Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 39
Helgarblað 7.–10. október 2016 Menning 35 Allt fyrir raftækni Yfir 500.000 vörunúmer Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636 Murakami talinn líklegastur Eins og nokkur undanfarin ár telja veðbankar japanska rit- höfundinn Haruki Murakami líklegastan til að hljóta Nóbels- verðlaunin í bókmenntum, en tilkynnt verður hver hlýtur verð- launin 13. október næstkomandi. Breska veðmálafyrirtækið Ladbrokes setur stuðulinn 4/1 á að Murakami, 67 ára gamall skáldsagnahöfundur frá Tókýó, sem er þekktastur fyrir bækurn- ar Norwegian Wood, Kafka on the Shore og The Wind-up Bird Chronicles, hljóti verðlaunin í ár. Næstu nöfn á lista veðmála- fyrirtækisins eru einnig kunnug- leg: sýrlenska ljóðskáldið Adun- is, Bandaríkjamaðurinn Philip Roth, Kenýamaðurinn Ngugi Wa Thiong'o og Bandaríkjakonan Joyce Carol Oates. Öll hafa þau ít- rekað verið orðuð við þessi verð- laun á síðustu árum. Hér fyrir neðan má sjá lista Ladbrokes yfir þá sem taldir eru líklegastir til að hljóta verðlaunin og stuðulinn. Haruki Murakami (4/1) Adunis (6/1) Philip Roth (7/1) Ngugi Wa Thiong'o (10/1) Joyce Carol Oates (14/1) Ismail Kadare (16/1) Javier Marias (16/1) Jon Fosse (20/1) Ko Un (20/1) John Banville (20/1) Antonio Lobo Antunes (20/1) Laszlo Krasznahorkai (20/1) Cesar Aria (20/1) Á fimmtudag kom út lagið You‘re so pretty með danspoppsveitinni FM Belfast, en þetta er fyrsta lag- ið sem sveitin sendir frá sér í tvö og hálft ár, eða frá því að plat- an Brighter Days kom út. Það er enn fremur það fyrsta sem bandið send- ir frá sér eftir að einn af stofnmeð- limunum, Árni Vilhjálmsson, sagði skilið við hópinn. You‘re so pretty er fyrsta smáskíf- an af væntanlegri fjórðu plötu sveit- arinnar. „Okkur gengur mjög vel að vinna í plötunni, sér í lagi mið- að við að ég er með hrylli- legan einbeitingarskort og allir uppteknir í mismun- andi verkefnum,“ segir Lóa Hjálmtýsdóttir, söngkona FM Belfast. „Það er komið nafn á plötuna en eins og með nýfædd börn þá verð- ur það ekki tilkynnt fyrr en í nafnaveislunni,“ segir hún. „Nýja lagið gefur tóninn að ein- hverju leyti en við erum ennþá að ákveða hvaða lög verða á plötunni sjálfri. Lagið er tilvalið til að dansa við og hrista í sig hita. Stál- trommur og „trópikal“ vetrartónar eiga vel við á tímum loftslagsbreytinga, við vitum ekki hvað fram- tíðin ber í skauti sér og því er nauðsynlegt að geta gleymt sér í ljúfum tón- um á meðan við bíðum örlaganna,“ segir Lóa um lagið sjálft, sem verð- ur einungis aðgengilegt á heimasíðu sveitarinnar, www.fmbelfast.com, fyrst um sinn. n kristjan@dv.is Fyrsta lagið í tvö og hálft ár Fyrsta smáskífan af nýrri plötu FM Belfast komin út Fyrsta lagið eftir brotthvarf Árna Stuðboltinn Árni Vilhjálmsson sagði skilið við FM Belfast fyrir ári en nú er komið fyrsta lagið frá sveitinni eftir brotthvarf hans. Mynd davíð Þór GuðlauGsson Helsta ráðgáta samtímabókmenntanna ráðin textafræðilegum greiningum eða púsluspili úr ævisögulegum vís- bendingum sem Ferrante hefur skilið eftir í viðtölum, en eftir að blaðamaðurinn Gatti fór að skoða fjárhagsgögn frá útgefandanum Ed- izione e/o voru loksins komnar áþreifanlegar vísbendingar um hver hafði hagnast mest á hinum gríðar- lega ágóða sem bækur Ferrante höfðu skapað. Þetta var þýðandinn Anita Raja. Ekki alin upp í napólí Anita Raja er fædd í Napólí árið 1953, faðir hennar er frá borginni en móðir hennar þýskur gyðingur sem flúði til Ítalíu í seinni heimsstyrj- öldinni. Fjölskyldan flutti til Rómar þegar Anita var þriggja ára gömul og hefur hún búið þar síðan. Ef það er rétt að Raja sé hin raunverulega Ferrante er ljóst að hún hefur sagt ósatt um ævi sína í nokkrum viðtöl- um og æviminningum, hún er ekki alin upp í Napólí og móðir hennar ekki napólísk saumakona og reynsla hennar af borginni skömmu eftir stríð er því ekki jafn mikil og talið var. Anita hefur þýtt ýmis verk úr þýsku fyrir bókaútgáfuna Ed- izione e/o og lagt sérstaka áherslu á þýðingar á verkum austurþýskra kvenna, til að mynda Christu Wolf. Í grein sinni sýndi Gatti fram á að á sama tíma og vinsældir Ferrante hafa aukist hafa laun Anitu frá Edizione margfaldast, og þá hafa hún og eiginmaður hennar reglulega fjárfest í dýrum fasteignum í kjölfar vinsældanna. rétturinn til að gefa út nafnlaust Útgefandi Ferrante hefur ítrekað neitað að svara hvort vangavelturn- ar séu réttar og sagt blaðamennsku Gattis vera ógeðslega og brot á frið- helgi einkalífs höfundarins. Aðdá- endur hennar hafa margir verið reiðir blaðamanninum og ekki að- eins borið við rétti Ferrante til að lifa í leyni heldur einnig rétt sinn til að vita ekki hver hún er. Gatti rökstyður hins vegar rétt- mæti uppljóstrunarinnar með því að „einstakar vinsældir bókanna hafi gert leitina að hinni raun- verulegu persónu höfundarins nánast óhjákvæmilega.“ Hann seg- ir að lesendur kaupi bækur hennar í milljónum eintaka og eigi rétt á að „vita eitthvað um manneskjuna sem skapaði verkin.“ Hann virðist þannig telja að ósannindi – eða skáldskapur – sem Ferrante hefur sett fram um eigin ævi í viðtölum og bókinni Frantu- maglia: A Writer’s Journey, sem kemur út á ensku á næstunni, hafi réttlætt að hin raunverulega persóna hafi verið dregin fram í dagsljósið. „Ég gerði þetta því hún er án vafa opinber persóna,“ segir Gatti í viðtali við BBC. n Konan á bak við nafnið? Ítalskur blaða- maður segir að Anita Raja, 63 ára þýðandi búsett í Róm, sé konan á bak við hinar gríðarlega vin- sælu skáldsögur Elenu Ferrante. Mynd www.nybooKs.coM Fordæmdur Fjölmargar greinar hafa birst þar sem blaðamaðurinn Claudio Gatti er gagnrýndur fyrir að grafast fyrir um og birta upplýsingar um persónuna á bak við bækur Elenu Ferrante.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.