Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 38
Vikublað 12.–14. júlí 201630 Fólk
Sérbakað
fyrir þig
Allt fyrir fermingar
tertur, heitir réttir,
brauðtertur, snittur
og margt fleira.
Sími: 483 1919 - almarbakari@gmail.com Hveragerði og Selfossi
Teknar fyrir búðarhnupl
B
úðarhnupl er of algeng
iðja. Ætla mætti að forríkar
stjörnur þyrftu ekki að grípa
til þess
að stinga á sig vörum heldur hefðu
efni á að borga fyrir þær. Þó nokkur
dæmi eru samt um að stjörnur hafi
verið staðnar að verki og þjófnaður
þeirra komist í heimsfréttir. n
Winona
Ryder
Leikkonan Wynona
Ryder komst í
heimsfréttirnar
árið 2001 þegar
hún sást á
öryggismyndavél
gera tilraun til
að stela dýrum
fötum. Hún
sleit verðmið-
ann af þeim
og setti þau í
innkaupapoka
með vörum sem
hún hafði þegar
borgað fyrir. Hún
var handtekin og
gert að greiða sekt
og sinna samfélags-
þjónustu. Ryder sagði
seinna að á þessum
tíma hefði hún þjáðst
af þunglyndi og
verið á róandi lyfjum
sem hefðu ruglað
dómgreind hennar.
Beatrice Dalle
Franska stjarnan úr Betty Blue var nöppuð í verslun í París fyrir að stela afar dýrum skart-
gripum. „Ég elska skartgripi,“ var skýringin sem hún gaf. Hún fékk sex mánaða skilorðsbund-
inn dóm. Hún hefur einnig verið handtekin fyrir líkamsárás og að vera með eiturlyf í fórum
sínum. Í viðtali fyrr á þessu ári sagðist hún á sínum yngri árum hafa unnið í líkhúsi og hefði
eitt sinn þegar hún var í eiturlyfjavímu borðað mannseyra.
Hedy Lamarr
Hedy Lamarr var skær stjarna í
Hollywood á árum seinni heims-
styrjaldar og árin þar á eftir og
þótti ein fegursta kona heims.
Hún var einnig merk vísindakona
og átti þátt í að þróa tækni við
flutning útvarpsbylgja. Árið 1966
var hún handtekin fyrir búðarhnupl
en ákæran var felld niður. Árið 1991
var hún aftur handtekin fyrir að stela
smáhlutum úr apóteki. Sú ákæra var
einnig felld niður eftir að leikkonan hét því
að stela aldrei aftur.
Lindsay
Lohan
Lindsay Lohan hóf feril
sinn sem barnastjarna en
hefur á seinni árum komist
ítrekað í fréttir vegna
lífsstíls sem telst ekki
beint til eftirbreytni. Hún
var eitt sinn dæmd í 120
daga fangelsi fyrir að stela
hálsmeni sem metið var á
2.500 dali úr verslun í Los
Angeles.
Farrah
Fawcett
Farrah Fawcett átti
farsælan feril í sjónvarpi
og kvikmyndum. Árið
1970 var hún tvisvar
handtekin fyrir
að stela fötum úr
hátískuverslun. Hún
gaf þá skýringu að
hún hefði viljað
skila fötum
sem hún hafði
keypt en versl-
unarfólkið
ekki tekið
við þeim og
þess vegna
hefði hún
tekið málið í
eigin hendur
og valið sér ný
föt. Fawcett
var gert að
greiða sekt í bæði
skiptin.