Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Síða 2
Vikublað 11.–13. október 20162 Fréttir
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Sjálfstætt starfandi
apótek í Glæsibæ
Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Opnunartími: Virka daga 8.30-18
Laugardaga 10.00-14.00
Varð fyrir
slysaskoti
Lögreglunni á Suðurlandi barst
snemma á mánudag tilkynn-
ing um mann sem varð fyrir
slysaskoti á Helluvaðssandi norð-
austan við Hellu. Að sögn lög-
reglu var maðurinn inni í byrgi
að búa sig undir fuglaveiði þegar
skot hljóp úr byssu hans. Ekki
vildi betur til en svo að kúlan fór
í fót mannsins. Ekki liggur fyrir
hvort maðurinn hafi slasast mikið
en hann var fluttur með sjúkrabíl
á slysadeild.
Beitti systur
sína ofbeldi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann í 30 daga skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að veit-
ast að systur sinni með ofbeldi.
Maðurinn var ákærður fyrir að
ýta við henni og slá hana hnefa-
höggi í andlitið með þeim af-
leiðingum að hún féll í gólfið. Þá
var hann ákærður fyrir að sparka
í hana þar sem hún lá, með þeim
afleiðingum að hún hlaut mar í
andliti, mar á hægra hné og mar
á hægri þjóhnapp.
Maðurinn játaði brot sitt en
hann hefur ekki áður sætt refs-
ingum. Þá kom fram í dómi hér-
aðsdóms að maðurinn væri með
þroskaskerðingu. Við ákvörðun
refsingar var tekið mið af því
og þeirri staðreynd að systir
mannsins hlaut ekki alvarlegan
skaða af árásinni. Dómurinn yfir
manninum er skilorðsbundinn
til tveggja ára.
Methagnaður hjá
Baggalútsmönnum
Jólatónleikahald og plötuútgáfa skiluðu hópnum 15 milljóna króna hagnaði í fyrra
E
inkahlutafélag sjö liðsmanna
Baggalúts skilaði 15 millj-
óna króna hagnaði í fyrra og
átti þá eignir upp á 104 millj-
ónir. Félagið heldur utan um
jólatónleikahald, vefsíðu og plötuút-
gáfu hópsins en eigendur þess hafa
aldrei greitt sér út arð. Þeir áttu um
93 milljónir í handbæru fé inni í fé-
laginu í árslok 2015 en það er venju-
lega skilgreint sem reiðufé eða
auðseljanlegar eignir.
Sterk staða
Samkvæmt nýbirtum ársreikningi
Baggalúts ehf. var hagnaðurinn í
fyrra 7,5 milljónum meiri en árið
2014. Félagið hefur skilað jákvæðri
afkomu upp á alls 32 milljónir frá
ársbyrjun 2012 og eigið fé þess, eign-
ir mínus skuldir, var jákvætt um 43
milljónir í lok síðasta árs.
Tekjur félagsins má að mestu
rekja til tónleikahalds en síðustu ár
hafa miðar á jólatónleika hópsins
selst upp á nokkrum klukkutímum.
Árið 2013 námu tekjur af miðasölu
Baggalúts 52 milljónum króna en í
nýjasta ársreikningnum er ekki gefið
upp hversu miklu tónleikarnir sext-
án sem hópurinn hélt í desember í
fyrra skiluðu. Jólatónleikarnir verða
sautján í ár en voru sextán í fyrra. Það
ár gaf hópurinn einnig út plötuna
Jólaland. Tónleikarnir voru þrettán
árið 2014 en hópurinn seldi fyrst
inn á jólatónleika sem haldnir voru í
Iðnó á Þorláksmessu árið 2006.
„Greiða mönnum góð laun“
Baggalútur er í eigu Braga Valdi-
mars Skúlasonar, tónlistarmanns
og framkvæmdastjóra félagsins,
og sex annarra stofnenda vefsíð-
unnar baggalutur.is sem hópur-
inn opnaði árið 2001. Áttu þeir
allir 14,3 prósent í félaginu í
árslok 2015. Eins og síðustu
ár greiddi félagið engan arð til
hluthafa vegna rekstrarársins
og ráðstafaði hagnaðinum til
næsta árs. Bragi Valdimar sagðist
í samtali við DV í nóvember í
fyrra ekki eiga
von á að
eigendur
félagsins
myndu
greiða
sér út
arð.
Greiðslur úr félaginu væru að mestu
leyti verktakagreiðslur og að hlut-
hafarnir vildu frekar safna í sjóð og
halda áfram „að greiða mönnum
góð laun“.
„Enda koma menn
nánast einungis
saman í desem-
ber til að halda
jólatónleika.
Þetta er ekki
rekið í neinum
öðrum tilgangi
og við ætlum svo
sem ekki að fara
að stofna fast-
eignafélag alveg
strax,“ sagði Bragi
Valdimar. n
Nóg til Baggalútur
ehf. átti í árslok
2015 um 93 milljónir
króna í handbæru
fé. Sex eigendur
félagsins hafa
aldrei greitt sér út
arð. MyNd GúNdi
Framkvæmdastjórinn
Bragi Valdimar Skúlason er
eini fastlaunaði starfsmaður
Baggalúts ehf. Launagreiðslur
félagsins í fyrra námu fimm
milljónum króna. MyNd SiGtryGGur Ari
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
A
kureyrarbær seldi 16,3 pró-
senta hlut sinn í fjárfestingar-
félaginu Tækifæri hf. til fjár-
festingarfélagsins KEA svf.
í lokuðu söluferli fyrr á þessu ári.
Sveitarfélagið fékk 120 milljónir fyrir
bréfin og sakar Sigurður Guðmunds-
son, fyrrverandi bæjarfulltrúi A-list-
ans, bæjarráð um dómgreindarleysi
og spillingu.
Sigurður gagnrýndi ákvörðunina
í Facebook-pistli síðasta föstudag.
Benti hann þar á að bókfært virði
hlutarins var 144 milljónir og að
Tækifæri hefði skilað 384 millj-
óna króna hagnaði árið 2015. Verð-
mætasta eign félagsins er 41%
prósents hlutur í Baðfélagi Mývatns-
sveitar sem rekur Jarðböðin við Mý-
vatn. Þau voru rekin með 238 millj-
óna hagnaði í fyrra.
Oddvitar Framsóknarflokks,
Samfylkingar og L-lista á Akur-
eyri höfnuðu ásökunum Sigurðar í
yfir lýsingu á föstudagskvöld. Mál-
ið verður tekið fyrir í bæjarráði á
fimmtudag en líkt og kom fram í frétt
RÚV í gær, mánudag, var salan færð í
trúnaðarbók bæjarráðs. Óskað hefur
verið eftir að endurskoðandi bæjar-
ins fari yfir málið. n
Seldi bréf í lokuðu ferli
Akureyrarbær gagnrýndur fyrir sölu á bréfum í Tækifæri