Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 7.–10. október 20162 Fréttir
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn
Í
búar í flestum landshlutum hafa
ekki farið varhluta af roki og rign-
ingu sem einkennt hefur veðrið
í vikunni. Víðáttumikil hæð yfir
Skandinavíu hefur valdið því að
lægðir á Norður-Atlantshafi komast
ekki til Evrópu heldur fara í stríðum
straumum beina til Íslands.
Þetta kom fram í pistli á vef
Veðurstofu Íslands á fimmtudag.
Hinn hái þrýstingur í hæðinni og
þrýstimunur milli hæðarinnar og
lægðanna er talsverður sem kemur
fram sem mikill vindstyrkur.
Að sögn veðurfræðings náði
slæma veðrið hámarki á miðviku-
dag þó allhvasst og talsverð rign-
ing hafi verið víða um landið í gær,
fimmtudag. Í dag, föstudag, verð-
ur allhvöss eða hvöss suðaustan-
átt sunnanlands og dálítil væta
með. Veðrið verður öllu skaplegra
norðan lands þar sem má búast við
hægum vindi og sól. Um og upp úr
helgi verða suðlægar áttir áfram ríkj-
andi með vætu sunnan- og vestan-
lands, án þess þó að neinn ofsi verði
í veðrinu. n
Lægðirnar að baki í bili
Skaplegt veður um helgina
M
agnús Guðmundsson, Sig-
urður Einarsson og Ólafur
Ólafsson sem hlutu þunga
dóma í Al-Thani-málinu
eru lausir af Vernd. Af-
plána þeir eftirstöðvar dóma sinna
undir rafrænu eftirliti og er gert að
vera með ökklaband.
Magnús Guðmundsson, Sigurður
Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson
og Ólafur Ólafsson hófu afplánun í
Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg
snemma í fyrra. Í Al-Thani-málinu
hlutu Ólafur og Magnús fjögurra og
hálfs árs dóm, Sigurður fjögurra ára
dóm og Hreiðar Már fimm og
hálfs árs dóm.
Í febrúar 2015
greindi DV frá því
að Ólafur Ólafs-
son væri kominn
á Kvíabryggju
og var hann sá
fyrsti af fjór-
menningunum
til að hefja af-
plánun. Smám
saman tíndust
hinir þrír inn í
Grundarfjörð
og komu sér
fyrir á Kvía-
bryggju. Af
stað fór um-
ræða þar sem
hópur fólks
sagði Kvía-
bryggju of góð-
an stað fyrir þá
félaga og köll-
uðu það lúxus-
hótel. Á Kvía-
bryggju mega
fangar ganga
með síma.
Þegar ekki
er vinna
í boði er
þeim frjálst að fara í langa göngu-
túra frá fangelsinu, þá er golfvöllur
á svæðinu og ýmis önnur leiktæki til
að stytta þeim stundir. Guðmundur
Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu,
gagnrýndi þær umræður og sagði:
„Þegar fólk talar um Kvíabryggju
sem lúxushótel getur aðeins tvennt
komið til greina, það hefur ekki stigið
fæti á lúxushótel um
ævina eða aldrei
farið á Kvía-
bryggju. Ætti
ekki mark-
mið fang-
elsisvistar
að vera
betrun? Oft
og tíðum
má
greina háværar raddir í þjóðfélaginu
sem virðast ekki sammála því. Mál-
flutningur þess hóps einkennist af
mikilli heift og oft er ekki annað að
sjá en að einlægur vilji sé fyrir því að
fangar þjáist, eða að minnsta kosti
hafi það sem verst.“
Umdeild lagabreyting
Á meðan Kaupþingsmennirnir af-
plánuðu á Kvíabryggju var laga-
breyting um fullnustu refs-
inga samþykkt á Alþingi.
Þann 7. apríl greindi DV
frá því að fjórmenn-
ingarnir væru lausir
úr haldi og hefðu haf-
ið afplánun á Vernd.
Engin algild formúla
er til um hvenær fangar
fá að hefja afplánun
á Vernd. Stundin hélt
fram að lagabreyting
allsherjar nefndar, sem
varð að lögum þann
23. mars og fól í sér
að heimild fyr-
ir rafrænu eftir-
liti var rýmkuð,
væri sérsniðin
fyrir Kaup-
þingstoppa.
„Mér fannst
þessi laga-
breyting
ekki tíma-
bær í ljósi
stöðunnar
varð-
andi þessa til-
teknu fanga.
Þetta virtist
vera smíð-
að utan um
þá,“ var haft
eftir Bjarkey
Olsen
Gunnars-
dóttur,
nefndar-
manni í
allsherjarnefnd og þingmanni VG,
og varð uppi fótur og fit á samfélags-
miðlum. Helgi Hrafn Gunnarsson,
þingmaður Pírata, sem samþykkti til-
löguna bar það allt til baka og sagði
misskilnings gæta í umfjöllun um
lagabreytinguna.
„Alveg eins og þingmenn geta
ekki hagað lögum þannig að tilteknir
fangar sleppi fyrr út þá geta þeir held-
ur ekki hagað lögum eftir vinsældum
tiltekinna fanga.“
Vildu ökklabandið strax
Ólafur, Sigurður og Magnús losnuðu
af Kvíabryggju þann 7. apríl en Hreið-
ar Már þann 2. maí. Allir komu þeir
sér fyrir á Vernd. Vernd er eins og
áður segir opið úrræði þar sem fangar
þurfa að vera í vinnu eða stunda sam-
félagsþjónustu. Mega fangar fara út á
morgnana en þurfa að skila sér
heim klukkan sex að kvöldi
og fá að fara aftur út klukkan
sjö og eiga að skila sér heim,
ekki seinna en klukkan
ellefu. Þurfa fangar að greiða
70 þúsund á mánuði í leigu.
DV hefur heimildir fyrir því
að Kaupþingsmenn hafi verið
ósáttir við að fá ekki að
afplána strax rafrænt
líkt og ný lög kváðu á
um. Voru svörin á þá
leið að þeir hefðu
skrifað undir
Verndarpapp-
íra hálfum
mánuði
áður en lög
tóku gildi.
Þeir héldu
því hins
vegar
fram
að þeir
hefðu
gert
það
hálfum mánuði eftir að lög voru sam-
þykkt og ættu því rétt á að klára sinn
dóm undir rafrænu eftirliti.
Sleppt fyrir helgi
Nú fyrir helgi, þann 30. september,
var Kaupþingsmönnum sleppt af
Vernd og mega þeir nú dvelja á heim-
ili sínu með ökklaband. Samkvæmt
heimildum DV hafa Kaupþingsmenn
verið vel liðnir á Vernd. Sagði heim-
ildarmaður DV að Sigurðar Einars-
sonar yrði sérstaklega saknað. Hann
hefði verið duglegur að halda húsinu
hreinu og skipað mönnum til verka
til að halda öllu í röð og reglu. Í um-
fjöllun DV um Sigurð Inga Þórðar-
son, eða Sigga hakkara, kom fram að
rúmlega 150 fangar hafa lokið fang-
elsisvist með rafrænu eftirliti. Fer það
þannig fram að á heimili viðkom-
andi er komið fyrir svoköll-
uðu heimatæki, sem minnir
á gamalt myndbandstæki.
Þá er ökklabandið sett upp
og „talar“ það við heima-
stöðina og lætur vita ef
fanginn skilar sér ekki
heim á réttum tíma.
Ekki er um GPS-
tæki að ræða og
veit Fangelsis-
málastofnun
ekki hvar
menn haf-
ast við á
daginn.
Fangar í
rafrænu
eftirliti
stunda sína
vinnu, geta
farið í sund
eða æft aðr-
ar íþróttir.
Stefna yfir-
valda með
þessu er
að reyna
að að-
laga menn
að sam-
félaginu
smám
saman.
Í lög-
um segir að
fangar megi
vera að hámarki
eitt ár með ökkla-
band. Kaupþings-
menn ættu því að
geta losað sig við
ökklabandið næsta
haust. n
farnir heim
n Magnús, Sigurður og Ólafur komnir með ökklaband n Sigurðar verður saknað
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Ólafur
Ólafsson
Hegningarhúsið
janúar 2015
Kvíabryggja
febrúar 2015
Vernd 7.
apríl 2016
Ökklaband
29. eða 30.
sept. 2016
Sigurður
einarsson
Hegningarhúsið
29. mars 2015
Kvíabryggja
byrjun apríl 2015
Vernd 7.
apríl 2016
Ökklaband
29. eða 30.
sept. 2016
magnús
Guðmundsson
Vernd 7.
apríl 2016
Ökklaband
29 eða 30.
sept. 2016.