Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 12.–14. júlí 201618 Sport Brjálað að gera hjá umBoðsmönnum Bjarki Gunnlaugsson hjá Total Football segist fá fyrirspurnir frá fleiri löndum en áður Þ að er mun meira hringt frá löndum og klúbbum sem voru ekkert endilega að sýna Íslandi áhuga áður,“ segir Bjarki Gunnlaugs- son hjá umboðsskrifstofunni Total Football. Þrír landsliðsmenn hafa gengið til liðs við ný lið frá því Ís- land lauk þátttöku á EM. Hörður Björgvin Magnússon gekk til liðs við Bristol City, Rúnar Már Sigur- jónsson samdi við Grasshoppers og hermt er að Jóhann Berg Guð- mundsson hafi náð samkomulagi við Burnley, nýliða í ensku úrvals- deildinni. Árangur Íslands á EM hefur vak- ið athygli um heim allan. Enginn bjóst fyrirfram við að liðið kæmist í 8 liða úrslit á sínu fyrsta stórmóti. Total Football er með tíu leikmenn úr 23 manna landsliðshópi Íslands á sínum snærum auk ríflega tuttugu aðra íslenska atvinnumenn. Nokkrir eiga eftir að skipta um félög Bjarki segir að nú hafi kviknað mik- ill áhugi á íslenskum leikmönn- um – nóg sé að gera. „Menn sjá að þessir strákar sem voru að spila úti geta spilað á mjög háu getu- stigi,“ segir Bjarki við DV. Hann á von á því að nokkrir til viðbótar eigi eftir að skipta um félög á næst- unni auk þess sem aðrir fái nýja og betri samninga. Sumir hverjir séu þegar á góðum stað. Þar nefn- ir hann Birki Bjarnason hjá Basel í Sviss, Jón Daða Böðvars- son hjá Kaiserslautern í Þýskalandi og Gylfa Þór Sigurðsson hjá Swansea. „Það þarf að koma eitt- hvað verulega gott svo þessir leikmenn skipti um félög,“ seg- ir hann en bæði Birkir og Jón Daði eru tiltölulega ný- gengnir til liðs við sín félög. „Kolbeinn [Sigþórs- son] er spurningarmerki – hvort hann fari eitthvert annað.“ Bjarki segir að allir þessir leik- menn sem spiluðu á EM séu nú hærra metnir en áður. Fyrir þá skipti hins vegar miklu máli að liðið haldi áfram að standa sig vel. Og fyrir íslenska knattspyrnu skipti líka máli að íslensku félags- liðin standi sig vel í Evrópukeppn- um. Landsliðið sé eitt og íslenska deildin annað. Tröppugangur Bjarki segir að hingað til hafi leik- menn yfirleitt fyrst farið út til Skandinavíu og þaðan til landa eins og Hollands. Nú verði hann aftur á móti var við fyrirspurnir frá lönd- um sem sjaldan hafi haft samband áður. „Íslenskir leikmenn ættu að vera áhugaverðir fyrir öll lönd. Vinnusemi þeirra, dugnaður og viðhorf er það gott. Þeir eru tækni- lega góðir og flottir íþróttamenn,“ segir Bjarki. Hann býst þó ekki við að leik- menn héðan fari beint út í stór- lið. Það gerist ekki þannig að menn fari beint úr áhuga- mannaliði í Bayern München eða önn- ur stórlið. „Þetta er alltaf einhver tröppugangur.“ Snýst ekki um bestu einstak- lingana Lið eins og Ísland, Portúgal og Leicest- er hafa að mati Bjarka sýnt umheiminum að fótbolti snýst ekki um að hafa 11 bestu leik- mennina innan sinna raða. Það sem skipti máli sé að hafa besta liðið. Hann nefnir Gylfa Þór Sig- urðsson sem dæmi um leikmann sem fórni sér fyrir liðið. „Hann er okkar stærsta stjarna. Ef hann hefði verið að hugsa um sjálfan sig þá hefði hann ekki unnið jafn mik- ið fyrir liðið og raun ber vitni. Hjá Swansea er hann meira í færum og að skora, en í landsliðinu fórnar hann sér algjörlega fyrir liðið, þótt hann sé í öðru hlutverki.“ Bjarki segir að nánast á hverjum leik í Pepsi-deildinni séu útsendar- ar frá einhverjum liðum. Hann á von á mikilli aukningu þar á. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Hafa sannað sig Hetjanna okkar gætu beðið nýir samningar og ný tækifæri í sterk- ari liðum. MyNd SiGTryGGur Ari „ Íslenskir leikmenn ættu að vera áhugaverðir fyrir öll lönd. Tökum að okkur að sérhanna og útbúa töflur til skipulags

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.