Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Page 34
Helgarblað 7.–10. október 201630 Skrýtið Sakamál avis.is 591 4000 Frá 1.650 kr. á dag Vissir þú að meðal heimilisbíll er notaður í eina klukkustund á dag Langtímaleiga er þægilegur, sveigjanlegur og skynsamlegur kostur Á R N A S Y N IR NOTAÐU ÞITT FÉ SKYNSAMLEGA Það sauð á Jesusu n Ronnie sló sér upp n Hans fyrrverandi eiginkonu líkaði það ekki Á ður en dómarinn kvað upp dóm upp á 16 ár til lífstíð- ar yfir Jesusu Tatad, í San Mateo-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum, 16. maí, 2013, fékk hún að heyra það: hún væri viðurstyggileg, hatursfull og eigingjörn voru orðin sem Lilibeth Estes, frá Ohio, notaði. Lilibeth sagði enn fremur að Jesusa skyldi leita til Guðs eftir miskunn. Lilibeth var systir Ronnies Tatad, fyrrverandi eiginmanns Jesusu og föður tveggja barna þeirra. Jesusa hafði hellt yfir hann sjóðandi vatni þegar hann var í fastasvefni og hann þurfti ekki að kemba hærurnar eftir það. Skilin en deildu íbúð Jesusa og Ronnie höfðu reyndar skil- ið í árslok árið 2007 en deildu þó enn íbúð í Daly City. Við réttarhöldin sagði verjandi Jesusu að Ronnie hefði lofað að kvænast Jesusu á ný, en í stað þess að efna það loforð hefði hann farið að dandalast með öðrum konum. Jesusa hefði gripið hann glóð- volgan með annarri konu á heimili þeirra og það hefði verið kornið sem fyllti mælinn. Tveimur vikum síðar, 26. nóvember, 2011, hefði hún látið til skarar skríða og hellt yfir hann sjóðandi vatni. Í felum bak við bíl Ronnie vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, rauk fram úr og út úr íbúð- inni, gegndrepa, í mikilli geðshrær- ingu og hálf nakinn og faldi sig á bak við bíl nokkrum húsum fjær. Maður- inn sem fann Ronnie þar skömmu síðar sagði að Ronnie hfði orðið æst- ari þegar Jesusa reyndi að nálgast hann. Þegar lögreglan kom grátbað Ronnie hana um að halda Jesusu, sem viðurkenndi verknað sinn, fjarri honum, og bað, einhverra hluta vegna, lögregluna að handtaka Jesusu ekki. Eins og körfubolti Tveimur vikum síðar skildi Ronnie við á spítala vegna sýkinga í bruna- sárum, sem þöktu um 55 prósent lík- ama hans. Höfuð hans var svo bólg- ið að það líktist „körfubolta“, að sögn systur hans. Verjandi Jesusu hafði á orði að hún hefði banað eina manninum sem hún hefði nokkurn tímann elsk- að: „Frú Tatad er ekkert skrímsli. Hún vildi ekkert frekar en breyta því sem hún gerði.“ Jesusa laut höfði og grét þegar dómurinn var kveðinn upp. n „Höfuð hans var svo bólg- ið að það líktist „körfubolta“, að sögn systur hans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.