Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Side 38
Vikublað 11.–13. október 201630 Fólk
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400
Leiddir inn í heim InnSæis
Fjölmargir gestir sáu frumsýningu InnSæis um helgina
H
eimildamyndin InnSæi, eða
The Sea Within, eftir Kristínu
Ólafsdóttur og Hrund Gunn-
steinsdóttur, var sýnd fyrir fullu
húsi í Háskólabíói um helgina.
Í kynningu um myndina á vef Bíó
Paradísar segir að nýir tímar kalli á
breytt hugarfar og meðvitaða skynj-
un. InnSæi muni bjóða áhorfendum í
ferðalag inn í hulinn heim innra með
hverju og einu okkar sem lætur engan
ósnortinn.
Þá segir að í bland við persónu-
lega reynslu sögumannsins, Hrundar
Gunnsteinsdóttur, komi fram í
myndinni heimsþekktir leiðtogar og
hugsuðir á sviði lista, vísinda og fræða
sem leiða okkur inn í margræðan heim
InnSæis: Heim endalausra möguleika,
sjálfsþekkingar, samkenndar og
ímyndunarafls. – Veröld sem við erum
að missa tengingu við í hraða og áreiti
nútímasamfélagsins.
Myndin var heimsfrumsýnd í
Berlín í sumar og var hún í kjölfarið
sýnd í yfir 30 kvikmyndahúsum
í Þýskalandi. Myndin var frum-
sýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi og verð-
ur hún sýnd þar fram á föstudag. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Með tengdaforeldrunum Kristín Ólafsdóttir tók vel á móti tengdaforeldrum sínum,
Björgólfi Guðmundssyni og Þóru Hallgrímsson, við frumsýningu myndarinnar. Með þeim á
myndinni er Hrund Gunnsteinsdóttir.
La vita è bella! Gæti óperusöngvarinn
ástsæli, Kristján Jóhannsson, verið að
segja. Við hlið hans stendur eiginkona hans,
Sigurjóna Sverrisdóttir.
Tók þátt í verkefn-
inu Hér eru þær Kristín
og Hrund með Högna
Egilssyni, sem oftast er
kenndur við Hjaltalín.
Högni syngur titillag
myndarinnar en Úlfur
Eldjárn sér að öðru leyti
um tónlistina.
Skattakóngur Þorsteinn Hjaltested mætti galvaskur á frumsýninguna og er fyrir miðri
mynd. Þorsteinn var skattakóngur Íslands 2010 og 2011. Fyrir aftan hann er Kristjana Guð-
brandsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu.
Fyrrverandi
forsetaframbjóðandi og
frú Andri Snær Magnason, sem
bauð sig fram í embætti forseta
Íslands í sumar, mætti með konu
sinni, Margréti Sjöfn Torp.
Létu sig ekki vanta
Jakob Frímann Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Miðborgarinnar
okkar, mætti á frumsýninguna
með sinni glæsilegu eiginkonu,
Birnu Rún Gísladóttur.