Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Page 48
Helgarblað 7.–10. október 2016 79. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 TÓNASTÖÐIN • SKIPHOLTI 50D • REYKJAVÍK • S. 552 1185 • WWW.TONASTODIN.IS Range Rover eða Game Over? Range Rover-kvíði ríkisforstjóra n Andrés Jónsson almannatengill upplýsti á morgunfundi með 100 forsvarsmönnum ríkis tofnana að forstjóri ríkistofnunar hefði nýlega haft samband við hann og spurt hvort það væri í lagi að hann keypti sér Range Rover- jeppa. Að því er mbl.is greinir frá hugðist forstjórinn nota eigið fé til kaupanna en vildi vita hvort það myndi líta illa út fyrir hann. Andrés spurði salinn hvað þeir hefðu ráðlagt viðkomandi og virtust flestir gefa til að kynna að þeir myndu ráða forstjóranum frá því. Sagði Andrés það ekki skrýtið enda væri líklegt að fyrirsögnin „Forstjóri X ekur um á Range Rover“ myndi birtast í einhverjum fjölmiðlanna. Af því má ráða hvaða svör ríkisforstjórinn með Range Rover-kvíðann fékk hjá Andrési. Þjakaður þyrluflugmaður n „Mikið sakna ég þessarar litlu bláu bjútí,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og þyrluflugmaður, á Facebook- síðu sinni. Þar sýnir Ásdís Rán gamla mynd af sér frá því hún var að læra þyrluflug í Rúmeníu, þar sem hún stillir sér upp með fallegri blárri Robinson 22 þyrlu. Hún harmar að slíkar þyrlur sé því miður ekki að finna hér á landi. „Af þeim sökum er ég þjakað- ur þyrluflugmaður í augnablik- inu,“ skrifar hún. N ý þjónusta Dohop sem tryggir viðskiptavin gegn óvæntum verðhækkunum í tiltekin tíma hefur vakið athygli. Þjónustan er í sam- vinnu við FLYR sem er bandarískt fyrirtæki staðsett í San Fransisco. „Þetta er þriggja ára gamalt fyrir- tæki sem er að stíga sín fyrstu skref á þessum markaði. Það sérhæfir sig í spám um breytingar á flugverði og tryggingum gegn óvæntum breyting- um. FLYR hefur úr miklu magni upp- lýsinga að spila en spár þeirra og verðáætlanir byggja á sérhæfðu reikni- líkani flugverðs, einstöku í heiminum. Dohop er eitt fyrsta félagið sem hefur samstarf við FLYR. Með samstarfinu erum við að koma til móts við ákveðið vandamál sem notendur okkar á Ís- landi upplifa stundum. Það að flug- verð hækki snögglega frá því að við- skiptavinir finna flugið og þar til þeir loks bóka, sé það ekki gert samdæg- urs. Með þessari lausn FLYR er hægt að tryggja sig gegn óvæntum verð- hækkunum,“ segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop. Kostnaðurinn við að festa flug- verðið er á bilinu 500 til 1.500 krónur. Sú upphæð er óafturkræf og leggst við flugverðið. Tryggingin gildir í allt að 30 daga, ef langt er í flugið, en til skemmri tíma ef stutt er í flug- ið. Sem dæmi tekur Davíð að ef vika er í flugið þá gildir tryggingin í þrjá daga. Ef verðið hækkar um þúsundir króna frá því að tryggingin var keypt fá viðskiptavinir mismuninn endur- greiddan frá FLYR. Þá lætur fyrir- tækið viðskiptavininn vita ef verð á fluginu lækkar og þá er hægt að bóka lægra verðið. Að sögn Davíðs eru sætin þó ekki frátekin í vélinni á meðan tryggingin er í gildi. „Ef flug- sætin seljast upp þá fellur tryggingin niður og er eftir sem áður óaftur- kræf.“ n bjornth@dv.is n Tryggingin kostar á bilinu 500 til 1.500 krónur n Samstarf við bandaríska fyrirtækið FLYR Tryggja flugverð á Dohop í allt að 30 daga Skjáskot af Dohop Hér má sjá þann valmöguleika að festa verðið sem er í boði. Davíð Gunnarsson Dohop er eitt fyrsta fyrirtækið sem býður upp á verðtryggingu FLYR. MynD SiGtRyGGuR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.