Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Síða 31
Vikublað 12.–14. júlí 2016 Menning 23
OrkupOkinn
Allt sem
þú þArft
HOll
Og góð
OrkA
Er bíllinn klár fyrir
sumarið?
Við einföldum líf bíleigandans
Ferðabox
Reiðhjóla-
grindur
Þverslár
Running made easy
eftir Helga Hjaltalín Eyjólfsson
„Hér hefur Helgi útbúið ljósaborð, sem gæti verið vinnuborð skiltagerðarmannsins eða
eitthvað slíkt. Þetta eru falleg skilti í „retro“-stíl, sem minna á bílamerkingar eða eitt-
hvað svoleiðis. Þegar maður fer að skoða hvaða orð skiltin innihalda sér maður að þetta
eru ensk uppnefni á ýmsum þjóðfélagshópum: „Paki“, „Redneck“ og svo framvegis. Sum
orðin eru algengari en önnur, sum er eðlilegt að segja í ákveðnu samhengi á meðan þau
eru algjör bannorð í öðrum. Það er kannski ekki augljós tenging við nautn í þessu verki,
en það getur kannski falist ákveðin nautn í því að gera falleg skilti, að gera hlutina eins
fallega og vel og maður getur. Í auglýsingaiðnaðinum er fólk að vinna vinnuna sína eins
vel og það getur, en getur einnig oft verið að bera út boðskap sem er viðbjóður. Það er
hægt að yfirfæra þetta á margt. Þú færð nautn út úr því að gera eitthvað fallegt en síðan
ertu í raun að hanna kjarnorkusprengju eða útrýmingarbúðir.“
Torso, eða
flugvéla-
teikningar
eftir Önnu Hallin
„Torso, eða flugvélateikningar,
eru skúlptúrar úr steinleir og
glerungum. Leirinn er brenndur
tvisvar og þar með nær lista-
konan fram mismunandi áferð,
glansandi og grófari. Hún verður
nánast eins og húð eða eitthvað
svoleiðis. Sumir halda kannski
að þetta hafi mistekist, þetta sé
sprungið og hrjúft, en þetta eru
áhrif sem hún vill ná fram.
Maður getur séð geirvörtur,
varir, eða önnur nautnarleg form í
þessum skúlptúrum. Þannig getur
manni þótt þetta mjög fallegt en
síðan getur manni líka þótt þetta
óhugnanlegt, því þetta gæti
minnt mann á einhvers konar
ofvöxt, eða afmyndaða líkams-
parta. Þetta gætu verið sveppir
eða veirusýking, sem hefur verið
stækkuð upp. Þá er þetta alls ekki
nautn heldur eitthvað skrýtið og
óeðlilegt.“
Á mörkum nautnar og óeðlis
in sjálf hefur bakgrunnur áhorfand-
ans – samfélagslegur, menningarleg-
ur og trúarlegur – afgerandi áhrif á
hvernig hann upplifir verkið.
„Hingað hafa komið inn Banda-
ríkjamenn sem hafa sopið hveljur
yfir verkum Helga, þar sem þeim hef-
ur fundist hann hafa verið að upp-
hefja hryðjuverkamenn ISIS. Hann
er alls ekki að gera það, en hann er
að spila inn á það hvernig við lítum
á hetjur og hvernig þær koma fyr-
ir í fjölmiðlum. Það hefur líka kom-
ið fólk sem hefur fundist þetta alveg
rosalega ljótar myndir og spurt hvort
þetta sé ekki bannað börnum. En
það er skemmtilegt að segja frá því
að börn eru sjaldnast viðkvæm fyr-
ir þessu, til dæmis fyrir Kúk-og-piss-
slönguspilinu eftir Jóhann, þar sem
pissubuna og rosaleg kúkaslumma
koma í staðinn fyrir stiga og slöngur.
Annaðhvort finnst krökkunum þetta
mjög fyndið – kúkur og piss! – eða
þau pæla bara ekkert í því. Afstaða
okkar og viðhorf eru mótuð einhvern
tímann á lífsleiðinni. Það er auðvitað
eitt af stóru viðfangsefnunum í sýn-
ingunni: hver er það sem mótar okk-
ur og hvernig sjáum við heiminn?“ n
Mynd daníel StarraSon
Geneviéve
Elverum fallin frá
Listakonan á bakvið Woelv og Ô Paon látin aðeins 35 ára gömul
K
anadíska tónlistarkonan og
teiknimyndasagnagerðar-
konan Geneviéve Elverum er
látin, 35 ára að aldri. Hún lést
laugardaginn 9. júlí eftir baráttu við
krabbamein í briskirtli. Geneviéve
gaf út tónlist undir nöfnunum Woelv
og Ô Paon, en hún lék á sjö tónleikum
á Íslandi árin 2005 og 2006. Þá sýndi
hún teiknimyndir sínar á sýningunni
Níunni í Listasafni Reykjavíkur.
Hún lætur eftir sig eiginmann og
ársgamalt barn. Eiginmaður henn-
ar, bandaríski tónlistarmaðurinn
Phil Elverum, sem hefur gefið út tón-
list undir nöfnunum The Micropho-
nes og Mount Eerie, sendi frá sér til-
kynningu á sunnudag þar sem hann
þakkaði stuðninginn, en aðdáend-
ur og vinir hjónanna höfðu lagt lóð
á vogarskálarnar eftir að ljóst varð að
veikindin væru að sliga fjölskylduna
fjárhagslega. n
kristjan@dv.is
afkasta-
mikil
listakona
Geneviéve
Elverum var
afkastamikil
tónlistarkona
og teikni-
myndasagna-
skáld.