Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Side 4
Helgarblað 7.–10. október 20164 Fréttir Höfði verður friðarsetur Í dag, föstudag, verður HÖFÐI Friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands opnað við hátíðlega athöfn í Höfða. Dag- ur B. Eggertsson borgarstjóri og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, munu undirrita stofnsamninginn. Í tilkynningu frá Reykja- víkurborg kemur fram að HÖFÐI friðarsetur dragi nafn sitt af Höfða en setrið starfar innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Er því ætlað að verða vettvangur fyrir þver- faglegt og alþjóðlegt samstarf með áherslu á hlutverk borga, smáríkja og almennra borgara í að stuðla að friði. Forsvarsmenn Thorsil munu ljúka söfnun á þrettán milljarða króna hlutafé síðar í þessum mánuði með samningum við fjóra lífeyris- sjóði, bandarískan fjárfesti og inn- lenda fag- og einkafjárfesta. Sam- kvæmt heimildum DV er verið að ganga frá samningum við lífeyris- sjóðina sem eiga að tryggja tæpa fjóra milljarða króna og þá ætlar bandaríski fjárfestirinn að leggja um 40 milljónir dala, jafnvirði 4,5 millj- arða, til verkefnisins. Eigendur Thorsil og aðrir íslensk- ir fjárfestar hafa skuldbundið sig fyrir því hlutafé sem upp á vantar og búið er að ganga frá lánasamningum við Arion banka, Íslandsbanka og einn erlendan banka. Kísilmálmverk- smiðja Thorsil, sem byggja á í Helgu- vík fyrir alls 31 milljarð króna, verði þá fullfjármögnuð. Stórir sjóðir Sjóðirnir sem um ræðir eru Lífeyris- sjóður verslunarmanna, LSR, Al- menni lífeyrissjóðurinn og Frjálsi líf- eyrissjóðurinn. Væntanlegir eigendur að verksmiðjunni munu leggja til samtals um 116 milljónir dala í hluta- fé, jafnvirði 13,2 milljarða króna mið- að við núverandi gengi, en heildar- fjárfesting verksmiðjunnar nemur hins vegar 275 milljónum dala. Verð- bréfafyrirtækið Arctica Finance hefur verið ráðgjafi Thorsil við fjármögnun á verkefninu. Gert er ráð fyrir að lífeyrissjóð- irnir reiði fram um 25 til 30 prósent hlutafjárins eða aðeins undir fjór- um milljörðum króna. DV hefur ekki fengið upplýsingar um hvern- ig þeirri upphæð verður skipt nið- ur á sjóðina fjóra en í frétt Fréttatím- ans í ágúst síðastliðnum var fullyrt að Almenni lífeyrissjóðurinn hefði ákveðið að setja þrjár milljónir dala, um 343 milljónir króna, í verkefnið sem þýðir að hlutur sjóðsins verð- ur um 2,6%. Kom þar einnig fram að Sameinaði lífeyris sjóðurinn og Stafir lífeyrissjóður, sem hafa nú verið sam- einaðir undir nafninu Birta, og Stapi lífeyrissjóður ætli ekki að vera með. Lá þá ekki fyrir ákvörðun Gildis líf- eyrissjóðs, þriðja stærsta lífeyrissjóðs landsins á eftir Lífeyrissjóði verslun- armanna og LSR, en samkvæmt upp- lýsingum DV verður hann ekki með. Strokkur með 10% Núverandi eigendur Thorsil eru Northsil ehf. með 61% eignarhlut og Strokkur Silicon ehf. með 39%. Northsil er aftur í eigu John Fenger, stjórnarformanns Thorsil, Hákonar Björnssonar, forstjóra fyrirtækis- ins, Einars Sveinssonar, fjárfestis og föðurbróður Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, og Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Sam- herja. Strokkur er í eigu fjárfestis- ins Harðar Jónssonar en Eyþór Arn- alds, fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, er fram- kvæmdastjóri félagsins og stjórnar- maður í Thorsil. Samkvæmt upplýsingum DV hafa núverandi eigendur Thorsil tekið ákvörðun um að þeir muni, ásamt öðrum, leggja til það hlutafé sem upp á vantar. Þar af ætli Strokkur Silicon að eiga um 10% hlut í verksmiðjunni. Taka ber fram að samkvæmt hlutafé- lagaskrá Ríkisskattstjóra hafa eigend- ur Thorsil nú þegar lagt fyrirtækinu til 852 milljónir króna í hlutafé. Búið að selja 82% Ekki fengust upplýsingar um hvaða bandaríski fjárfestir kemur inn í hlut- hafahópinn. Samkvæmt upplýsing- um DV er þar um að ræða fyrirtæki með höfuðstöðvar í Chicago. Thorsil hefur áður gert sölusamning við iðn- fyrirtækið Hunter Douglas Metals þar í borg. Í apríl 2014 gerðu þau samkomulag um sölu og dreifingu á 45 prósentum af fyrirhugaðri árs- framleiðslu kísilversins. Verðmæti þeirra viðskipta var þá sagt nema 67 milljörðum króna og átti samningur- inn að gilda í átta ár frá upphafi fram- leiðslu. Nú er hins vegar búið að selja um 82% framleiðslunnar til tíu ára og þá einnig til annarra erlendra fyrir- tækja sem framleiða vörur úr kísil- málmi. Ákvörðun bandaríska fjárfestis- ins um að taka stærri hlut í Thorsil hafði samkvæmt heimildum DV sitt að segja í að sannfæra lífeyrissjóð- ina um að taka þátt og þannig klára fjármögnun verksmiðjunnar. Einnig hefði aukin bjartsýni vegna Parísar- samkomulagsins, sem talið er líklegt að muni leiða til aukinnar eftirspurn- ar eftir sólarorku og þar með hærra kísilverði, haft áhrif. Fjármögnunin dregist Fjármögnun Thorsil hefur staðið yfir lengi og spáði Hákon Björnsson, for- stjóri fyrirtækisins, því í samtali við DV í ágúst síðastliðnum að henni lyki fyrir lok síðasta mánaðar. Upphaflega stóð til að verksmiðjan risi á iðnað- arsvæðinu við Bakka á Húsavík en í janúar 2014 var skrifað undir samn- ing um hönnun hennar í Helguvík. Áætlanir gera ráð fyrir að framleiðsla þar hefjist í lok árs 2018 en Thorsil hefur tryggt sér orku frá Landsvirkj- un og HS Orku. Kísilverið á að fram- leiða 54 þúsund tonn af málmi í fyrsta áfanga en síðar ná ársframleiðslu upp á 110 þúsund tonn. DV greindi á þriðjudag frá beiðni Thorsil til stjórnar Reykjaneshafnar um að fyrsta gjalddaga fyrirtækisins á gatnagerðargjöldum yrði seinkað í áttunda sinn. Thorsil fékk lóðina í Helguvík í apríl 2014 og átti þá ganga frá greiðslunni í desember sama ár. Gjalddaganum var að beiðni fyrirtæk- isins frestað alls sjö sinnum þangað til stjórnin samþykkti síðasta mánudag samkomulag við Thorsil um að hann yrði nú í október. n Samningar undirritaðir Thorsil ehf. og Hunter Douglas Metals í Bandaríkjunum undirrit- uðu í maí 2014 samning um sölu og dreifingu á 24.000 tonnum af kísilmálmi á ári í átta ár. Lífeyrissjóðir og bandarískt fyrirtæki fjárfesta í Thorsil n 13 milljarða hlutafé tryggt n 4 lífeyrissjóðir með samtals um 25 til 30% Haraldur Guðmundsson Hörður Ægisson haraldur@dv.is / hordur@dv.is Helguvík Thorsil fékk úthlutað lóð í Helguvík vorið 2014 en verksmiðja fyrirtækisins verður staðsett órfáum metrum frá kísilveri United Silicon sem nú er nánast fullklárað. Mynd SiGtryGGur Ari Ein stærsta framkvæmd borgarinnar Fyrsti hluti að nýjum Dalskóla í Úlfarsárdal var tekinn í notkun í september, ári eftir að fyrsta skóflustunga var tekin. Hús- næðið sem um ræðir er hannað sem leikskóli Dalskóla en verð- ur nýtt fyrir grunnskólanem- endur fyrst um sinn. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg kemur fram að Dalskóli sé hluti af því sem kallað hefur verið Miðstöð skóla, menningar og íþrótta í Úlfarsárdal og er ein stærsta framkvæmd Reykjavíkur- borgar. Heildarkostnaður fram- kvæmda er áætlaður um 10,2 milljarðar króna. Næsti áfangi framkvæmda er grunnskólahluti Dalskóla sem verður um 5.200 fermetrar. Hann verður tekinn í notkun haustið 2018. Áætlanir gera ráð fyrir að nemendur Dalskóla verði um 300 haustið 2018, en fullbúinn skóli mun rúma 500 nemendur. Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður. Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS Þjóðleg sumarhús sem falla einstaklega vel að íslensku landslagi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.