Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Side 18
Vikublað 12.–14. júlí 20162 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
„Trúin flytur fjöll, við
flytjum allt annað“
Sendibílastöðin hf. fagnar 67 ára afmæli í ár – Var stofnuð 29. júní árið 1949
S
endibílastöðin hf. var stofn-
uð 29. júní árið 1949. Hún
var upphaflega staðsett að
Ingólfsstræti 11 en flutti svo í
Borgartún 21 árið 1956. Í dag
er stöðin að Klettagörðum 1 og hefur
verið síðan 1999.
Sólveig Þóra Jónsdóttir fram-
kvæmdastjóri Sendibílastöðvarinn-
ar hf., segir að á staðnum sé einka-
rekið mötuneyti fyrir bílstjórana
og einnig er í boði kaffi og meðlæti
allan daginn. „Andrúmsloftið er gott
og menn hittast hér og rabba, spila
bridge og tefla þegar tími gefst til. Það
er reyndar ekki oft því yfirleitt er mik-
ið að gera.“
Allt annar rekstrargrundvöllur
í dag
„Rekstur sendibílastöðva er með allt
annan grundvöll í dag en áður var.
Árið 2002 komu ný lög/reglugerð-
ir varðandi að ekki var lengur skylda
fyrir sendibílstjóra að vera á viður-
kenndri sendibílastöð – eins og alltaf
hafði verið. Auk þess var sendibíla-
stöðvum bannað að gefa út hámarks-
gjaldskrá. Við fengum undanþágu frá
Samkeppniseftirlitinu. Því hámarks-
gjaldskrá er til verndar viðskiptavin-
inum,“ segir hún.
Bílar hafa stækkað í gegnum tíð-
ina og eru þeir burðarmeiri enda kall-
ar markaðurinn á það. Ný tæki hafa
komið til sögunnar sem létta bílstjór-
anum vinnuna, t.d. rafmagnsbretta-
tjakkar og rafmagnströpputrillur.
Að sögn Sólveigar flytur Sendibíla-
stöðin allt frá umslögum upp í stór-
flutninga. „Við erum með bíla allt
frá fimm rúmmetrum upp í tæplega
50 rúmmetra burðargetu; allt að 10
tonnum. Sumir eru með vagna auka-
lega sem eru um 50 rúmmetrar þar
sem burður er allt að 13 tonnum.
Einnig höfum við aðgang að krana
og búslóðalyftum sem ná allt að 50
metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“
Þjóna bæði fyrirtækjum og
einstaklingum
„Trúin flytur fjöll, við flytjum allt
annað,“ segir Sólveig brosandi.
„Þjónusta okkar er víðtæk. Við
þjónum bæði einstaklingum og fyr-
irtækjum. Á Sendibílastöðinni starfa
tveir starfsmenn en á stöðinni eru alls
62 bílstjórar. Sendibílstjórarnir eru
allir sjálfstæðir verktakar með sam-
eiginlega símaþjónustu varðandi út-
hlutun túra og innheimtu reikninga
þeirra fyrirtækja sem eru í reikningi á
Sendibílastöðinni.“
Ísbjarnarflutningur
Aðspurð segir Sólveig að það skrýtn-
asta sem fyrirtækið hefur flutt til
þessa sé líklega ísbjörn. „Hann var
uppstoppaður, sem betur fer,“ segir
hún hlæjandi. „Annars er ekkert sem
við neitum að flytja svo framarlega að
farmurinn komist í bílana og allt sé
löglegt. Við höfum hingað til ekki lent
í því að þurfa að neita viðskiptavini
um flutning.“ n
Sendibílastöðin hf.
Klettagörðum 1, 104 Reykjavík.
Símar: 553 - 5050 og 533 - 1000.
www.sendibilastodin.is Sólveig Þóra Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf.