Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 19.–22. ágúst 201614 Fréttir
É
g sakna Arons alla daga og mun
aldrei geta skilið hvers vegna
þetta gerðist en vonandi lærir
maður að lifa með þessum mikla
missi. Við tökum bara einn dag í
einu,“ segir Arna Rós Hall Arnarsdóttir,
systir Arons Andra sem lést af óút-
skýrðum orsökum í ágúst í fyrra, aðeins
12 ára að aldri. Hún segir skipta miklu
máli að þiggja þá hjálp sem í boði er
eftir jafn hrikalegt áfall, og það gerði
hún og fjölskylda hennar. Næstkom-
andi laugardag hyggst Arna hlaupa 10
kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu til
styrktar Birtu Landssamtökum en þar
hefur fjölskyldan fengið ómetanlegan
stuðning í sorginni.
Arna Rós er 19 ára gömul og er að
hefja nám í umhverfis- og bygginga-
verkfræði við Háskóla Íslands nú í
haust. Hún er elst þriggja systkina en
á eftir henni kemur Aron Andri og síð-
an Amilía Salka sem verður fjögurra
ára í lok ágúst. Aroni Andra var lýst
afskaplega fallega í minningargrein-
um og greinum sem voru skrifaðar í
kjölfar fráfalls hans en Arna lýsir litla
bróður sínum sem skemmtilegum og
hressum strák með góða sál – og afar
brosmildum:
„Hann var mjög hreinskilinn og
einlægur. Hann var framúrskarandi
námsmaður, stóð sig vel í öllu. Hann
var afskaplega klár. Áhugamálin hans
voru Lego, Minecraft, tölvuleikir, kvik-
myndir, sjónvarpsþættir og ýmislegt
föndur. Gömul sál í ungum líkama,
mjög þroskaður miðað við aldur.
Hann var mjög hugmyndaríkur, út-
sjónarsamur, listrænn og klár föndrari.
Hann var góður í öllu því sem hann tók
fyrir sér hendur og hafði áhuga á.“
Vaknaði aldrei aftur
Aron Andri hafði að sögn Örnu Rós
alltaf verið hraustur og engan grun-
aði að hann væri með undirliggjandi
mein. „Fyrir utan að hann var greind-
ur með flogaveiki ári áður en hafði
ekki fengið flogakast frá því um jólin
á undan.
Fyrir hádegi 10. ágúst 2015 kom-
um við fjölskyldan heim úr fjölskyldu-
ferð á Flórída þar sem við áttum
mjög góðan tíma saman og héldum
meðal annars upp á 12 ára afmæli
Arons Andra. Þreytt eftir næturflug
frá Bandaríkjunum þá ætluðum við
öll að leggja okkur í tvo til þrjá tíma
og fórum öll að sofa,“ segir Arna Rós
þegar hún rifjar upp aðdragandann
að því þegar Aron Andri fannst látinn,
fyrir rúmu ári.
„Pabbi fór að tékka á honum þegar
hann vaknaði upp stuttu eftir að við
öll sofnuðum og ég vaknaði við mikil
öskur, skömmu síðar kom lögregla og
svo sjúkrabílar, tilraunum til endurlíf-
gunar var haldið áfram alla leið niður
á spítalann. Aron vaknaði ekki aftur.“
Ekki er vitað með vissu hvað
varð til þess að Aron dó annað en að
hjarta hans stoppaði fyrirvaralaust í
svefni. Hann var úrskurðaður látinn á
spítalanum eftir að tilraunir til endur-
lífgunar báru ekki árangur.
Hvernig tókust þið á við sorgina og
söknuðinn sem fjölskylda? Og hvernig
hefur þér gengið að takast á við þenn-
an missi?
„Við fengum góða aðstoð frá
spítalanum, bæði frá sjúkrahússprest-
um og áfallateymi spítalans. Það
skiptir miklu máli að leita eftir og
þiggja allan stuðning sem hægt er að
fá eftir svona hrikalegt áfall. Við mun-
um alla tíð takast á við sorgina og
söknuðinn en við erum að læra að lifa
með því. Foreldrar mínir hafa mætt á
fundi frá því í vetur bæði hjá Birtu og
Nýrri dögun sem eru opnir öllum og
þau fóru svo í stuðningshóp vegna
barnsmissis í vor á vegum Nýrrar
dögunar, stuðningshópurinn hefur
reynst þeim ómetanlegur í sorgarferl-
inu.
Litla systir mín, hún Amilía Salka,
var svo lítil þegar þetta gerðist fyr-
ir ári en hún var þá að verða þriggja
ára. Hún hefur samt líka glímt við
sorgina og virtist fljótt skilja endan-
leikann. Það varð breyting á henni.
Hún saknar Arons, stóra bróður síns,
og talar oft um hann.“
Tók á að vakna á morgnana
Arna Rós segir það hafa hjálpað sér
mikið að hafa daglega rútínu. „Fljót-
lega eftir að Aron dó þá byrjaði ég á
mínu lokaári til stúdents í Kvennó.
Það var erfitt að einbeita sér 100 pró-
sent að náminu en ég naut skilnings
þar vegna aðstæðna minna m.a. þar
sem bróðurmissirinn hafði áhrif á
skólasóknina. Ég lagði mikið í námið
og útskrifaðist með góðar einkunnir
sem stúdent síðasta vor. Það hefur
líka hjálpað mikið að halda áfram að
stunda hreyfingu hjá Boot Camp en
ég æfði líka crossfit á tímabili síðasta
vetur. Ég fékk mikinn stuðning frá
bæði kennurunum mínum í Kvennó
og þjálfurum í Boot Camp. Það tók
mikið á að vakna á hverjum morgni,
mæta í skólann, mæta á æfingar, fara
í vinnuna og svo framvegis. En með
tímanum þá fór það að verða auð-
veldara. Það að halda þessari grund-
vallarrútínu hjálpaði mikið.“
Vill halda minningu Arons á lofti
Arna Rós segir samtökin Birtu hafa
veitt fjölskyldunni ómetanlegan
stuðning í sorginni.
„Foreldrar mínir byrjuðu að
mæta á mánaðarlega opna fundi hjá
Birtu eftir síðustu áramót eftir að við
fengum góða heimsókn og kynn-
ingu á samtökunum. Á fundunum
hafa foreldrar mínir fundið mikinn
og ómetan legan stuðning og sam-
hljóm meðal annarra foreldra í svip-
uðum sporum,“ segir hún og bætir við
að hjá samtökum eins og Birtu, Nýrri
dögun og fleirum mæti aðstandend-
ur í sorg miklum skilning sem fáist ef
til vill ekki annars staðar. Sá stuðning-
ur sé nauðsynlegur þáttur í sorgarúr-
vinnslu syrgjenda.
Sem fyrr segir hyggst Arna Rós
hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkur-
maraþoninu næstkomandi laugar-
dag til styrktar Birtu landssamtökum.
„Mér finnst mjög gott að geta hjálp-
að við að styðja við þessi samtök sem
hafa reynst ómetanlegur stuðningur
fyrir foreldra mína og foreldra margra
annarra barna sem hafa látist skyndi-
lega.
Ég er fyrst og fremst að hlaupa í
minningu Arons Andra fyrir hönd fjöl-
skyldunnar og finnst svo góð tilhugs-
un að geta haldið nafni Arons á lofti
og stutt við góð samtök eins og Birtu
um leið,“ segir hún en hægt er heita á
Örnu Rós á heimasíðu Hlaupastyrks.
„Ég er mjög þakklát fyrir öll áheit
sem ég fæ og styrki sem nást svo að
Birta geti áfram stutt við bakið á for-
eldrum sem missa börn sín skyndi-
lega og fjölskyldur þeirra. Stuðn-
ingurinn gefur mér mikla hvatningu
í hlaupinu til minningar um elsku
bróður minn, Aron Andra.“ n
Arna Rós hleypur maraþon til styrktar Birtu landssamtökum
Styðja við syrgj-
andi foreldra
og aðstandendur
Þann 7. desember 2012, í Grafarvogs-
kirkju, voru samtökin Birta stofnuð og
stofnfélagar á annað hundrað manns.
Birta eru samtök ætluð fyrir foreldra
og forráðamenn barna sem hafa látist
skyndilega.
Tilgangur samtakanna og markmið
er að standa fyrir fræðslu og ýmsum
viðburðum á landsvísu, fyrir syrgjandi
foreldra og fjölskyldur þeirra. Samtökin
standa einnig fyrir árlegum hvíldardög-
um fyrir foreldra/forráðamenn með
endurnærandi hvíld að leiðarljósi.
Hér má finna heimasíðu Birtu:
birtalandssamtok.is
Aron Andri Hall Arnars-
son „Mjög hugmyndaríkur,
útsjónarsamur og listrænn.“
Mynd www.BRookswAlkeRPHoTo 2011
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Arna Rós Hall
Arnarsdóttir Hleypur 10
kílómetra í Reykjavíkur-
maraþoninu til styrktar
Birtu landssamtökum.
„Sakna Arons alla daga“
Fjölskyldan á góðri stund „Það
skiptir miklu máli að leita eftir og þiggja
allan stuðning sem hægt er að fá eftir
svona hrikalegt áfall.“
systkini Arna Rós ásamt yngri
systkinum sínum, Aroni Andra og
Amilíu.