Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Page 22
Vikublað 12.–14. júlí 20166 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
Fjölbreyttar stærðir og
sveigjanlegur leigutími
„Partur af þeirri þróun að leigja hluti í stað þess að kaupa allt“
S
endibílar til leigu“ er deild
innan Brimborgar, þar
sem mikill sveigjanleiki
ríkir varðandi leigutíma
og stærðir bíla. Forstjóri
Brimborgar, Egill Jóhannsson, leið-
ir starf deildarinnar. Hægt er að
leigja sér sendibíl í allt niður í fjórar
klukkustundir, sem hentar til dæm-
is fólki sem hefur skipulagt flutn-
inga sína vel. „Fólk er kannski búið
að gera allt klárt fyrir flutning, fá
vini og ættingja með, kemur hing-
að til dæmis snemma á laugar-
dagsmorgni, leigir sendibíl í fjórar
klukkustundir og síðan er öllu lokið
um hádegi,“ segir Egill.
Hægt er að leigja sendibíl í fjórar
klukkustundir, átta klukkustundir,
einn sólarhring eða lengur. Fimm
stærðir af bílum eru í boði og er
miðað við flutningsrými í rúmmetr-
um: 2,5 rúmmetra, 3,6 rúmmetra,
6,8 rúmmetra, 8,3 rúmmetra og 10
rúmmetra.
„Þessi stærsti, 10 rúmmetra, er 5
metrar að lengd og farangursrým-
ið er 3 metrar. Það er því hægt að
flytja mjög langa hluti í þessum bíl,
til dæmis stór sófasett,“ segir Egill.
Fyrir utan búslóðaflutninga nýta
margir sér þessa þjónustu þegar
þeir til dæmis taka til í garðinum
eða hreinsa úr bílskúrnum:
„Til hvers að vera að útbía heim-
ilisbílinn í einhverju drasli
og fara margar ferðir þegar
hægt er að leigja sendibíl, fara
bara eina ferð og þurfa ekki
að hafa áhyggjur af þrifum á
eftir,“ segir Egill en hann tel-
ur að þessi starfsemi og auk-
in eftirspurn eftir henni sé
hluti af ákveðnum þjóðfélags-
breytingum:
„Þetta er partur af þeirri
þróun að leigja hluti í stað
þess að kaupa allt. Fólk er að
átta sig sífellt betur á því að
það þarf ekki að kaupa alla
hluti sem það notar.“
Deildin „Sendibílar til
leigu“ er jafnframt hluti af
stóraukinni áherslu Brim-
borgar á bílaleigu sem Egill
segir að hafi byrjað strax eft-
ir hrun. Rekur Brimborg Ís-
landsdeildir bílaleignanna
Thrifty og Dollar, sem eru
bandarískar að uppruna. Í
gegnum þessar leigur, sem
til dæmis bandarískir ferða-
menn nýta sér mikið, koma
sendibílarnir sem nýtast
í deildina „Sendibílar til
leigu“.
„Það eru nú komnir 1.100 bílar
í bílaleiguflotann okkar en vöxtur-
inn í bílaleigunni hefur verið 30–
50% á ári,“ segir Egill. Sendibílarn-
ir til leigu eru af gerðunum Ford og
Citroën og brátt bætast Peugeot-
bílar í flotann þar sem Brimborg
hefur nýlega tekið yfir Peugeot-
umboðið. Segir Egill stefnt að
því að fjölga
tegundunum í framtíðinni enda er
ávallt markmið að bjóða sem mesta
fjölbreytni í þessari þjónustu.
Á vefnum sendibilartilleigu.is er
að finna ítarlegar upplýsingar um
þjónustuna, verð og svo framveg-
is. Þar er jafnframt hægt að panta
leigu á sendibíl. n
Sendibílar til leigu:
Frá hægri: Egill Jóhannsson
forstjóri, Sebastian Jonasz
Stencel flotaumsjónar-
maður, Hjörtur Jónsson
flotastjóri. Myndir Sigtryggur Ari