Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Page 18
Helgarblað 19.–22. ágúst 201618 Skrýtið íslensk framleiðsla Án viðbætts sykurs Gott í boostið, matargerð, baksturinn og fleira Land spiLLingar og öfga Nokkrar merkilegar staðreyndir um Norður-Kóreu N orður-Kórea kemst reglu- lega í heimsfréttirnar og kemur það ekki alltaf til af góðu. Þetta 24 milljóna íbúa ríki, sem þekur norð- urhluta Kóreuskaga, er stundum kallað lokaðasta ríki heims enda er það enginn hægðarleikur að fara þangað, hvað þá setjast þar að. Undanfarin misseri hafa Norður- Kóreumenn komist í heimsfrétt- irnar fyrir tilraunir sínar með lang- drægar eldflaugar og skeytingarleysi í garð nágranna sinna sunnanmegin á Kóreuskaganum. Hverju Norður- Kóreumenn taka upp á næst veit enginn. Hvað sem öllu þessu líður er Norður-Kórea býsna áhuga- vert ríki eins og sést hér. Vefritið Business Insider tók saman nokkrar athyglisverðar staðreyndir um þetta merkilega ríki. n  Eru styttri en nágrannar sínir Norður-Kóreumenn eru að jafnaði fimm sentimetrum lægri en nágrannarnir í Suður-Kóreu. Þetta leiddi rannsókn á einstaklingum sem flúið höfðu frá Norður-Kóreu eftir Kóreustríðið á sjötta áratug liðinnar aldar í ljós. Telja má fullvíst að aðgangur almennings að góðri og fjölbreyttri fæðu leiki þarna stórt hlutverk.  Mikill koníaksmaður Fyrrverandi einræðisherra Norður- Kóreu, Kim Jong-il, var mikill áhugamaður um koníak. Kim, sem er faðir Kim Jong-un, núverandi leiðtoga Norður-Kóreu, stýrði landinu frá 1994 þar til hann lést árið 2011. Fullyrt hefur verið að Kim Jong-il hafi eytt sem nemur rúmum 100 milljónum króna á ári í Hennesey-viskí. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að fátækt er útbreidd í landinu. King Jong-un Leiðtogi Norður-Kóreu tók við völdum eftir dauða föður síns, Kim Jong-Il, árið 2011. Hann er einn yngsti þjóðhöfðingi heims en Kim fæddist þann 8. janúar árið 1984.  Bill Gates er ríkari en Norður-Kórea Bill Gates, ríkasti maður heims, er töluvert ríkari en Norður-Kórea sé litið til landsfram- leiðslu. Og það á raunar við um fleiri einstak- linga sem raða sér í efstu sætin á listum yfir þá ríkustu í heimi. Auðæfi Bill Gates eru talin nema 78 milljörðum Bandaríkjadala. Til samanburðar er landsframleiðsla Norður- Kóreu um 17,4 milljarðar dala samkvæmt áætluðum tölum. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is  Eru með eigið tímabelti Á síðasta ári tilkynntu yfirvöld í Pyongyang að búið væri að taka upp nýtt tímabelti í Norður-Kóreu. Það heitir einfaldlega Pyongyang-tímabeltið og er 30 mínútum á eftir tímanum í Suður-Kóreu og Japan. Nýja tímabeltið var tekið í gagnið þann 15. ágúst 2015 til að fagna því að 70 ár voru liðin frá því að landið hlaut sjálfstæði frá Japan.  Nær ekkert malbik Vegakerfi Norður-Kóreu þykir ekki beint vera til fyrirmyndar enda er talið að tiltölulega fáir landsmenn hafi aðgang að bifreiðum. Hvað sem því líður er lengd vegakerfisins 25.554 kílómetrar en þar af eru aðeins 734 kílómetrar malbikaðir. Malbikuðu vegirnir, eða göturnar, eru að sjálfsögðu flestir í höfuðborginni Pyongyang.  Spilltasta ríki heims Yfirvöld í Norður-Kóreu þykja ekki beint til fyrir- myndar á mörgum sviðum. Raunar er Norður-Kórea spilltasta ríki heims sam- kvæmt spillingarvísitölu Transparency International. Norður-Kóreumenn deila neðsta sætinu á listanum ásamt Sómal- íu. Transparency gefur öllum þjóðum heimsins einkunn á skalanum 0–100. Norður-Kórea og Sómalía fá einkunnina 8.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.