryðjuverka­ menn eða álíka. Flóttafólkið hef­ ur búið við hræðilegar aðstæður og vantar heimili og umhyggju. Auð­ vitað vil ég að landið mitt fái að halda sínum einkennum, og óska þess að fólk sem hingað kemur vilji búa í landinu okkar eins og það er. Ég er kristin og vil að Ísland verði það áfram, en hef ekkert á móti því að þeir sem hafa aðra trú fái að iðka hana. Ég treysti yfirvöldum til að meta hversu mörgum við get­ um tekið á móti. Ef ég ætti milljón­ ir myndi ég svo sannarlega gera eitt­ hvað til að hjálpa.“ n Vikublað 12.–14. júlí 2016 Hatursummælin Hér sjást ummælin sem birt voru í kommentakerfi DV í nafni Jónu Salmínu. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is „Ég skrifaði þetta ekki“ n Jóna Salmína þvertekur fyrir að hafa óskað Semu Erlu dauða Vill engum illt Jóna Salmína segist aldrei mundu hafa skrifað ummælin sem birtust í hennar nafni við frétt á DV. Á myndinni er hundurinn Tumi með henni. Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322 CNC renniverkstæði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.