Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Síða 28
Helgarblað 7.–10. október 201624 Fólk Viðtal sem eigið heimili veitti okkur,“ segir Sylvana. Bættar aðstæður mæðgn- anna urðu til þess að máli hennar hjá barnavernd var lokað og áhyggjurn- ar virtust vera að baki. Gleðin var skammvinn. Fljótlega fór að bera á veikindum hjá mæðg- unum. „Við vorum alltaf slappar og með flensueinkenni. Anastasía Rós fékk í eyrun og fljótlega fór mig að gruna að ekki væri allt með felldu.“ Hún hringdi í Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar sem kom á vett- vang. Úrskurður stofnunarinnar var sá að íbúðin væri óíbúðarhæf. „Það reyndist vera sprunga á útvegg sem gerði að verkum að raki myndaðist inni í íbúðinni. Myglusveppurinn er fljótur að myndast við slíkar að- stæður. Eigandinn hafði ekki hug- mynd um þetta ástand og því kenni ég honum alls ekki um,“ segir hún. Mæðgurnar urðu að yfir- gefa íbúðina í september. Skömmu áður hafði Anastasía Rós hafið leik- skólagöngu sína í ungabarnaleik- skóla í Grafarvogi. Í tæpan mánuð hafa mæðgurnar því ekki átt fastan samastað og gist til skiptis hjá vin- konum Sylvönu og móður hennar. Leigusalinn krafðist aukagjalds „Ég flutti inn til mömmu í nokkra daga. Hún leigir litla íbúð í Breiðholti og þar er lítið pláss fyrir okkur Anastasíu.“ Skömmu eftir að mæðgurnar fluttu inn fór þó að bera á ósanngjörnum kröfum leigusala móðurinnar. „Eigandi íbúðarinnar fór fram á að mamma borgaði 50 þúsund krónur auka- lega því fleiri deildu íbúðinni. Ef ég hefði verið út septembermánuð þá átti gjaldið að vera 100 þúsund krónur,“ segir Sylvana. Hún leitaði ráða á Facebook-síðunni „Leiga“ og óhætt er að segja að innleggið hafi vakið mikla reiði og hneykslan. „Leigusalinn gekk ansi hart fram varðandi greiðslu gjaldsins og sendi mömmu ítrekuð skilaboð. Sem betur fer þá barst okkur hjálp og vinafólk móður minnar ræddi við hann sem varð til þess að hann lét af þessari hegðun sinni,“ segir Sylvana. Uppákoman varð til þess að henni líður ekkert sérstaklega vel í íbúð móður sinnar. Atvinnuleit óhugsandi í húsnæðisleysinu „Staða mín í dag er ekki góð og ég get ekki komið fótunum almenni- lega undir mig á meðan ég er hús- næðislaus,“ segir Sylvana. Hún starf- aði við afgreiðslustörf áður en hún eignaðist dóttur sína og þráir að komast aftur út á vinnumarkaðinn. „Það er fullt starf að leita sér að íbúð og ég get ekki byrjað að vinna á með- an ástandið er svona. Það leggst illa í mig því ég er ekki týpa sem hangir heima í iðjuleysi. Ég vil vinna og fara að sjá fyrir mér og dóttur minni. Ég hringi daglega í Félagsmálastofnun til þess að láta vita af mér og setja smá pressu á þau að hjálpa mér úr þessum aðstæðum. Viðkvæðið þar er alltaf hið sama – að ég eigi að halda áfram að leita að íbúð,“ seg- ir hún. Það gerir Sylvana svo sannar- lega. Ef íbúð er auglýst til leigu sem hún hefur ráð á þá er hún ein sú fyrsta sem sendir fyrir- spurn. „Framboðið er ekki mikið. Til dæmis hafa engar nýjar íbúðir verið auglýstar á vefsíðum undan- farna þrjá daga og þá get ég lítið gert annað en að bíða,“ segir hún. Aðstæðurnar hafa tekið sinn toll og í sumar fór að bera á kvíða og þung- lyndi hjá Sylvönu. „Húsnæðis leysið étur mann gjörsamlega að innan. Mér leið mjög illa í sumar og leitaði mér hjálpar. Frá því í júlí hef ég verið á kvíða- og þunglyndislyfjum. Lyfin gera þessa baráttu aðeins við- ráðanlegri.“ n „Þetta var skárra en að vera á götunni. Við deildum eldhúsi og baðherbergi með 10 öðrum leigjendum, allt karlmönnum M y n d S ig tr y g g u r A r i viltu upplifa!? Hafðu samband ( 899 7748 info@HotelvatnsHolt.is Nýr veitingastaður þar sem allir sitja í myrkri að snæðingi og þjónað til borðs með nætursjónauka. Þetta er óvissuferð frá upphafi til enda!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.