Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Page 16
Helgarblað 19.–22. ágúst 201616 Fréttir
„Þetta er eins og Aleppo“
n Umdeildar framkvæmdir athafnamanns n Hamlar aðgengi einstaklings í hjólastól að íbúð sinni
F
ramkvæmdir við eitt elsta
steinhús borgarinnar hafa
valdið deilum á milli eiganda
hússins og nágranna í
nærliggjandi húsi sem deilir
sömu lóð. Um er að ræða Unnarstíg
2 í gamla Vesturbænum en athafna
maðurinn Fannar Ólafsson keypti
húsið, sem var í slæmu ástandi,
síðla árs 2014 og hóf þegar fram
kvæmdir, sem að sögn nágranna
hafa farið úr böndunum. Þorleifur
Gunnlaugs son, faðir nágranna
Fannars, segir ástandið ömurlegt.
Aðgengi að Unnarstíg 2a er verulega
ábótavant sem skiptir nágrannann
verulegu máli en sá notar hjóla
stól til þess að komast ferða sinna.
Þá segir nágranninn að ekkert sam
ráð hafi verið haft við sig varðandi
framkvæmdirnar. Þeim fullyrðing
um vísar lögfræðingur Fannars til
föðurhúsanna. Vegna athugasemda
setti byggingarfulltrúi Reykjavíkur
borgar framkvæmdabann á verkið
sem hefur verið í gildi síðan 16. maí
síðastliðinn. Á meðan eru lóðafram
kvæmdirnar ókláraðar og mikið lýti á
götunni.
Fór langt fram úr heimildum
byggingarleyfis
Unnarstígur er lítil þvergata á milli
Túngötu og Öldugötu og á sameigin
legri lóð við götuna standa húsin
Unnarstígur 2 og 2a. Athafna
maðurinn og körfuboltamaðurinn
fyrrverandi, Fannar Ólafsson, keypti
fyrrnefnda húsið í slæmu ástandi
síðla árs 2014 en útigangsmenn
höfðu gert sig heimakomna í hús
inu og lóðin var í mikilli órækt. Fann
ar hóf þegar að undirbúa umfangs
miklar framkvæmdir. Hann fékk
byggingarleyfi í mars 2015 til þess að
dýpka gólf í kjallara og drena í kring
um húsið með samþykki eiganda
Unnarstígs 2a. Í bréfi sem Fannar
sendi nágrönnum sínum kom fram
að áætlað væri að framkvæmdirnar
myndu taka þrjá mánuði. Annað
hefur komið á daginn. Umfang
framkvæmdanna hefur farið langt
fram úr því sem heimilt er sam
kvæmt byggingarleyfi og í kjölfar
athugasemda nágrannans var sett
framkvæmdabann á verkið.
„Það hefur ekkert samráð verið
haft við okkur vegna þessara fram
kvæmda. Í mars barst lóðaskipta
samningur inn um lúguna sem við
fengum aðeins stuttan tíma til að
íhuga. Sérfræðingar sem við ráðlögð
um okkur við töldu hann óásættan
legan og því lögðum við fram nýja til
lögu. Síðan þá hefur ekkert samband
verið haft við okkur,“ segir Þorleifur
Gunnlaugsson, fyrrverandi borgar
fulltrúi. Sonur Þorleifs á eignina að
Unnarstíg 2a en hann býr erlendis og
notar húsnæðið aðeins þegar hann
er á landinu ásamt fjölskyldu sinni.
Á meðan hefur Þorleifur gætt hags
muna hans í þessari deilu sem undið
hefur upp á sig. Sonur Þorleifs fer
ferða sinna í hjólastól og því skipt
ir aðgengi hann miklu máli. „Það er
búið að taka svo mikið af stéttinni
að hann á erfitt með að komast að
útidyrunum með góðu móti. Þá er
sonardóttir mín fjögurra ára og það
er ekki verjandi að hleypa henni
út að leika sér við þessar aðstæð
ur. Lítið átak þarf til þess að bráða
birgðagirðing sem komið var upp
kollsteypist ekki ofan í holuna og er
því í raun mikil slysagildra. Þetta er
eins og í Aleppo,“ segir Þorleifur og
skírskotar til sýrlensku borgarinnar.
Þá hafa tvö ómetanleg reynitré verið
fjarlægð af lóðinni að sögn Þorleifs.
Gagnrýnir úrræðaleysi
borgaryfirvalda
Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar
þurfti, samkvæmt heimildum DV,
til að byrja með reglulega að hafa
afskipti af iðnaðarmönnum á vett
vangi. Það hafi þó lagast en ekkert
útlit er fyrir að deilan leysist í bráð.
Til þess að framkvæmdabanni verði
aflétt þarf framkvæmdaaðilinn ann
aðhvort að færa lóðina í uppruna
legt horf í samræmi við fyrirliggjandi
byggingaleyfi eða að ná samkomu
lagi við meðeiganda. Þorleifur gagn
rýnir úrræðaleysi borgaryfirvalda.
„Þessi misserin reyna fjárfestar að
troða sem mestu byggingamagni í
dýrustu hverfin en borgaryfirvöld
virðast ekki hafa bolmagn til þess
að sinna eftirliti. Eftir standa íbúar
óvarðir og án leiðsagnar um hvernig
þeir geti brugðist við. Íbúar þurfa að
sækja allt og flestir eru seinþreyttir til
vandræða. Við vildum ekki styggja
nýjan nágranna og létum því ýmis
legt yfir okkur ganga til þess að halda
friðinn. Þegar grípa þarf til aðgerða
þá er kostnaðurinn fljótur að fara
upp í milljónir,“ segir Þorleifur. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Meðlóðarhafinn
hefur sett fram
óbilgjarnar kröfur
„Staðan er sú að Fannar og fjölskylda
eru að gera upp þetta merkilega hús og
ætla að flytja inn þegar framkvæmdum
lýkur. Ástand hússins var með þeim
hætti að framkvæmdir urðu umfangs-
meiri en menn sáu fyrir í upphafi,“ segir
Guðjón Ármannsson, lögmaður Fannars
í samtali við DV.
Að sögn Guðjóns hefur meðlóðar-
hafi Fannars sett fram ýmsar kröfur í
ferlinu og sumar hverjar afar óbilgjarnar.
„Athugasemdir meðlóðarhafa urðu til
þess að verkið var stöðvað meðan málið
var til skoðunar hjá borginni. Umbjóðandi
minn hefur svo vikum skiptir óskað eftir
heimild til að klára frágang lóðarinnar
og á von á því að slíkt leyfi fáist á næstu
dögum. Allir hlutaðeigandi hafa sam-
eiginlega hagsmuni af því að verkið sé
klárað sem allra fyrst,“ segir Guðjón.
Allt stopp Framkvæmdabann hefur verið í gildi frá 16. maí en lögfræðingur Fannars er bjartsýnn á að það verði fellt úr gildi fljótlega og þá verði hægt að ljúka frágangi við lóðina.
Þorleifur Gunnlaugsson „Við vildum
ekki styggja nýjan nágranna og létum því
ýmislegt yfir okkur ganga til þess að halda
friðinn. Þegar grípa þarf til aðgerða þá er
kostnaðurinn fljótur að fara upp í milljónir.“
Fannar Ólafsson Keypti húsið síðla árs
2014 og hóf þegar framkvæmdir. Mynd KR.is
Upprunalegt ástand Svona leit lóð Unnarstígs 2 og 2a út áður en framkvæmdir hófust.
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609