Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Page 29
Vikublað 12.–14. júlí 2016 Lífsstíll 21
Rauðarárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18
uppbod.is
Louisa Matthíasdóttir
Jóhannes S. Kjarval
Kristján Davíðsson
Sumarperlur
Vefuppboð nr. 228
Einstakar perlur eftir
íslenska myndlistarmenn
Uppboðinu lýkur 13. júlí
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
Útsala
Afsláttur f
umgjörðum
20-80%
Grillsalat með kjöti
og kóríander
Samsetning sem getur ekki klikkað
S
alöt eru eins og ljóð – í þeim
er rými fyrir endalausa sköp-
unargleði, og þau eru jafn-
misjöfn og þau eru mörg.
Ég hef lengi verið hrifin
af grilluðum ávöxtum í salati – allar
götur síðan ég lærði að gera gómsætt
steinseljusalat með grilluðum ferskj-
um, halloumi-osti og marokkósk-
um kryddum. Það má segja að sal-
atið sem ég kynni nú til sögunnar sé
óskilgetið afkvæmi þess – þó að það
sé með allt öðru innihaldi og asísku
ívafi. Samspil ólíkra þátta er þó æði
svipað – hér er ferskleikinn í salati,
tómötum og kryddjurtum, súrsætt
bragð kemur frá grilluðu ávöxtun-
um og seltan frá ostinum. Salatið er
svo kórónað með dýrindis nauta-
kjöti, framfillé, sem ég sótti til pilt-
anna í Kjöti & fiski á Bergstaðastræti
og skellti á grillið. n
Salat fyrir fjóra
Grænmetið:
Iceberg-salat – 1 höfuð
Cherry-tómatar – 1 askja
Vænt knippi af ferskum kóríander
n Skerið salat og tómata.
Klippið kóríander niður og setjið allra
síðast á salatið áður en það er borið
fram.
Á grillið:
5 apríkósur, skornar í helminga
1 pera, skorin í fleyga
1 Halloumi-ostur – skorinn í sneiðar
Nautaframfillé – um 500 g
n Setjið ávextina saman í skál og
hellið slettu af ólífuolíu yfir. Grillið þar
til ávextirnir hafa mýkst og fengið
fallegar grillrendur.
n Grillið ostinn báðum megin þar til
grillrendur eru vel sjáanlegar. Skerið
í bita og látið kólna lítillega áður en
þeir eru settir út í salatið.
n Nuddið kjötið með 1 msk. Worche-
stershiresósu og 2 msk. ólífuolíu. Þerr-
ið mestu bleytuna af. Piprið vel með
svörtum pipar og saltið. Grillið við háan
hita í 3 mínútur á hvorri hlið. Færið
kjötið á efri grind grillsins, eða í minni
hita, og grillið í 5 mínútur í viðbót.
Látið kjötið sitja á bretti í 10 mínútur
áður en það er skorið í þunnar sneiðar.“
Sósan
5 msk. rapsolía
1 msk. sesamolía
5 msk. sojasósa
4 msk. hrísgrónaedik
3 msk. púðursykur
1 stk. hvítlauksrif
2,5 cm bútur engifer
1 msk. maísmjöl
2 msk. vatn
n Sjóðið allt innihald, nema maísmjöl
og vatn, saman í potti við miðlungs-
háan hita. Hrærið saman maísmjöl
og vatn og hellið út í blönduna til að
þykkja. Kælið áður en sósunni er hellt
yfir salatið.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Tilbúið!
Salatið er
fallegt á
grunnum
diski eða
fati.
Komið
á diskinn
Salat eins og
þetta er frábær mál-
tíð á björtu sumarkvöldi.
MyNdIR RaGNHEIðuR EIRíKSdóTTIR