Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Qupperneq 6
6 Fréttir
U
m helgina umturnaðist líf
Jónu Salmínu Ingimars
dóttur eins og hendi væri
veifað, þegar hatursfull um
mæli í hennar nafni birtust
í kommentakerfi DV. Í ummælunum
er Samfylkingarkonunni og aktív
istanum Semu Erlu Serdar óskað
dauða í hryðjuverkaárás.
Skjáskoti af ummælunum var
deilt á Facebooksíðu Semu Erlu og í
kjölfarið fóru þau eins og eldur í sinu
um samfélagsmiðla, margir deildu
skjáskoti af þeim og Jónu Salmínu
voru ekki vandaðar kveðjurnar.
„Ég skrifaði þessi ummæli ekki,“
segir Jóna Salmína í samtali við
blaðamann DV. „Ég hef gleymt að
skrá mig út af Facebook og einhver
hefur svo sett þessi ummæli við
frétt á DV. Það hlýtur að hafa verið
óvart, því ég veit ekki um neinn sem
myndi vilja mér svona illt. Ég er það
lítil manneskja í þessum heimi og á
enga óvini.“
Fékk mjög á hana
Jóna Salmína deildi ummælunum
sjálf á Facebook aðfaranótt laugar
dagsins. „Ég var komin upp í rúm
og ákvað að kíkja aðeins á frétt
irnar og Facebook fyrir svefninn.
Þá sé ég þessa fyrirsögn frá kon
unni sem deildi skjáskotinu fyrst á
vegg Semu Erlu. Mér brá svakalega.
Ég deildi þessu og spurði einfald
lega hvað væri í gangi. Mér fannst
þetta mjög óraunverulegt, því þetta
er ekki minn karakter og ég myndi
ekki segja svona við nokkurn einasta
mann. Þegar ég sá allt það óhuggu
lega sem ókunnugt fólk var að skrifa
um mig brotnaði ég niður. Einhver
óskaði þess að það yrði farið með
mig niður í dal og ég tekin af lífi.“
Erfið nótt
Nóttina notaði Jóna Salmína til að
senda skilaboð til fólks sem hafði
deilt skjáskotinu og tjáð sig á netinu
um hatursummælin. „Flestir tóku
mér mjög vel og eyddu ummælum
og færslum. Margir sendu mér svör
og báðust afsökunar. Mig langar að
þakka þeim kærlega fyrir. Mér þótti
þetta ekki bara erfitt mín vegna,
heldur einnig vegna þess að margir
fóru að rakka niður Vestmannaeyjar.
Sögðu að þetta yrði nú bara þaggað
niður, því þannig væru Vestmanna
eyingar. Ég er búin að búa hér í fjög
ur ár og þetta er yndislegur bær.
Það eina sem ég hef yfir að kvarta er
Herjólfur.“ Jóna Salmína segist hafa
haft samband við netmiðla sem
hafa fjallað um málið, en neitað að
taka fréttir úr birtingu vegna skorts á
sönnunargögnum.
Sema Erla hefur ekki svarað
skilaboðum frá Jónu. „Mér finnst
mjög leiðinlegt að hún hafi lent í
þessu og óska henni og fjölskyldu
hennar alls hins besta. Þessi orð
voru rosalega ljót og maður spáir í
hvað hafi verið þarna á bakvið. Ég
get ekki skilið það og trúi ekki að sú
eða sá sem setti þetta inn hafi verið
með öllum mjalla.“
Stuðningur frá vinum og vinnu-
félögum
Umræðan um helgina snerist að
miklu leyti um að Jóna Salmína
starfar sem leikskólakennari. „Ég
vinn með litlum börnum og það er
skelfilegt fyrir mína vinnu að hafa
lent í þessu. Póstarnir hafa hrúgast
inn til yfirmanns míns á leikskól
anum, enda mikil ábyrgð að starfa
með litlum börnum. Leikskólastjór
inn og samstarfsfólk mitt stendur
þétt við bakið á mér og veit að ég
myndi aldrei skrifa neitt þessu líkt.“
Í gær skrifuðu fjölmargir vin
ir og kunningjar Jónu Salmínu
Facebookfærslur henni til stuðn
ings. Eitt af því sem fólk benti á er
að Jóna er með mikla les og skrif
blindu. Hatursummælin um Semu
Erlu voru hins vegar villulaus. „Það
er ekki aðeins að ég sé ekki svona
innrætt, heldur hefði ég aldrei get
að skrifað þetta.“
Greinin sem hatursummælin
birtust undir fjallaði um að Sema
Erla Serdar hefði verið sökuð um
herferð gegn Útvarpi Sögu, en Sema
hefur verið kölluð skoðanakúgari
og hryðjuverkamaður í beinni út
sendingu. „Ég er ekki einu sinni
búin að lesa greinina, enda á ég
mjög erfitt með að lesa vegna les
blindunnar,“ segir Jóna Salmína.
Dæmir ekki flóttamenn
En hvaða viðhorf skyldi þessi um
deildasta kona helgarinnar hafa í
innflytjendamálum?
„Það sem er að gerast í heimin
um er hræðilegt. Bæði ástandið í
löndunum sem allt þetta fólk er að
flýja og hryðjuverkaárásir um allan
heim. Ég held að fólk sé hrætt um
litla Ísland sem hefur til þessa ver
ið laust við hryðjuverkaárásir. Ég
ætla ekki að dæma fólk sem flýr til
landsins, kalla það hryðjuverka
menn eða álíka. Flóttafólkið hef
ur búið við hræðilegar aðstæður og
vantar heimili og umhyggju. Auð
vitað vil ég að landið mitt fái að
halda sínum einkennum, og óska
þess að fólk sem hingað kemur vilji
búa í landinu okkar eins og það er.
Ég er kristin og vil að Ísland verði
það áfram, en hef ekkert á móti
því að þeir sem hafa aðra trú fái að
iðka hana. Ég treysti yfirvöldum til
að meta hversu mörgum við get
um tekið á móti. Ef ég ætti milljón
ir myndi ég svo sannarlega gera eitt
hvað til að hjálpa.“ n
Vikublað 12.–14. júlí 2016
Hatursummælin Hér
sjást ummælin sem birt voru
í kommentakerfi DV í nafni
Jónu Salmínu.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Ég skrifaði
þetta ekki“
n Jóna Salmína þvertekur fyrir
að hafa óskað Semu Erlu dauða
Vill engum illt Jóna Salmína segist aldrei
mundu hafa skrifað ummælin sem birtust
í hennar nafni við frétt á DV. Á myndinni er
hundurinn Tumi með henni.
Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322
CNC renniverkstæði