Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 13
Helgarblað 19.–22. ágúst 2016 Fréttir 13
Kemur eKKi á óvart að Konur selji sig í neyð
n Einstæð fjögurra barna móðir og öryrki kvíðir vetrinum n Sárt að sjá peningaskort koma niður á börnunum n Velur á milli reikninga um hver mánaðamót
upphugsað til að skera niður og afla
mér tekna. Ég þarf að eiga heimili
fyrir mig og börnin en allt sem ég
þarf ekki nauðsynlega að eiga hef
ég losað mig við,“ segir Sigrún og
kveðst hafa mátt leita ítrekað til
vina og vandamanna til að bjarga
sér fyrir horn.
„Nú erum ég og börnin sam
einuð og veturinn framundan. Yfir
þessu ætti ég að gleðjast. Börnin
mín eldri blómstruðu í sveitinni og
eru komin heim til að byrja nýtt og
breytt líf með mömmu sinni. Það er
samt alveg sama hvernig ég reikna
það út, ég sé engan veginn hvern
ig ég á eftir að geta staðið undir því
einu að vera mamma.“
Þá neyðist Sigrún til að velja
á milli reikninga til að greiða um
hver mánaðamót, borga það allra
nauðsynlegasta en hún kveðst yfir
leitt vera allavega mánuði á eftir
með allar greiðslur.
„Síðustu mánaðamót þurfti ég
að sleppa húsaleigugreiðslunni og
er það í rauninni örþrifaráð.“
Úrræði duga skammt
Sigrún nýtir sér öll þau úrræði og
aðstoð sem í boði er – félagsþjón
ustu, barnaverndaryfirvöld og
kirkjuna. Hún segir að henni sé alls
staðar tekið opnum örmum af dá
samlegu fólki sem vinni óeigin
gjarnt starf.
„Og þau vilja hjálpa, en þau
þurfa að vinna innan ákveðins
ramma sem skiljanlegt er. En þrátt
fyrir stuðning þeirra og aðstoð
þá gengur dæmið ekki upp. Það
þekkja allir sem berjast við þung
lyndi og kvíða að það er ekki auð
velt að hafa sig af stað í að óska eftir
aðstoð. Ég geri það og þó að ég sé
alls ekki hreykin af því þá er það
partur af minni sjálfsbjargarvið
leitni og í hana rígheld ég.“
Skilur vændiskonur
Sigrún kveðst hafa fylgst með um
ræðunni um vændi á Íslandi, með
al annars í DV, undanfarið og það
hafi vakið hana til umhugsunar.
Hún sýnir konum, sem í neyð sinni
fara þá leið til að lifa af, skilning.
„Við sem eigum börn vitum að
við fórnum öllu fyrir börnin okkar
og það að konur velji það að fórna
líkama sínum, eða aðgangi að hon
um, sjálfsvirðingu og stolti til þess
eins að geta sinnt því hlutverki að
fæða og klæða börnin sín kemur
mér því ekki á óvart. Einhver benti
á og bar saman vanlíðan vegna þess
að eiga ekki fyrir mat eða húsaskjóli
eða vanlíðan vegna þess að stunda
vændi. Hvort væri verra. Ég gat ekki
annað en velt þessu sama fyrir mér.
Ef ég gæti veitt okkur meira, létt á
áhyggjunum yfir því að komast í
gegnum hvern dag með því að láta
mig hafa það að selja aðgang að lík
ama mínum … ef ég gæti leyst út
lyfin mín alltaf, ef við gætum farið
til tannlæknis, ef, ef, ef …“
Peningaleysi svertir drauminn
Sigrún segir að fólk verði að átta sig
á að staða hennar er ekki einsdæmi.
Svona sé raunveruleiki hennar og
margra annarra Íslendinga. Hún reyni
að vera ekki reið, kenna ekki öðrum
um og vera þakklát fyrir það góða í
lífinu. „Ég hef aldrei gert mér vonir um
að vera rík eða að lifa í allsnægtum.
Það eina sem mig dreymdi um var
að verða mamma. Sá draumur varð
að veruleika og ég þakka fyrir það á
hverjum degi. Það er ekki sjálfgefið
að eiga börn, það er ekki sjálfgefið
að eiga mörg börn, heilbrigð börn.
En mér finnst samt mjög sárt að það
sé peningaleysi sem aftrar mér í því
eina sem mig langar að fá út úr líf
inu, að umgangast og standa mig í
því draumahlutverki að fá að vera
mamma barnanna minna.“ n
Kemur ekki á óvart Eftir baráttuna sem Sigrún hefur staðið í segir hún það ekki koma á
óvart að konur leiti út í vændi í neyð sinni. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
„Það er því
gjörsamlega eyði-
leggjandi að geta ekki
staðið mig í þessu eina
hlutverki sem mig langar
til að gegna í lífinu.
Nýkomnar
bláar dásemdir
frá GreenGate
HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus