Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 32
Vikublað 12.–14. júlí 201624 Menning
s: 426 5000 - booking@bbkefairport.is - bbkeflavik.com
Ertu á leið í flug?
Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á
flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu
Láttu fara
vel um þig
nóttina fyrir
eða eftir flug
og gistu hjá
okkur
Ný rúm frá RB
rúm
Poolborð með
borðtennisborði
Ásamt
því sem
þarf til
að sPila
Pool
verð:
75.514 kr.
180x90 cm.
Pingpong.is - Suðurlandsbraut 10, Reykjavík - Sími 568 3920 & 897 1715
Á
dögunum fjallaði DV um til-
raunir myndlistarmannsins
Ólafs Ólafssonar í fótbolta-
búningahönnun, en hann
hannaði sína eigin landsliðs-
búninga fyrir leik Íslands og Frakk-
lands á Evrópumeistaramótinu í
knattspyrnu, bæði bláan aðal- og
hvítan varabúning.
Hann er þó ekki eini íslenski lista-
maðurinn sem hefur þróað sína
eigin keppnisbúninga samhliða
Evrópumeistaramótinu. Steinunn
Gunnlaugsdóttir myndlistarkona
framleiddi sérstaka „krankleikabún-
inga“ í íslensku fánalitunum til að
kynna Krankleikana sem fara fram
í haust. Leikarnir eru hluti af The
OH-project sem er samstarfsverk-
efni fimmtán lista- og fræðimanna
hvaðanæva að úr heiminum, sem
fer fram í og er innblásið af gömlu
NATO-herstöðinni að Ásbrú.
Krankleikarnir eru verkefni þar
sem Steinunn veltir upp og bland-
ar saman hugmynd-
unum um leika
og sjúkdóma, en
hugtakið krank-
leikar, sem merk-
ir yfirleitt sjúkdóm-
ar, má einnig skilja „sem
stóra keppni í veikind-
um og sjúkleika – eða
leikvang fyrir sjúkar
keppnir,“ eins og seg-
ir í kynningartexta
verkefnisins. „Í hörð-
ustu og berstrípuð-
ustu útgáfu þess veruleika
sem við erum fædd inn í, í leik upp
á líf og dauða, falla allir sáttmálar
niður, þar gilda engar reglur og að-
eins einn skilningur á yfirburðum
hins hæfasta: sá sem lifir af hverju
sinni – burtséð frá því hvort hann
sé sá hraustasti, sterkasti, klárasti,
hæfileikaríkasti. Sá sem lifir lifir. Og
sá sem lifir vinnur – og heldur áfram
í keppninni.“
Krankleikabúningar Steinunn-
ar eru bláir en framan á maganum
og aftan á bakinu eru stórir sérhljóð-
ar, þeir sömu og við gefum frá okkur
þegar við engjumst um af sársauka –
A, Á, Æ og Ó. „Þetta eru bókstafir hins
íslenska sársauka,“ útskýrir Steinunn.
„Það sem sameinar manneskj-
ur er sársauki – nánast án nokkurrar
undantekningar (þó eru til heilkenni
og lamanir sem gera manneskjur
ónæmar fyrir sársauka, en það fólk
verður ekki oft langlíft). Sársauki fer
þvert á allar hugmyndir um þjóð-
ir og landamæri – og á tegundir líka.
En það hvaða bókstafi mannskepn-
urnar nota til að skrá niður hvernig
sársaukahljóð hljómar er mismun-
andi eftir hverju tungumáli. Bókstaf-
ir sársaukans geta því réttilega þjónað
hlutverki sameiningartákns bókstafs-
trúarmanna, eflt keppnisandann og
hvatt til nýrra dáða á hinum gríðar-
stóru landamæralausu Krankleikum,“
segir Steinunn. n
Bókstafir sársaukans sem sameiningartákn
n Steinunn Gunnlaugsdóttir hannaði sérstaka búninga fyrir keppni í krankleikum n „Sá sem lifir vinnur“
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Sársaukinn sameinar okkur ... Steinunn hefur hannað búninga sem leggja áherslu á
hið sammannlega – sársaukann.
Líflegt sendiráð
útópísks smáríkis
Tónleikar og viðburðir í Vesturbugt í allt sumar
V
öruflutningagámum og vöru-
brettum hefur nú verið komið
fyrir í Vesturbugt við Reykja-
víkurhöfn og verður þar boð-
ið upp á viðburði og uppákomur
undir merkjum „Sendiráðs Rockall“
í allt sumar.
Rockall er viðburðaröð og
útópískur samræðuvettvangur um
nýtt samfélag á öreyjunni Roc-
kall í miðju Atlantshafi. Markmið-
ið er að skapa umræður um hvernig
nýtt samfélag myndi líta út: hvern-
ig væri tæknilega hægt að gera líf á
eyjunni mögulegt, sjálfbært og fýsi-
legt, hvernig stjórnskipulagið yrði
og efnahagskerfið skipulagt. „Þegar
fólk kemur saman og ræðir svona
spurningar þá kvikna ýmsar nýjar
hugmyndir. Við erum alltaf svo föst
í að hugsa innan ákveðins kassa og
kerfis,“ segir René Boonekamp, einn
skipuleggjendanna.
Frá því að „sendiráðið“ var opnað
fyrir tveimur vikum hafa verið haldn-
ir tónleikar auk fyrirlestra og nám-
skeiða um ýmsa anga sjálfbærrar til-
veru. Rockall verður opið frá 11 til
20 frá miðvikudögum til sunnudaga
í sumar, og verður boðið upp á sýn-
ingar, vinnustöð, leiktæki fyrir börn
og ýmsar veitingar.
Næsti viðburður verður á mið-
vikudag, þegar umræður fara fram
um stjórnarfar, íslensk stjórnvöld,
Brexit og hvernig stjórnvaldi væri
fýsilegt að koma á fót ef byrjað væri
á upphafsreit í dag. Þá fara fram tón-
leikar á svæðinu á föstudag, þar sem
Sigtryggur Baldursson og Melodica
Festival taka höndum saman.
Frítt er inn á alla viðburði í
sendiráði Rockall, en aðstandend-
ur verkefnisins hvetja fólk til að
leggja Karolina fund-söfnun hóps-
ins lið á karolinafund.com/project/
view/1429. n kristjan@dv.is
Nýtt samfélag Lítið þorp hefur
verið byggt úr gámum og vörubrettum við
Reykjavíkurhöfn og fara þar fram tónleikar
og aðrir viðburðir í sumar.