Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 25
F
lutningaþjónustan ehf.
var stofnuð árið 2004 en
fyrir tækið byggir á dýr-
mætri reynslu eigandans
Jóns Birgis sonar sem hefur
starfað í flutningabransanum frá
1989. Að sögn Jóns er fyrirtækið
traust flutningaþjónusta með full-
gilt rekstrarleyfi. „Hjá fyrirtækinu
starfa aðeins reyndir menn sem
hafa metnað til að veita afburða
þjónustu,“ segir hann.
Fyrirmyndar
fyrirtækjaþjónusta
„Mörg fyrirtæki þurfa ekki á flutn-
ingaþjónustu að halda á hverjum
degi,“ segir Jón. „En þegar þörfin
skapast, skiptir máli að verkefnið
sé í höndum aðila sem er starfi
sínu vaxinn og traustsins verð-
ur. Hvort sem um er að ræða til-
fallandi sendingar
eða flutning á höf-
uðstöðvum fyrir-
tækisins er mik-
ilvægt að hafa
fagmennsku að
leiðarljósi. Þar
kemur einmitt
Flutningaþjón-
ustan til skjal-
anna!“ segir hann
brosandi.
Tímabundnar
og langtímalausnir
„Við útvegum starfsmanninn sem
vantar bara stundum. Hjá okkur
starfa einungis harðduglegir
menn, laghentir, úrræðagóðir og
fljótir að komast inn í ný verkefni.
Það fær enginn vinnu hjá Flutn-
ingaþjónustunni sem ekki hefur
hreint sakavottorð og góðan öku-
feril.
Eitt aðal markmið okkar er
hagkvæmni. Ef þig vantar starfs-
mann tímabundið inn á
lager, eða íhlaupamann í
nokkra klukkutíma, hafðu
þá samband við okkur.
Við getum sett saman hús-
gögn, fært til innréttingar
og stillt upp ef þörf er á. Við
þrífum, göngum frá, stillum upp
og gerum það sem til fellur í sam-
bandi við flutninga – já og meira
til!“
Heildarlausnir og hagkvæmni
Jón segir að Flutningaþjónustan
geti einnig séð um heildarlausn á
flutningamálum fyrirtækja. „Það
færist í vöxt í íslensku viðskipta-
lífi að fyrirtæki kjósi að láta verk-
þætti sem ekki tengjast daglegum
rekstri fyrirtækisins, t.d. vöru-
dreifingu, frá sér og fela þau sér-
hæfðum fagaðilum. Hvort sem
um er að ræða vörudreifingu eða
aðföng, þá erum við með réttu
lausnina fyrir þitt fyrirtæki.
Við hvetjum ykkur til þess að
hafa samband og kanna hvað við
höfum upp á að bjóða,“ segir Jón
að lokum. n
Flutningaþjónustan ehf.,
Dugguvogur 17–19,
104 Reykjavík,
Sími 555 1100
www.flutningathjonustan.is
Flutningaþjónustan á facebook.
Flutningaþjónustan:
Metnaður og
afburðaþjónusta
„Hjá fyrirtækinu
starfa aðeins
reyndir menn sem hafa
metnað til að veita af-
burða þjónustu.
Flutningaþjónusta
Kynning