Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Qupperneq 30
Vikublað 12.–14. júlí 201622 Menning
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Úr listheiminum
n Sala á tónlist í Bandaríkjun-
um á fyrri helmingi ársins er sú
versta í 25 ár, eða frá því að fyr-
irtækið Soundscan hóf mæl-
ingar á öllum útgáfuformum
árið 1991. Sala á geisladisk-
um og plötum á stafrænu formi
minnkaði umtalsvert, en sala
vínylplatna jókst lítillega. Mesta
aukningin fólst þó í notk-
un á streymisþjónustum, og
streymdu tónlistarunnendur
58,7 prósent meiri tónlist heldur
en á fyrri hluta árs.
n Hinn margverðlaunaði og
virti íranski kvikmyndagerðar-
maður, Abbas Kiarostami, lést
úr krabbameini
í upphafi síð-
ustu viku,
76 ára að
aldri. Hann
var ein
sterkasta
röddin í
íranskri kvik-
myndagerð eft-
ir íslömsku byltinguna og kom
Íran á landakort kvikmynda-
heimsins þegar hann hlaut
gullpálmann, aðalverðlaunin
á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es árið 1997, fyrir kvikmynd
sína Taste of the Cherry. Síðasta
mynd leikstjórans kom út árið
2012.
n Snjallsímatölvuleikurinn
Pokémon Go, sem kom út í síð-
ustu viku, á 20 ára afmæli fyr-
irtækisins, virðist ætla að verða
algjör bylting í tölvuleikjum, en
símaeigendur þurfa að ferðast
um í raunheimum til að leita
uppi Pokémon-verur og fanga
þær með símanum. Leikurinn,
sem er ókeypis, fór beint á topp-
inn í App-verslunum, en hægt
er að kaupa ýmsan aukabúnað,
svo sem GPS-staðsetningartæki,
sem lætur spilarann vita hvenær
hann er í nágrenni við Poké-
mon. Aðeins tveimur dögum
eftir útgáfu leiksins hafa notend-
ur verið beðnir um að halda sig
frá lögreglustöð í Northern Ter-
ritory í Ástralíu, en þar leyndist
Pokémon-vera sem margir
spilarar vildu fanga.
Sex listamenn velta fyrir sér nautninni í sýningu á Akureyri og í Hveragerði
S
ex myndlistarmenn fást á
ólíkan hátt við hugmyndir
um nautn og hlutverk henn-
ar í tilveru nútímamannsins í
sýningu sem var opnuð á Ak-
ureyri í júní. Sýningin er samstarfs-
verkefni Listasafnsins á Akureyri og
Listasafns Árnesinga í Hveragerði, en
þar verður hún opnuð síðar á árinu.
DV fékk Hlyn Hallsson, safnstjóra
og annan sýningarstjóra sýningar-
innar, til að leiðbeina lesendum um
Nautn – Conspiracy of pleasure.
Nautn sem verður að fíkn
„Nautn er mjög fjölþætt hugtak.
Nautn getur verið andleg eða líkam-
leg, og hver og einn upplifir hana
á sinn hátt. Nautnirnar eru því jafn
ólíkar og manneskjurnar sem upplifa
þær,“ segir Hlynur.
„Listamennirnir eru líka mikið að
velta fyrir sér hvenær nautnin verð-
ur að óeðli. Nautnin að njóta matar
er eitt það fyrsta sem manni dettur
í hug. Það sem einum finnst mjög
gott í mat og leyfir sér finnst öðrum
viðbjóður, til dæmis steiktir sniglar
eða eitthvað. En það er líka spurn-
ing hvenær nautnin að setjast nið-
ur að borða góðan mat verður að
fíkn og fólk hættir að geta stoppað
sig af, þetta er líka þekkt varðandi
kynlífsnautn,“ segir Hlynur og bend-
ir á hvernig Birgir Sigurðsson skoðar
mörkin milli matarnautnar og átfíkn-
ar í einu verka sinna.
„Jóhann Ludwig Torfason velt-
ir svipuðum spurningum fyrir sér
í tengslum við húmor. Hvenær er
nautnin að skemmta sér farin yfir
strikið, hvernig er hægt að tak-
ast á við ýmis tabú með húmorinn
að vopni og hvað má maður segja?
Svörin eru auðvitað persónubund-
in, þannig taka sumir andköf þegar
þeir lesa textana í verkum hans, öðr-
um finnst þetta bara fyndið eða ekk-
ert tiltökumál,“ útskýrir hann.
„Eygló Harðardóttir er svo að
vinna meira á tilfinningalegum nót-
um, um efni og áferð, hér er það
nautnin að meðhöndla efni, nautnin
að snerta eitthvað og það hvernig það
birtist okkur. Hún er líka að velta fyr-
ir sér fegurðinni í afgöngunum, í því
sem er ofaukið og því sem hefur verið
hent. Maður sér yfirleitt ekki fegurð í
því, en ef maður skoðar það nánar er
hægt að upplifa einhverja nautn í því
líka. Helgi Hjaltalín er svo á allt öðr-
um og samfélagslegri nótum. Í verk-
um sínum veltir hann fyrir sér hvern-
ig það sem er göfugt markmið, eða
nautn, fyrir einn einstakling geta aðr-
ir séð sem hryðjuverk, óeðli eða eitt-
hvað slíkt.“
Hneykslaðir Bandaríkjamenn
Hlynur segir myndlistina vera hent-
uga til að fást við margrætt fyrirbæri
á borð við nautn, enda séu myndir og
myndlistarverk opin fyrir ótal ólíkum
túlkunarmöguleikum. Eins og nautn-
„Hér er það nautn-
in að meðhöndla
efni, nautnin að snerta
eitthvað og það hvernig
það birtist okkur.
Happy horny
monsters
eftir Guðnýju Kristmannsdóttur
„Guðný hefur mikið verið að velta fyrir sér
kynferðislegri nautn, frjósemi og öðru tengdu því.
Þessar kanínumyndir eru unnar á mjög hráan hátt,
ein myndin máluð á plast sem er strengt beint
á blindramma og hin unnin á ómálaðan striga.
Mörgum finnst þessi verk svolítið gróf, kannski
vegna þess að það sjást sköpin á kanínunni.
Kanínur eru dýr sem okkur þykir yfirleitt lítil, sæt
og mjúk. Það er hins vegar oft talað um að „fjölga
sér eins og kanínur“ og kanínur hafa verið notaðar
í kynlífsiðnaðinum sem tákn fyrir einhvers konar
nautn, Playboy-kanínan er til að mynda orðin að
sérstöku vörumerki. Í þessum málverkum er ein
kanínan hangandi uppi á annarri löppinni, svolítið
eins og á kjötmarkaði, og í augum hinnar er
eitthvað geðveikislegt. Mér finnst ákveðin fegurð í
þessum verkum en líka eitthvað ógnvænlegt.“
Á mörkum nautnar og óeðlis
MyNd daNíel StarraSoN
MyNd daNíel StarraSoN
leiðsögn Hlynur
Hallsson er sýn-
ingarstjóri Nautn
– Conspiracy of
pleasure ásamt
Ingu Jónsdóttur,
safnstjóra
Listasafns
Árnesinga.
MyNd daNíel
StarraSoN
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is