Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Síða 6
Helgarblað 19.–22. ágúst 20166 Fréttir
R
íkisendurskoðun vinnur
að úttekt á allri eignasölu
Landsbankans á árunum
2010–2016. Ákveðið var að
ráðast í hana vegna beiðna
frá einstaka þingmönnum, Lands
bankanum og Bankasýslu ríkisins
um að hún tæki eignasöluna til
skoðunar í kjölfar Borgunarmálsins.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands
bankans, segist ekki eiga von á öðru
en að niðurstaða Ríkisendurskoðun
ar verði sú að alltaf hafi verið farið
eftir reglum og verkferlum bankans.
„Ríkisendurskoðun er endur
skoðandi Landsbankans og bank
inn óskaði eftir að stofnunin færi yfir
sölu á hlutum bankans í Borgun árið
2014. Ríkisendurskoðun taldi rétt
að kanna eignasölu bankans 2010–
2016 og rökstuddi þá ákvörðun með
tilteknum hætti. Það er ekki óeðli
legt að slík skoðun fari fram, meðal
annars vegna umræðu um eignasölu
bankans,“ segir Steinþór í skriflegu
svari til DV.
Gögn afhent í sumar
Stofnunin sendi Bankasýslu ríkisins,
sem fer með 98,2% hlut ríkisins í
Landsbankanum, bréf í maí síðast
liðnum þar sem tilkynnt var að for
könnun hennar á eignasölu bankans
væri lokið. Niðurstaða hennar væri
að ráðast í aðalúttekt og að skýrsla
um hana yrði send Alþingi í nóv
ember. Samkvæmt upplýsingum frá
Ríkisendurskoðun er í stjórnsýslu
úttektinni horft sérstaklega til verk
ferla og reglna við eignasölu og sölu
á eignum sem fóru fram fyrir luktum
dyrum. Reynt verði að svara því
hvort reglur og vinnulag hafi verið í
samræmi við eigendastefnu ríkisins
og til þess fallið að treysta orðspor
bankans og auka hag hans.
„Ástæða úttektar Ríkisendur
skoðunar er sú að stofnuninni bárust
formlegar og óformlegar beiðnir frá
einstaka þingmönnum, Landsbank
anum og Bankasýslu ríkisins um að
stofnunin tæki eignasölu Lands
bankans síðustu ár til skoðunar.
Sumar beiðnirnar beindust einungis
að sölu Landsbankans á eignarhlut
sínum í Borgun en aðrar að eignasölu
almennt óháð sölunni á Borgun,“
segir á vef Ríkisendurskoðunar.
„Stofnunin hefur í sumar óskað
eftir gögnum um eignasölu bank
ans á umræddu tímabili sem bank
inn hefur afhent. Þá má benda á
að í svari til Bankasýslu ríkisins 11.
febrúar síðastliðinn gerði bankinn
allítarlega grein fyrir sölu eigna í
þeim tilfellum sem söluandvirðið
var meira en einn milljarður króna,“
segir Steinþór Pálsson.
Undir smásjánni
Sala Landsbankans á 31,2%
eignarhlut sínum í greiðslukortafyrir
tækinu Borgun hefur vakið mikla
athygli alveg síðan hún var samþykkt
í nóvember 2014. Stjórnendur bank
ans seldu hlutinn í lokuðu söluferli
og án þess að fara fram á hlutdeild í
milljarðagreiðslum sem Borgun bár
ust í júní síðastliðnum vegna yfir töku
Visa Inc. í Bandaríkjunum á Visa
Europe. Bankaráð Landsbankans
ákvað í síðustu viku að höfða mál þar
sem meðlimir þess telja bankann
hafa farið á mis við fjármuni í við
skiptunum. Stjórnendum hans hafi
ekki verið veittar nauðsynlegar upp
lýsingar í aðdraganda sölunnar. Líkt
og kom fram í DV á mánudag þá ligg
ur ekki fyrir hverjum bankinn hyggst
stefna eða hvenær.
Ríkisbankinn seldi 38,6% hlut
sinn í Valitor, samkeppnisaðila Borg
unar, í desember 2014. Stjórnendur
bankans gerðu þá fyrirvara um hlut
deild í þeirri milljarðagreiðslu sem
Valitor fékk í júní vegna Visasam
runans en greiðslukortafyrirtæk
ið var einnig selt í lokuðu söluferli.
Eignir Landsbankans í sölumeðferð
voru í árslok 2009 metnar á alls 64
milljarða króna og 129 milljarða ári
síðar. Samkvæmt svari bankans við
fyrirspurnum Bankasýslu ríkisins,
sem bankinn sendi stofnuninni í
febrúar og Steinþór Pálsson vísar til,
námu eignir í sölumeðferð 12 millj
örðum króna í september í fyrra.
Ríkisendurskoðun kemur einnig
til með að skoða sölu Landsbankans
á eignaumsýslufélaginu Vestia,
75% hlut í fasteignafélaginu Regin,
28% hlut í Framtakssjóði Íslands
og fleiri eignum sem bankinn
seldi á tímabilinu. Vestia var
einnig selt í lokuðu ferli árið 2010
en félagið átti þá eignarhluti í
alþjóðlega sjávarútvegsfyrirtækinu
Icelandic Group, Húsasmiðjunni,
Vodafone á Íslandi, Skýrr, Teymi
og Plastprent. Félagið var selt til
Framtakssjóðs Íslands, sem var
þá að mestu eða öllu leyti í eigu
lífeyrissjóða, fyrir 19,5 milljarða
króna og 30% hlut í sjóðnum. Bréfin
í fasteignafélaginu Regin voru seld
með almennu hlutafjárútboði og
skráningu félagsins í Kauphöll árið
2012. Söluverðmætið nam 7.895
milljónum króna. n
HVAR ER SÓSAN?
Það er aðeins eitt sem er ómissandi í pítu og það er pítusósan.
Kannski pítubrauðið líka.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Ríkisendurskoðun skoðar
eignasölu Landsbankans
n Vinnur úttekt á allri eignasölu bankans frá 2010 n „Ekki óeðlilegt að slík skoðun fari fram“
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Bankastjórinn Steinþór Pálsson segist
öruggur um að niðustaða Ríkisendur-
skoðunar verði á þá leið að bankinn hafi
staðið rétt að eignasölu sinni. Mynd LandsBankinn
Umdeild sala Stjórnendur Landsbankans
hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir Borg-
unarsöluna. Skýrsla Ríkisendurskoðunar
verður birt Alþingi tveimur árum eftir að
salan gekk í gegn. Mynd siGtryGGUr ari
„Það er ekki
óeðlilegt að
slík skoðun fari
fram, meðal annars
vegna umræðu um
eignasölu bankans.