Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Síða 16
Vikublað 12.–14. júlí 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
16 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
Auðvitað var
maðurinn í losti
Ekki gaman á Alþingi
Vigdís Hauksdóttir horfði þrisvar á Wintris-viðtalið kvöldið sem það var birt. – DV
Á
vinnustöðum er það bless-
unarlega þannig að starfs-
menn stefna að sama mark-
miði þótt skoðanir þeirra
á mönnum og málefnum séu oft
mjög mismunandi. Auðvitað er það
stundum svo að mönnum líkar ekki
jafn vel við alla vinnufélaga sína
en reyna að láta það hvorki bitna á
vinnunni né vinnuandanum. Á Al-
þingi virðist þetta ekki vera svo ein-
falt. Þingmenn eru fremur duglegir
við að viðra óánægju sína og ræða
opinberlega um erfiðan móral á
vinnustað. Sú var tíð að pólitísk-
ir andstæðingar sátu saman í mat-
sal Alþingis og voru í hrókasam-
ræðum þótt þeir væru ósammála
um fjarskalega margt. Þetta tíðkast
víst varla lengur. Þingmenn kvarta
margir hástöfum vegna vonds
starfsanda og þeim virðist einfald-
lega ekki þykja gaman í vinnunni.
Þá ætti náttúrlega að vera sjálfhætt.
Lilja Alfreðsdóttir, sem er dug-
andi og öflugur utanríkisráðherra,
sagði nýlega að það væri skylda
kjörinna fulltrúa þjóðarinnar að
vinna vel saman. Þetta er vel mælt.
Þingmenn eiga að gera sér grein
fyrir ábyrgð sinni og ekki láta duttl-
unga ráða för. Það er nú einu sinni
þannig að ef fólk ákveður að láta
sér lynda við aðra þá tekst það yf-
irleitt. Í stað þess að bera vanlíðan
sína á torg og tala í upphrópunarstíl
um slæman vinnumóral ættu þing-
menn að byrja á því að líta í eigin
barm og einsetja sér að koma fram
af virðingu við vinnufélaga sína.
Ljóst er að of lengi hefur verið mis-
brestur á því. Það er óhjákvæmilegt
að stjórnmálamenn takist á en þeir
verða að gera greinarmun á mál-
efnaágreiningi og skítkasti. Þeir eiga
að virða vinnustaðinn, sjálfa sig og
pólitíska andstæðinga með því að
sýna þeim kurteisi. Hendi það að
þeir missi stjórn á skapi sínu er sjálf-
sagt að þeir biðjist afsökunar eins og
siðaðra manna er háttur.
Eiríkur Bergmann stjórnmála-
fræðingur sagði á dögunum að orð-
ræðan á Alþingi hefði á síðustu
árum farið versnandi svo jaðraði
við „niðurbrot pólitískrar umræðu í
landinu“. Það hlýtur að vera á ábyrgð
stjórnmálamannanna sjálfra að laga
þetta. Þeir verða að temja sér meiri
víðsýni og umburðarlyndi. Stjórn-
málaflokkar eiga ekki að starfa eins
og sértrúarsöfnuðir þar sem allir
þeir sem ekki fylgja hugmyndafræði
þeirra eru afgreiddir sem mann-
eskjur sem hafi leiðst út á villigötur.
Engin ástæða sé því til að hlusta á
sjónarmið pólitískra andstæðinga
því þeir hafi rangt fyrir sér í öllum
atriðum. Í of miklum mæli virðist
sem þetta viðhorf sé orðið ríkjandi
á Alþingi.
Fjölmargir þingmenn hafa
ákveðið að gefa ekki kost á sér
fyrir næstu alþingiskosningar,
sumir þeirra afar reynslumikl-
ir. Meðal þeirra er forseti Alþingis,
prúðmennið Einar K. Guðfinnsson,
sem hefur í störfum sínum áunnið
sér virðingu þingmanna þvert á
flokka. Þingmenn, bæði þeir sem
áfram sitja og þeir sem koma nýir á
þing, eiga að líta til hans sem fyrir-
myndar. Þeir eiga að leggja upp úr
því að sýna samstarfsmönnum sín-
um virðingu, hvar í flokki sem þeir
standa. Slíkt telst sjálfsögð kurteisi
á hvaða vinnustað sem er. Alþingi á
ekki að vera undantekning frá því. n
Kvenstjórnendur Seðla-
bankans á útleið
Þrír helstu kvenstjórnend-
ur í Seðlabanka Íslands hafa
á skömmum tíma ákveðið að
hætta störfum eða farið í leyfi frá
bankanum. Þannig hefur Lilja
Dögg Alfreðsdóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri á skrifstofu
bankastjóra og alþjóðasamskipta,
verið í tímabundnu leyfi frá því
að hún tók óvænt við embætti
utanríkisráðherra í apríl síðast-
liðnum. Lilja hefur sagt að hún
hafi enn ekki gert það upp við
sig hvort hún muni sækjast eftir
þingsæti í komandi alþingiskosn-
ingum.
Þá hyggst Sigríður Benediktsdóttir,
framkvæmdastjóri fjármálastöð-
ugleika, hætta 1. október næst-
komandi og taka til starfa við
Yale-háskóla þar sem hún mun
sinna kennslu og rannsóknum en
eiginmaður Sigríðar hafði nýver-
ið fengið leyfi frá Landspítalan-
um til að hefja störf sem dósent
við læknadeildina við sama há-
skóla vestanhafs. Ingibjörg Guð-
bjartsdóttir, framkvæmdastjóri
gjaldeyriseftirlits, hefur síðan far-
ið í ársleyfi frá bankanum á með-
an hún verður í framhaldsnámi
við Harvard-háskóla í Bandaríkj-
unum. Ingibjörg og Lilja gegndu
lykilhlutverki í vinnu stjórnvalda
við að hrinda í framkvæmd áætl-
un um losun hafta.
Það er ekki hægt
að styðja þetta
Geir Waage er ekki í liði með biskupi og prestunum í Laugarneskirkju. – DV
Ógeðslegt að sjá pólitíkusa
velta sér upp úr þessu
Þjóðerniskast Íslendinga kringum EM fór illa í Sveinbjörn Þórðarson. – DV
„Það er óhjá-
kvæmilegt að
stjórnmálamenn takist
á en þeir verða að gera
greinarmun á málefna-
ágreiningi og skítkasti.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Lært að fljúga Þessi þrastarungi fannst yfirgefinn í Laugardalnum fyrir nokkrum dögum. Fjölskylda í grenndinni fóstrar hann nú og þessa dagana standa yfir stífar
flugæfingar. mynD SIGtryGGur ArI