Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 12
12 Fréttir Vikublað 12.–14. júlí 2016
100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA
MAMMA VEIT BEST KYNNIR:
Purelife Red Iron
Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum
jarðlögum þar sem plöntur og steinefni hafa
myndað einstaka járnríkan jarðveg sem
droparnir eru unnir úr.
Hentar barnshafandi konum
Milt í magann - engin hægðatrega
Öruggt og áhrifaríkt
GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN
Mamma veit best - Laufbrekka 30 - 200 Kópavogur mammaveitbest.is
100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA
MAMMA VEIT BEST KYNNIR:
Purelife Red Iron
Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum
jarðlögum þar sem plöntur og st i efni haf
myndað einstaka járnríkan jarðveg sem
droparnir eru unnir úr.
Hentar barnshafandi konum
Milt í magann - engin hægðatrega
Öruggt og áhrifaríkt
GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN
Mamma veit best - Laufbrekka 30 - 200 Kópavogur mammaveitbest.is
MAMMA VEIT BEST KYNNIR: Purelife Red Iron
100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA
Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum jarðlögum þar sem plöntur og
steinefni h fa myndað einstaklega járnríkan jarðveg sem droparnir eru unnir úr.
• Hentar barnshafandi konum
• Milt í magan - engin hægðartregða
• Öruggt og áhrifaríkt
GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN
Hagnast um vel á annan tug
milljarða á sölu lyfjafyrirtækis
n Íslenskir fjárfestar selja Invent Farma fyrir meira en 30 milljarða
Í
slenskir lífeyrissjóðir, einkafjár
festar, bankar og tryggingafélög
hagnast samtals um vel á ann
an tug milljarða króna við sölu á
spænska lyfjafyrirtækinu Invent
Farma. Tilkynnt var um það síð
astliðinn föstudag að erlendir fjár
festingasjóðir, leiddir af alþjóðlega
ráðgjafarfyrirtækinu Apax Partners,
hefðu náð samkomulagi við hlut
hafa Invent Farma, sem eru nánast
að öllu leyti íslenskir fjárfestar, um
kaup á félaginu. Samkvæmt heim
ildum DV er allt hlutafé lyfjafyrir
tækisins metið á rúmlega 220 millj
ónir evra, jafnvirði um 31 milljarð
íslenskra króna, í viðskiptunum.
Salan á fyrirtækinu mun einnig
að óbreyttu stækka gjaldeyrisforða
Seðlabanka Íslands um að minnsta
kosti 20 milljarða króna, enda þurfa
íslensku fjárfestarnir að stærstum
hluta að flytja gjaldeyrinn sem fæst
við söluna, til landsins, samkvæmt
lögum um gjaldeyrismál. Var kaup
samningurinn í liðinni viku undir
ritaður með fyrirvara um samþykki
Seðlabankans.
Framtakssjóður Íslands (FSÍ),
stærsti einstaki hluthafi Invent
Farma, mun bókfæra hjá sér um 6
milljarða hagnað vegna sölunnar –
aðeins þremur árum eftir að sjóð
urinn keypti 38% hlut í lyfjafyrirtæk
inu fyrir tæplega 6,5 milljarða króna.
Þessi mikli söluhagnaður verður til
á sama tíma og evran hefur veikst
um 15% gagnvart krónunni á síð
ustu þremur árum. Eigendur FSÍ
eru sem kunnugt er helstu lífeyris
sjóðir landsins og Landsbankinn.
Þá fær Friðrik Steinn Kristjánsson,
stjórnarformaður og einn stofnanda
Invent Farma, um 8,5 milljarða
króna í sinn hlut við söluna en hann
á 27,27% hlut í fyrirtækinu.
Ævintýralegur hagnaður
Invent Farma á rætur að rekja til
kaupa íslenskra fjárfesta, undir for
ystu Friðriks Steins, á lyfjaverk
smiðju á Spáni í ársbyrjun 2005.
Nam kaupverðið á félaginu mið
að við þáverandi gengi evrunnar,
sem var á þeim tíma um 80 krón
ur fyrir hverja evru, liðlega tveir
milljarðar króna, samkvæmt heim
ildum DV, og því ljóst að Friðrik
Steinn hefur hagnast ævintýra
lega á fjárfestingu sinni í fyrirtæk
inu. Eignarhlutur Friðriks Steins, í
gegnum eignarhaldsfélagið Silfur
berg, var lengst af um 32% en í árs
lok 2014 keypti fjárfestingafélag í
eigu hjónanna Steinunnar Jóns
dóttur og Finns Reyrs Stefánssonar
um 5% hlut af honum fyrir um millj
arð króna.
Sumarið 2013 seldu flestir þá
verandi íslensku hluthafar Invent
Farma, utan Friðriks Steins, sam
tals 61% hlut í lyfjafyrirtækinu til
annars vegar Framtakssjóðs Ís
lands (38%) og hins vegar Burðar
áss eignarhaldsfélags (23%) fyrir ríf
lega tíu milljarða króna. Var greitt
fyrir hlutabréfin í krónum. Burðarás
var upphaflega stofnað af Straumi
fjárfestingabanka undir árslok 2012
samhliða áformum um að koma á
fót framtakssjóði. Kaupin á Invent
Farma, sem voru að öllu leyti fjár
mögnuð með brúarláni frá Arion
banka sem bar um 14% vexti, áttu
að vera fyrsta fjárfesting Burðaráss.
Þau reyndust aftur á móti þau síð
ustu þar sem ekki tókst að ganga frá
áskriftum að hlutafé í sjóðinn.
Sjóvá hagnast vel
Burðarás seldi því nánast allan
eignarhlut sinn í Invent Farma, eða
um 21,7% hlut, strax um ári síðar fy
ir 4,1 milljarð króna. Framtakssjóð
urinn Horn II ásamt meðfjárfestum
keypti þann eignarhlut að stærst
um hluta – samtals 16,8% hlut – í
gegnum IF hlutafélag. Hlutur Horns
II í því félagi er um 79% en aðrir
Invent Farma selt á rúmlega 30 milljarða
ÍSlenSkir hluthafar eignarhlutur
framtakssjóður Íslands 38%
friðrik Steinn kristjánsson 27,3%
if hf. (horn og VÍS) 16,8%
Snæból ehf. ( í eigu Steinunnar Jónsdóttur og finns reyrs Stefánssonar) 5%
Sjóvá-almennar tryggingar 1,7%
Burðarás eignarhaldsfélag (í eigu kviku) 1,3%
Stjórnarformaður invent farma „Ég
er stoltur af aðkomu okkar að Invent Farma
og ég hef notið þess að vinna að upp-
byggingu fyrirtækisins,“ segir Friðrik Steinn.
framkvæmdastjóri
fSÍ „Ég fagna þeim
árangri sem náðst hefur
í uppbyggingu Invent
Farma sem er enn
ein vel heppnuð
fjárfesting FSÍ,“
segir Herdís
Fjeldsted.
hörður Ægisson
hordur@dv.is