Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 12.–14. júlí 20162 Flutningaþjónusta - Kynningarblað „Trúin flytur fjöll, við flytjum allt annað“ Sendibílastöðin hf. fagnar 67 ára afmæli í ár – Var stofnuð 29. júní árið 1949 S endibílastöðin hf. var stofn- uð 29. júní árið 1949. Hún var upphaflega staðsett að Ingólfsstræti 11 en flutti svo í Borgartún 21 árið 1956. Í dag er stöðin að Klettagörðum 1 og hefur verið síðan 1999. Sólveig Þóra Jónsdóttir fram- kvæmdastjóri Sendibílastöðvarinn- ar hf., segir að á staðnum sé einka- rekið mötuneyti fyrir bílstjórana og einnig er í boði kaffi og meðlæti allan daginn. „Andrúmsloftið er gott og menn hittast hér og rabba, spila bridge og tefla þegar tími gefst til. Það er reyndar ekki oft því yfirleitt er mik- ið að gera.“ Allt annar rekstrargrundvöllur í dag „Rekstur sendibílastöðva er með allt annan grundvöll í dag en áður var. Árið 2002 komu ný lög/reglugerð- ir varðandi að ekki var lengur skylda fyrir sendibílstjóra að vera á viður- kenndri sendibílastöð – eins og alltaf hafði verið. Auk þess var sendibíla- stöðvum bannað að gefa út hámarks- gjaldskrá. Við fengum undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því hámarks- gjaldskrá er til verndar viðskiptavin- inum,“ segir hún. Bílar hafa stækkað í gegnum tíð- ina og eru þeir burðarmeiri enda kall- ar markaðurinn á það. Ný tæki hafa komið til sögunnar sem létta bílstjór- anum vinnuna, t.d. rafmagnsbretta- tjakkar og rafmagnströpputrillur. Að sögn Sólveigar flytur Sendibíla- stöðin allt frá umslögum upp í stór- flutninga. „Við erum með bíla allt frá fimm rúmmetrum upp í tæplega 50 rúmmetra burðargetu; allt að 10 tonnum. Sumir eru með vagna auka- lega sem eru um 50 rúmmetrar þar sem burður er allt að 13 tonnum. Einnig höfum við aðgang að krana og búslóðalyftum sem ná allt að 50 metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“ Þjóna bæði fyrirtækjum og einstaklingum „Trúin flytur fjöll, við flytjum allt annað,“ segir Sólveig brosandi. „Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjónum bæði einstaklingum og fyr- irtækjum. Á Sendibílastöðinni starfa tveir starfsmenn en á stöðinni eru alls 62 bílstjórar. Sendibílstjórarnir eru allir sjálfstæðir verktakar með sam- eiginlega símaþjónustu varðandi út- hlutun túra og innheimtu reikninga þeirra fyrirtækja sem eru í reikningi á Sendibílastöðinni.“ Ísbjarnarflutningur Aðspurð segir Sólveig að það skrýtn- asta sem fyrirtækið hefur flutt til þessa sé líklega ísbjörn. „Hann var uppstoppaður, sem betur fer,“ segir hún hlæjandi. „Annars er ekkert sem við neitum að flytja svo framarlega að farmurinn komist í bílana og allt sé löglegt. Við höfum hingað til ekki lent í því að þurfa að neita viðskiptavini um flutning.“ n Sendibílastöðin hf. Klettagörðum 1, 104 Reykjavík. Símar: 553 - 5050 og 533 - 1000. www.sendibilastodin.is Sólveig Þóra Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.