Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Síða 38
Vikublað 11.–13. október 201630 Fólk Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Gerum við Apple vörur iP one í úrvali Sérhæfum okkur í Apple Allskyns aukahlutir s: 534 1400 Leiddir inn í heim InnSæis Fjölmargir gestir sáu frumsýningu InnSæis um helgina H eimildamyndin InnSæi, eða The Sea Within, eftir Kristínu Ólafsdóttur og Hrund Gunn- steinsdóttur, var sýnd fyrir fullu húsi í Háskólabíói um helgina. Í kynningu um myndina á vef Bíó Paradísar segir að nýir tímar kalli á breytt hugarfar og meðvitaða skynj- un. InnSæi muni bjóða áhorfendum í ferðalag inn í hulinn heim innra með hverju og einu okkar sem lætur engan ósnortinn. Þá segir að í bland við persónu- lega reynslu sögumannsins, Hrundar Gunnsteinsdóttur, komi fram í myndinni heimsþekktir leiðtogar og hugsuðir á sviði lista, vísinda og fræða sem leiða okkur inn í margræðan heim InnSæis: Heim endalausra möguleika, sjálfsþekkingar, samkenndar og ímyndunarafls. – Veröld sem við erum að missa tengingu við í hraða og áreiti nútímasamfélagsins. Myndin var heimsfrumsýnd í Berlín í sumar og var hún í kjölfarið sýnd í yfir 30 kvikmyndahúsum í Þýskalandi. Myndin var frum- sýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi og verð- ur hún sýnd þar fram á föstudag. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Með tengdaforeldrunum Kristín Ólafsdóttir tók vel á móti tengdaforeldrum sínum, Björgólfi Guðmundssyni og Þóru Hallgrímsson, við frumsýningu myndarinnar. Með þeim á myndinni er Hrund Gunnsteinsdóttir. La vita è bella! Gæti óperusöngvarinn ástsæli, Kristján Jóhannsson, verið að segja. Við hlið hans stendur eiginkona hans, Sigurjóna Sverrisdóttir. Tók þátt í verkefn- inu Hér eru þær Kristín og Hrund með Högna Egilssyni, sem oftast er kenndur við Hjaltalín. Högni syngur titillag myndarinnar en Úlfur Eldjárn sér að öðru leyti um tónlistina. Skattakóngur Þorsteinn Hjaltested mætti galvaskur á frumsýninguna og er fyrir miðri mynd. Þorsteinn var skattakóngur Íslands 2010 og 2011. Fyrir aftan hann er Kristjana Guð- brandsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu. Fyrrverandi forsetaframbjóðandi og frú Andri Snær Magnason, sem bauð sig fram í embætti forseta Íslands í sumar, mætti með konu sinni, Margréti Sjöfn Torp. Létu sig ekki vanta Jakob Frímann Magnússon, fram- kvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, mætti á frumsýninguna með sinni glæsilegu eiginkonu, Birnu Rún Gísladóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.