Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 11
Helgarblað 19.–22. ágúst 2016 Fréttir 11
Eyesland . Gleraugnaverslun . Glæsibæ, 5. hæð . Sími 577 1015 . www.eyesland.is
Mikið úrval af fallegum sólgleraugum.
Cocoa Mint
Líttu vel út í sumar!
Helgi Hrafn talar á við fimm þingmenn
n Hverjir létu mest fyrir sér fara? Hverjir töluðu minnst?
Ögmundur Jónasson
Ræðufjöldi: 687
Ræðutími: 2.419 mínútur (40,3 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 6
Fyrirspurnir og skýrslur (1.
flutningsmaður): 25
Ögmundur hefur setið á
þingi frá árinu 1995, eða rúmt
21 ár, lengst af sem þingmaður
Vinstri grænna eða frá 2003. Gegndi
nokkrum ráðherraembættum í tíð
ríkisstjórnar Samfylkingar og
Vinstri grænna. Ögmundur var
formaður BSRB í 21 ár og þótti
því viðeigandi að tilkynna um
brotthvarf sitt af þingi á verkalýðs-
daginn 1. maí síðastliðinn. Hann sagði líf
vera eftir Alþingi en það verði öðruvísi með
önnur og ekki síður gefandi verkefni.
Framsóknarflokkur:
Frosti Sigurjónsson
Ræðufjöldi: 388
Ræðutími: 994 mínútur (16,5 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 6
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutningsmaður): 1
Frosti var kjörinn á þing árið 2013 og er formaður efnahags- og
viðskiptanefndar. Hefur getið sér gott orð sem þingmaður á
kjörtímabilinu og kom því mörgum á óvart þegar hann tilkynnti
í byrjun júní að hann ætlaði að láta gott heita. Ekki er vitað hvað
tekur við hjá Frosta.
Haraldur Einarsson
Ræðufjöldi: 116
Ræðutími: 349 mínútur (5,8 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 0 (meðflutningsmaður 26)
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutningsmaður): 9
Haraldur var kjörinn á þing í kosningasigri Framsóknarflokksins árið
2013. Þótt lítið hafi farið fyrir þingmanninum unga á kjörtímabilinu og
enginn í úttekt DV hafi kveðið sér sjaldnar hljóðs í ræðustól, þá kvaðst
hann stoltur af því að hafa fengið að vinna fyrir land og þjóð þegar hann tilkynnti að hann
ætlaði að hætta á þingi í júlí síðastliðnum. Hyggst gerast bóndi.
Jóhanna María Sigmundsdóttir
Ræðufjöldi: 148
Ræðutími: 327 mínútur (5,4 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 0 (meðflutningsmaður: 28)
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutningsmaður): 37
Komst líkt og fleiri á listum Framsóknarflokksins óvænt á
þing í kosningunum 2013 í Norðvesturkjördæmi. Komst fljótt í
sviðsljósið fyrir að hafa orðið yngsti þingmaður Íslandssögunn-
ar aðeins 21 árs gömul. Þarf því vart að koma á óvart að hún
hafi ekki haft sig mikið í frammi í ræðustól og er sá þingmaður
í úttekt DV sem fæstar mínútur á. Kvaðst þó vona að vegferð
hennar opni möguleikann fyrir ungt fólk að bjóða sig fram.
Páll Jóhann Pálsson
Ræðufjöldi: 305
Ræðutími: 777 mínútur (12,9 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 1
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutningsmaður): 1
Páll var kjörinn á þing í sigri Framsóknar í kosningum 2013. Ummæli
hans um að vera „fulltrúi útgerðarinnar“ á Alþingi vöktu talsverða
athygli á sínum tíma en Páll Jóhann var skipstjóri og útgerðarmaður áður
en hann settist á þing.
Sigrún Magnúsdóttir
Umhverfis- og auðlindaráðherra
Ræðufjöldi: 248
Ræðutími: 689 mínútur (11,4 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 17
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutningsmaður): 50
Sigrún bjóst líklega ekki við því að verða kjörin á þing 68 ára
þegar hún skipaði 7. sæti Framsóknarflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi norður árið 2013. En sú varð raunin og í árslok 2014
var tilkynnt að Sigrún, sem þá var þingflokksformaður, yrði
umhverfis- og auðlindaráðherra. Hafði áður verið varaþing-
maður framsóknar árin 1980 og 1982.
Vigdís Hauksdóttir
Ræðufjöldi: 421
Ræðutími: 1.187 mínútur (19,7 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 6
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutningsmaður): 32
Vigdís kom eins og stormsveipur inn í íslensk stjórnmál í kosn-
ingunum 2009. Líklega einn umtalaðasti stjórnmálamaður síðustu
ára og jafn vinsæl meðal stuðningsmanna sinna og hún er umdeild
meðal pólitískra andstæðinga. Hefur lýst vonbrigðum sínum með að hafa ekki fengið
ráðherraembætti í tíð núverandi ríkisstjórnar. Tilkynning hennar um að hætta á þingi kom
þó mörgum á óvart.
Samfylkingin: Katrín JúlíusdóttirRæðufjöldi: 1.012
Ræðutími: 2.649 mínútur (44 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 3
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutnings-
maður): 55
Eftir þrettán ár á þingi
tilkynnti fyrrverandi
iðnaðarráðherra
og fjármála- og
efnahagsráðherrann
Katrín Júlíusdóttir í
ársbyrjun að hún myndi
ekki sækjast eftir endurkjöri. Þrátt
fyrir að skorað hafi verið á hana um að
sækjast eftir formennsku í Samfylk-
ingunni ákvað Katrín, sem verið hefur
í námi samhliða þingmennsku undan-
farið, að láta gott heita.
Kristján L. Möller
Ræðufjöldi: 898
Ræðutími: 2.588 mínútur (43 klst.)
Frumvörp (1. flutningsmaður): 2
Fyrirspurnir og skýrslur (1. flutnings-
maður): 85
Kristján var kjörinn á
þing árið 1999 og hefur
því verið þingmaður í
17 ár. Gegndi embætti
samgönguráðherra
og síðar samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra í
tíð ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri
grænna.
Vinstri græn:
Ræðufjöldi er heildarfjöldi óháð ræðutegund og getur verið ræða, svar, flutningsræða,
andsvar, grein fyrir atkvæði og um atkvæðagreiðslu. (Allar upplýsingar skv. vef Alþingis 16.
ágúst 2016)
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Blóm og gjafavara
við öll tækifæri
Góð og
persónuleg
þjónusta
Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir