Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Side 8
8 Fréttir Vikublað 12.–14. júlí 2016
Hvattur til að taka smálán
þegar peningarnir kláruðust
n Lenti í svikara á netinu n Sagðist vanta pening til að kosta útför móður sinnar, sem er á lífi
Þ
etta hefur reynst mér mjög
erfitt og skömmin er mikil.
Mér líður eins og algjörum
hálfvita að hafa látist blekkj-
ast og gleypt við þessum
lygum hennar,“ segir Jóhann Guðni
Harðarson, 22 ára gamall maður,
sem millifærði rúmlega 220 þúsund
krónur inn á reikning íslenskrar konu
til þess að hjálpa henni að standa
straum af útför móður sinnar.
Síðar kom í ljós að móðir henn-
ar var sprelllifandi. Jóhann Guðni
er ósáttur við viðbrögð lögreglu sem
sagðist ekki geta hjálpað honum og
hann óttast að fjármunirnir séu glat-
aðir. DV hefur undir höndum hluta
af samskiptum þeirra tveggja, auk
upplýsinga um millifærslur. DV hef-
ur heimildir fyrir því að fleiri einstak-
lingar hafi lánað konunni fjármuni.
„Erfitt að treysta ókunnugu fólki
í framtíðinni“
Jóhann Guðni og konan kynntust fyrr
á árinu á stefnumótasíðu og byrjuðu
að spjalla reglulega saman. „Fljótlega
sagði hún mér í óspurðum fréttum að
móðir hennar hefði látist og hún væri
í vandræðum með að standa straum
af öllum þeim kostnaði sem fylgdi út-
förinni. Fyrst vantaði hana 20 þúsund
krónur til þess að greiða sem stað-
festingu fyrir kistulagningunni en síð-
an vatt sagan upp á sig og kostnaður-
inn jókst,“ segir hann.
Jóhann Guðni er öryrki sem glímt
hefur við andleg veikindi sem hann
hefur tekist á við af festu. Hann sá
fram á bjartari tíma, en það að lenda
í klóm fjársvikara hefur haft afar nei-
kvæð áhrif á líðan hans. Að hans sögn
eru fjármál ekki hans sterkasta hlið.
„Ég geri mér ekki grein fyrir verð-
mætiunum sem eru á bak við þess-
ar tölur í heimabankanum og þess
vegna var ég auðvelt fórnarlamb fyr-
ir þessa konu. Hún kunni að ýta á
alla takka hjá mér varðandi samúð og
góðvild. Þetta mál hefur reynst mér
mjög erfitt og það á eftir að reynast
mér erfitt að treysta ókunnugu fólki í
framtíðinni,“ segir Jóhann Guðni.
Hann hitti konuna aldrei meðan á
þessu ferli stóð en hún sendi honum
hins vegar reglulega myndir af sér við
leik og störf sem jók á traust hans og
trúnað gagnvart henni.
Laug til um lát móður sinnar
Konan sem hafði af honum fé starfaði
sem skólaliði fyrir rúmu ári síðan en
virðist hafa látið af störfum. Eftir að
hafa sannfært Jóhann Guðna um að
millifæra inn á sig 40 þúsund krón-
ur þá gekk hún sífellt lengra varð-
andi frekari peningalán. „Hún sagði
mér að fyrrverandi vinnuveitandi
sinn hefði farið illa með sig og skuld-
aði sér laun. Það mál væri hins vegar
í vinnslu og innan tíðar fengi hún
það greitt og þá gæti hún gert upp við
mig,“ segir Jóhann Guðni.
Hann hafi tekið útskýringar henn-
ar trúanlegar enda hefði hann ekki
getað ímyndað sér að einhver gæti
logið um lát móður sinnar til þess að
svíkja fé út úr fólki. „Það fellur marg-
víslegur kostnaður til út af jarðarför
og hún bað um hjálp út af því öllu.
Fyrir prestinum, kistunni og erfi-
drykkjunni og ég beit á agnið enda
vorkenndi ég henni sárlega,“ segir Jó-
hann Guðni. Að hans sögn var konan
afar sannfærandi auk þess sem hún
sagði honum ítrekað frá hversu illa
henni liði út af fráfalli móður sinn-
ar. „Í eitt skipti sagðist hún vera að
íhuga sjálfsvíg og mér fannst ýmislegt
benda til þess að henni væri alvara.
Ég hringdi þá á lögregluna til þess að
óska eftir aðstoð en þegar ég sagði
henni að hjálp væri á leiðinni varð
hún fokreið og krafðist þess að ég
myndi hringja aftur og segja að upp-
lýsingarnar væru ekki réttar,“ segir Jó-
hann Guðni.
Þá sagðist konan vera einbirni
og hefði engan til að leita til. „Í góð-
mennsku minni lánaði ég henni því
meira fé,“ segir Jóhann Guðni. Alls
lagði hann rúmlega 220 þúsund krón-
ur inn á konuna og fékk fjölbreyttar
skýringar frá henni um hvenær von
væri á endurgreiðslunni. Hann hef-
ur aðeins fengið um fjórðung upp-
hæðarinnar til baka. „Ég átti smá sjóð
en ég endaði með því að lána henni
allt mitt fé. Þegar ekkert var eftir þá
spurði hún hvort ég gæti ekki tek-
ið smálán og millifært lánið á hana,“
segir Jóhann Guðni.
Ósáttur við viðbrögð lögreglu
Segja má að það hafi verið kornið
sem fyllti mælinn og í kjölfarið leit-
aði hann til vinar síns. Nánari eftir-
grennslan þeirra leiddi í ljós að konan
hafði logið til um allt sem hún sagði
Jóhanni Guðna. Móðir hennar var
sprelllifandi og hún átti nokkur systk-
ini. Í kjölfarið ákvað Jóhann Guðni að
leita til lögreglunnar en þar var hon-
um frekar fálega tekið. „Ég er mjög
ósáttur við viðbrögð lögreglunnar.
Fulltrúinn sem var á vakt yppti bara
öxlum og tjáði mér að það væri ekkert
sem lögreglan gæti gert í þessu. Síð-
an var mér nánast hent öfugum út af
stöðinni,“ segir Jóhann Guðni.
Hann er ráðþrota og óttast að fjár-
munirnir séu týndir og tröllum gefn-
ir. Þá hefur DV heimildir fyrir því að
fleiri einstaklingar hafi lánað kon-
unni fjármuni. n
Konan: Gætiru gert mér smá greiða i viðbót
og ég skal leggja inná þig 100 kall á mgr
Jóhann: ókei, hvað nú?
Konan: Allt klárt fyrir jarðarför og það en
ég sjálf á 0 kr. og vantar bensín og mat og
allt :(
Eftir að Jóhann samþykkir lánið
Konan: þú ert yndislegur. Ég hringdi strax
í kennarasambandi áðan þegar ég var ekki
búin að fá launin og þeir ætluðu að vinna í
þessu strax fyrir mig. Vona að það gerist á
eftir, annars borga ég í fyrramálið.
Jóhann: Glæsilegt.
Konan: æj takk fyrir að skilja mig elskan :*
enda mun ég ALDREI SVÍKJA ÞIG :*
ég er ekki þannig tussa
Konan: En hva segiru gætir þu gert mér
pínu meiri hjálp :(
Konan: æj þú vilt það ekki :(
Jóhann: hvað þarftu mikið ?
Konan: gætir þú kannski 30 þá gæti ég
haft smá kaffisopa á eftir fyrir prest og
svoleiðis :(
Jóhann: Jamm, ekkert mál
Konan: Ef þú mátt missa 40 væri það æði
og ég legg inn 150 til baka
Konan: En gæti ég verið ömurleg nuna
bara þangað til að þetta dettur inn ,
vorum að græja jarðaförina en það er bara
erfiðdrykkjan eftir :(
Jóhann: Ég a þvi miður engan pening.
Ekki i bankanum allavegana :/
Konan: Er ég búin að klára allt :(
Jóhann: Jebb, á rétt svo 5 þúsund í pen
ingum, ekkert í bankanum.
Konan: Ókei en það er ekkert hægt að
taka svona smálán ?
Brot af samskiptum Jóhanns og konunnar:
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Jóhann Guðni
Harðarson Upplifir
mikla skömm yfir
því að hafa látið
glepjast af óprúttn
um fjársvikara
sem spilaði inn á
góðmennsku hans.
Mynd SiGtryGGur Ari
„Ég var auðvelt
fórnarlamb fyrir
þessa konu
36 á annnarri
32 á hinni
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu ferskar sérvaldar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka