Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Qupperneq 23
Vikublað 12.–14. júlí 2016 Kynningarblað - Flutningaþjónusta 7
KG Sendibílar: Flutningar
á Akureyri og um allt land
K
G Sendibílar er lítið flutn-
ingafyrirtæki sem þó sinnir
fjölbreyttum og umfangs-
miklum flutningum. Fyrir-
tækið er staðsett á Akureyri
og sinnir jöfnum höndum búslóða-
flutningum fyrir bæjarbúa og verk-
efnum fyrir fyrirtæki. KG Sendibílar
annast flutninga fyrir fólk og fyrir-
tæki hvert á land sem er, ef á þarf að
halda, og mörg dæmi eru um að fyr-
irtækið flytji til dæmis búslóðir milli
Reykjavíkur og Akureyrar. KG Sendi-
bílar eru í eigu feðganna Kristjáns
Gunnþórssonar og Gunnþórs Krist-
jánssonar og hefur verið starfandi í
áratugi:
„Pabbi er búinn að vera í þessu
síðan 1968. Þetta er að smella í
hálfa öld og hann er enn að, karl-
inn, orðinn 71 árs,“ segir Gunnþór
Kristjánsson en hann og faðir hans
sjá um allan akstur fyrirtækisins,
en bæta við afleysingabílstjórum ef
þeir fara í frí:
„Við erum aldrei báðir í fríi á
sama tíma,“ segir Gunnþór en þeir
feðgar vinna á öllum tímum, bara
eftir þörfum hverju sinni: „Við erum
á vaktinni allan sólarhringinn og
það er ekkert heilagt í þeim efnum.“
KG Sendibílar hafa til um-
ráða einn stóran vöruflutninga-
bíl, kassabíl af gerðinni Mercedes
Benz, með vörulyftu, og síðan
sendibíl. Vegna vaxandi umsvifa
stefna þeir á að kaupa þriðja bílinn
og ráða bílstjóra.
Sem fyrr segir sinna KG Sendi-
bílar margvíslegri þjónustu fyrir
fyrirtæki auk búslóðaflutninga og
annarrar flutningaþjónustu fyrir
heimili og einstaklinga:
„Við dreifum til dæmi græn-
meti fyrir Mata í alla skóla og leik-
skóla á Akureyri og á veitingastaði
í bænum. Í grænmetisflutningana
notum við sendibílinn. Síðan not-
um við kassabílinn og vörulyftuna
í þjónustu við Eimskip á Akureyri
sem við dreifum vörum fyrir. Enn
fremur dreifum við öllu fyrir Svefn
og heilsu Akureyri, Húsgagnahöll-
ina á Akureyri og Rúmfatalagerinn
Akureyri,“ segir Gunnþór.
KG Sendibílar sinna öllum
beiðnum um flutninga þrátt fyr-
ir annir og þeir sem hafa áhuga á
að nýta sér þjónustu fyrirtækisins,
hvort sem það eru einstaklingar eða
fyrirtæki, geta haft samband í síma
892 3033 eða sent fyrirspurn á net-
fangið kgsendibilar@internet.is n
Geymsluleiga á hagstæðu verði
Þ
að færist sífellt í vöxt að
fólk geymi hluta af sínum
eigum í geymslum utan
heimilisins en breytt þjóð-
félagsþróun hefur auk-
ið mjög þörfina fyrir geymslu-
pláss. „Geymslur til leigu“ er lítið
fjölskyldufyrirtæki sem hefur yfir
að ráða 300 geymsluplássum í
nokkrum stærðum og þar er hægt
að geyma eigur sínar til skemmri og
lengri tíma á hagstæðu verði. Einn
eigandi fyrirtækisins er Sigurð-
ur Kiernan og segir hann í samtali
við DV að ástæðurnar fyrir aukna
geymsluþörf séu nokkrar:
„Krafa er um meiri sveigjan-
leika á geymslustærð en þeirri sem
fylgir íbúðum. Fólk á fleiri hluti en
áður og geymslur sem fylgja hús-
næði duga oft ekki til. Því er betri
kostur að taka hentuga geymslu á
leigu þegar þörf er á en að fjárfesta
í stærra íbúðarhúsnæði. Einnig er
hagstæðara að taka geymslurými á
leigu en að nota dýrmæta íbúðar-
fermetra undir geymslu á hlutum
sem sjaldan eru í notkun.“
Um helmingur af viðskipta-
vinum Sigurðar eru með geymsl-
ur í langtímaleigu og geta þeir
viðskiptavinir fært sig á milli
geymslustærða ef þörfin breytist en
reynt er að koma til móts við þarfir
viðskiptavina eins og hægt er.
„Flestir viðskiptavinir fyrirtæk-
isins eru einstaklingar en fyrir-
tæki hafa einnig uppgötvað þann
sveigjanleika og þægindi sem
fólgin eru í því að geta geymt lager
eða bókhaldsgögn og önnur skjöl,
sem sjaldan þarf að fletta upp í,
hjá okkur. Þeir viðskiptavinir sem
eru í skammtímaleigu eru flestir
einstaklingar sem eru að losa hús-
næði og þurfa að geyma búslóð
tímabundið með hagkvæmum og
þægilegum hætti. Viðskiptavin-
ir okkar hafa aðgangskóða að hús-
inu og geta komist í geymslur sín-
ar hvenær sem er sólarhrings sem
er mikill kostur þar sem þarfir hvers
og eins eru mismunandi,“ segir Sig-
urður.
„Geymslur til leigu“ bjóða upp
á geymslur af mismunandi stærð-
um, þær minnstu eru 1,5 fermetr-
ar og þær stærstu 10 fermetrar en
sú stærð getur tekið við búslóð úr
4 herbergja íbúð. Lofthæðin í öll-
um geymslunum er um 2,7 metr-
ar. Leiga á geymslu kostar frá 7.490
krónum á mánuði en langtímaleiga
getur verið mjög hagstæð því ef eitt
ár er staðgreitt er veittur 20% af-
sláttur af verði.
Geymslurnar eru staðsettar að
Smiðjuvegi 4, græn gata, og segir
Sigurður þá staðsetningu vera hag-
stæða fyrir marga:
„Mörgum finnst gott að hafa sín-
ar geymslur nálægt sér og Smiðju-
vegurinn er nokkuð miðsvæðis á
höfuðborgarsvæðinu. Meirihluti
viðskiptavinanna eru líka búsett-
ir í Kópavogi, austurbæ Reykjavík-
ur, Breiðholti eða Garðabæ, þó að
vissulega sé hér líka fólk úr öðrum
hverfum með geymslu í leigu, og
jafnvel fólk af landsbyggðinni.“
Við víkjum aftur talinu að þeim
þjóðfélagsbreytingum sem valda
þessari auknu þörf fyrir geymslu-
pláss utan heimilisins og Sigurð-
ur fer aðeins dýpra ofan í það við-
fangsefni:
„Ein skýringin er sú að fólk er
að verða sjálfstæðara, ekki eins
háð ættingjum og ekki sjálfgefið að
maður geti geymt búslóð eða hluta
af eignum sínum í til dæmis for-
eldrahúsum. Enn fremur er meiri
hraði og meiri hreyfing á þjóðfé-
laginu. Einnig ef fólk fer til dæmis
í nám eða tímabundna vinnu er-
lendis þá þarf að koma búslóðinni
fyrir. Meiri hreyfing á fólki skapar
aukna þörf fyrir geymsluþjónustu.“
Nákvæmar upplýsingar um
verð, leigutíma og stærðir er á
finna á heimasíðu fyrirtækisins,
geymslurtilleigu.is. Þar er einnig
hægt að bóka geymslupláss. Einnig
er gott að hafa samband í síma 414
3000 með fyrirspurnir. n
Geymslur til leigu: Þjónusta sem mætir breyttri þjóðfélagsþróun