Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Page 26
Vikublað 18.–20. október 201618 Sport Gleymdi gullmolinn á Goodison n Oumar Niasse er einn dýrasti leikmaðurinn í sögu Everton n Aðeins spilað 152 mínútur fyrir félagið É g deili búningsklefa með U-23 ára liðinu en ég hef ekki minn eigin skáp. Aðrir leikmenn hafa sinn skáp en ekki ég,“ segir Senegalinn Oumar Niasse sem fyrr á þessu ári varð einn dýrasti leik- maðurinn í sögu Everton. En síðan þá hefur lítið spurst til þessa 26 ára framherja. Hann hefur ekkert kom- ið við sögu hjá Everton á tímabilinu, hann fær ekki að æfa með aðalliðinu og félagið vill helst losna við hann. 13,5 milljónir punda Það var í janúarglugganum að Roberto Martinez, þáverandi stjóri Everton, ákvað að festa kaup á Niasse fyrir 13,5 milljónir punda. Kaupin lofuðu góðu enda hafði þessi senegalski lands- liðsmaður raðað inn mörkum í rúss- nesku deildinni með liði sínu, stór- liðinu Lokomotiv Moskva, þar sem hann var síógnandi með hraða sín- um og krafti. Martinez var rekinn í maí síðastliðnum og við starfinu tók Ronald Koeman. Strax í sumar sagði Koeman við Niasse að hann ætti enga framtíð á Goodison Park, þó svo að hann hefði ekki fengið tækifæri til að láta ljós sitt skína. Hans fyrsta og eina tækifæri kom í æfingarleik gegn Jablonec þar sem Niasse fékk að spila seinni hálfleikinn. Innan við tveir leikir Síðan Niasse gekk í raðir félagsins hefur hann aðeins komið við sögu í sjö leikjum og spilað samtals 152 mínútur. Það eru innan við tveir heil- ir fótboltaleikir. Í viðtali við Guardian viðurkennir Niasse að hann hafi ekki verið í sínu besta formi þegar hann samdi við Everton. Vegna vetrar- leyfis í rússnesku deildinni hafði Niasse ekkert spilað síðan 10. desem- ber 2015. Hann fékk fyrst tækifæri í byrj- unarliði Everton þann 30. apríl síð- astliðinn en að- eins örfáum dögum síðar fékk Martinez sparkið. Í stað þess að finna sér nýtt fé- lag í sumar ákvað Niasse að reyna að berjast fyrir sæti sínu og virðist fé- lagið, eða Ronald Koeman að minnsta kosti, vera að refsa honum fyrir það. Reynir að halda haus „Þetta er sorglegt en í hreinskilni sagt finnst mér ég ekki eiga þetta skilið. Það eina sem ég get gert að halda haus og halda áfram að berj- ast til að reyna að breyta hlutunum. Ég ætla ekki að gera mikið mál úr þessu,“ segir Niasse í viðtalinu en hann vill sýna hvað í honum býr í ensku úrvalsdeildinni. Ef það verð- ur ekki með Everton þá verði það með einhverju öðru félagi. Með samning til 2020 Tveimur dögum eftir vináttuleik- inn gegn Jablonec segir Niasse að Koeman hafi kallað hann á fund: „Hann sagði að ég þyrfti að finna mér nýtt félag. Ég skildi ekki þessa ákvörðun enda hafði ég aðeins spil- að í 45 mínútur. Ég þakkaði honum hreinskilnina en spurði hann ekki nánar út í þessa ákvörðun. Hann er stjórinn og hann ræður,“ segir Niasse og bætir við að eftir þetta hafi hann aðeins einu sinni talað við Koeman. Það var eftir að stjór- inn sagði honum að hann þyrfti að æfa með U-23 ára liðinu. „Hann tók treyjunúmerið af mér og sagði að ég mætti ekki koma inn í klefann hjá aðalliðinu eða æfa með því,“ segir Niasse sem varð þriðji dýrasti leik- maðurinn í sögu Everton á eftir Romelu Lukaku og Marouane Fella- ini. Niasse féll niður í fjórða sætið á þeim lista í sumar þegar Everton keypti Yannick Bolasie. Niasse er samningsbundinn Everton til ársins 2020 og því er alls óvíst hvað tekur við. Stuðningsmaður Everton Niasse kveðst þó vera bjartsýnn á framtíð sína í fótboltanum og útilokar ekki að spila aftur fyrir Everton. „Allt getur breyst. Koeman vill bara það sem hentar honum og kannski mun það henta honum að ég spili eftir tvo mánuði. Ég hef ekkert á móti honum og hann hefur ekkert á móti mér. Svona er fótbolt- inn. Stærri og þekktari leikmenn en ég hafa glímt við sama vanda. Hversu oft fékk Lassana Diarra ekki að heyra að hann myndi ekki spila aftur fyrir Real Madrid. Svo, nokkrum mánuðum síðar, spilaði hann hvern einasta leik,“ segir Niasse. „Ég vil sýna hvað í mér býr í ensku úrvalsdeildinni og vonandi verður það með Everton. Það er liðið sem ég styð. Ég fer á alla leiki um helgar og styð liðið. En ef ég fæ ekki tækifæri hjá Everton heldur einhverju öðru liði í deildinni mun ég grípa það.“ n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Fljótur og sterkur Niasse hafði gert góða hluti með Lokomotiv í Moskvu áður en hann samdi við Everton. Hér sést hann í Evrópuleik Lokomotiv gegn Besiktas. Mynd EPA Oumar niasse Hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum hjá Everton síðan hann kom til félags- ins í lok félagaskipta- gluggans í janúar. „Það eina sem ég get gert að halda haus og halda áfram að berjast til að reyna að breyta hlutunum. Tilboð þér að kostnaðarlausu Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna 20% þakklætisafsláttur af slökun út október Þökkum þær frábæru viðtökur sem SLÖKUN hefur fengið á Íslandi. Mamma veit best, Heilsuhúsin, Lyfja, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Mos, Apótek Ólafsvíkur, Árbæjarapótek, Borgar Apótek, Heilsutorg Blómaval, Farmasía, Fjarðakaup, Garðsapótek, Heilsuver, Lyfjaval, Lyfsala Vopnarfirði, Lyfsala Hólmavík, Lyfsalinn Glæsibæ, Siglufjarðar Apótek, Hraunbergsapótek, Rima Apótek, Reykjavíkur Apótek, Apótek Vesturlands, Apótek Garðabæjar, Lyf og heilsa, Apótekarinn og Apótekið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.