Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 36
Helgarblað 19.–22. ágúst 201632 Skrýtið Sakamál
Kraftmikil fasteignasala sem fer ótroðnar slóðir
af því að þín
fasteign
skiptir máli
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
M
iðvikudaginn 13. nóvem
ber, 1974, klukkan 18.30,
kom Ronald DeFeo yngri
hlaupandi inn á bar í
Amityville á Long Island
í Bandaríkjunum. Honum var
mikið niðri fyrir og sagði óðamála:
„Þið verðið að hjálpa mér. Ég held
að það sé búið að skjóta pabba og
mömmu.“
DeFeo yngri og nokkrir gest
ir fóru á heimili DeFeo og mikið
rétt; faðir hans og móðir voru látin,
og hringt var á lögregluna. Lög
reglan fór í gegnum allt húsið og í
ljós kom að sex úr fjölskyldu DeFeo
yngri lágu andvana í rúmum sín
um. Um var að ræða Ronald DeFeo
eldri, eiginkonu hans Louise, börn
þeirra hjóna; Dawn, 18 ára, Allison,
13 ára, Mark, 12 ára, og John, 7 ára.
Ætla mátti að DeFeo yngri, 23 ára,
væri eini eftirlifandi fjölskyldu
meðlimurinn.
Ótrúleg frásögn
DeFeo yngri bauð lögreglunni upp
á ótrúlega frásögn sem hófst tveim
ur vikum fyrr. DeFeo, eða „Butch“ eins
og hann ítrekað krafðist að vera kallað
ur, sagði að þá hefði hann verið á leið í
bankann með fjármuni úr fyrir tæki fjöl
skyldunnar. Það gekk ekki sem skyldi
því þekktur mafíósi, Louis Falini, veittist
að Butch og stal öllu fénu.
Butch sagði föður sínum farir sín
ar ekki sléttar, en DeFeo eldri brást
hinn versti við, sakaði son sinn um
lygar og að hafa stolið peningunum
sjálfur.
Butch sagði lögreglunni enn
fremur að faðir hans hefði verið á
kafi í viðskiptum við mafíuna.
Taumlaus drykkja
Daginn sem morðin voru framin
hafði Butch setið að sumbli.
Snemma dags kíktu vinir hans við og
héldu honum selskap en þegar leið
á daginn fór Butch á fyrrnefndan bar
og hélt drykkjunni áfram.
Þegar hann yfirgaf barinn var eft
ir því tekið, segir sagan, hve mikið
hann klifaði á því að hann hefði
gleymt lyklunum heima og þyrfti
því sennilega að brjótast inn. Um
klukkustund síðar kom Butch til
baka með ótíðindin af foreldrum
sínum.
Samhliða því að hlýða á frásögn
Butch leitaði lögreglan upplýsinga
um hann frá vinum hans.
Áhugi á skotvopnum
Lögreglan komst að því að Butch var
af mörgum talinn undarlegt fyrir
bæri og áttu skotvopn huga hans
allan. Ákveðið var að líta aðeins
nánar á Butch, hann var hnepptur
í varðhald og leitað í herbergi hans.
Þar fannst kassi utan af Marlin
.35 kalibera riffli og síðar kom í ljós
að fjölskyldan hafði öll verið skotin
með nákvæmlega þannig riffli.
Þegar þarna var komið sögu lét
Butch skáldfákinn geisa og upp úr
honum ullu hinar undarlegustu
frásagnir af því hvernig dauða fjöl
skyldunnar bar að höndum.
Lífstíðardómur
Þegar réttarhöldin hófust bar Ronald
„Butch“ Defeo yngri fyrir sig geðveiki.
Dómari og kviðdómur létu ekki blekkj
ast og hljóðaði dómur yfir honum upp
á sexfaldan 25 ára dóm til lífstíðar.
Þessa sex 25 ára dóma átti Defeo
að afplána samtímis ekki hvern á
fætur öðrum, en „lífstíðar“ákvæð
ið heldur honum á bak við lás og slá
þar til hann fær reynslulausn, sem
honum hefur ítrekað verið neitað
um.
Morðin urðu síðar uppspretta
kvikmyndanna The Amityville Horror
og Amityville II: The Possession auk
ótal fleiri kvikmynda sem hafa orðið
Amityville í heiti sínu. n
„Þið
verðið
að hjálpa mér.
Ég held að
það sé búið að
skjóta pabba
og mömmu.
Amityville-morðin
n Myrt sofandi í rúmum sínum
n Aðeins einn eftir til frásagnar
DeFeo yngri
Lögreglan fékk að
heyra undarlega
frásögn þegar hann
var yfirheyrður.
Húsið Síðasti svefnstaður
fjölskyldu Ronalds DeFeo yngri.