Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Qupperneq 4
Vikublað 1.–3. nóvember 20164 Fréttir
T
ékkneska fyrirtækið Aqua
Angels vill byggja vatns
átöppunarverksmiðju í
Vallahverfinu í Hafnarfirði.
Ivana Sankot, forstjóri fyrir
tækisins, sendi bæjaryfirvöldum
umsókn um lóð í hverfinu í byrjun
október en samkvæmt henni vill
það kaupa hana eða leigja. Bæjarráð
fól þá Haraldi L. Haraldssyni bæjar
stjóra að afla frekari upplýsinga um
áform Aqua Angels sem er þriðja er
lenda fyrirtækið til að sýna vatns
lindum Hafnarfjarðar áhuga á síð
ustu tveimur árum.
„Þetta fyrirtæki hefur verið að
flytja út vatn héðan frá Hafnarfirði
og í frekar litlum mæli. Mér er ekki
kunnugt um að neinir Íslendingar
komi að þessu og samkvæmt mín
um upplýsingum er þetta lítið fjöl
skyldufyrirtæki frá Tékklandi sem vill
væntanlega festa sig í sessi til að hafa
betri aðstöðu til að tappa vatninu á,“
segir Haraldur í samtali við DV.
Íslenski fáninn
Ivana Sankot sendi umsóknina um
lóðina Norðurhellu 3 þann 4. október
fyrir hönd Aqua Angels Iceland ehf.
Íslenska félagið var stofnað í júní síð
astliðnum og er forstjórinn einnig
eini hluthafi þess samkvæmt fyrir
tækjaskrá Ríkisskattstjóra. Bæjarráð
Hafnarfjarðar tók umsóknina fyrir
20. október en í henni segir að fyrir
tækið, sem er með höfuðstöðvar í
Prag í Tékklandi, vilji reisa átöpp
unarverksmiðju í bænum.
„Fyrirtækið hefur verið að tappa á
úr kerfinu hjá okkur og borga vatns
skatt af því en hefur ekki beðið um
sérstakan samning um stórkaup á
vatni. Ég veit ekki hver áform þeirra
eru en þeir eru ekki að fara fram á
neina sérstaka samninga um vatns
útflutning,“ segir Haraldur.
Flöskur og aðrar vörur Aqua Ang
els eru nú skreyttar með íslenska
fánanum eða myndum af Íslandi.
Fyrirtækið hefur opnað vefsíðu og
heldur úti kynningum á vörunum
á samfélagsmiðlinum Instagram. Á
vefsíðunni aquaangels.com segir að
vatnið, sem er selt í ál og glerflösk
um og vatnskútum úr plasti, sé ætlað
þeim sem vilji lifa heilbrigðum lífs
stíl og eru meintir yfirburðir íslenska
vatnsins raktir í þaula. Samkvæmt
Instagramsíðunni rekur það einnig
starfsemi í Hollandi. DV sendi Ivönu
Sankot fyrirspurn um áform fyrir
tækisins hér á landi á föstudag en
henni hafði ekki verið svarað þegar
blaðið fór í prentun.
Komu og fóru
Hafnarfjarðarbær hefur á síðustu
tveimur árum fengið fyrirspurnir
frá tveimur öðrum erlendum fyrir
tækjum sem skoðuðu að setja upp
átöppunarverksmiðju. Í þeim til
vikum var óskað eftir viljayfirlýsing
um frá bænum um að fyrirtækjun
um yrði tryggt tiltekið magn af vatni.
Forstjóri kanadíska fjárfestingar
fyrirtækisins Amel Group fundaði
með Haraldi bæjarstjóra í júní 2015
vegna áhuga þess á að kaupa vatn
úr dreifikerfi bæjarbúa. Honum var
boðið í skoðunarferð um vatnslindir
bæjarins í Kaldárbotnum en bæjar
yfirvöld hafa síðan þá ekkert heyrt í
forsvarsmönnum fyrirtækisins. Þeir
eiga nú í viðræðum við Ísafjarðarbæ
um stórfelldan útflutning á ísfirsku
vatni. Þá vann írska fyrirtækið Aqua
Couture, sem er meðal annars í eigu
rússneska auðjöfursins Alexanders
Titomirov, að undirbúningi vatns
verksmiðju í Hafnarfirði árið 2014.
Afkastageta vatnslinda bæjar
ins er veruleg umfram fyrirsjáan
legar þarfir en afrennsli grunnvatns
til sjávar er talið í tíu rúmmetrum á
sekúndu. Í minnisblaði sem Kristján
Sturluson, sviðsstjóri stjórnsýslu
sviðs, skrifaði í maí síðastliðnum
er lagt til að umhverfis og fram
kvæmdaráð bæjarins geri tillögu
að gjaldskrá vegna vatnsútflutnings
og að bæjarstjórn móti ramma að
samningum við aðila sem vilji hefja
slíkan útflutning. n
Verið ávallt velkomin
Almar bakari
Bakarí og kaffihús Sunnumörk
Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17
Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega
og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt
að 18 tíma og því notum við engan viðbættan
sykur, minna salt og minna ger í hvert og
eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau
bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er
súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn
lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er
bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu.
Vatnsenglar vilja
lóð í Hafnarfirði
Aqua Angels frá Tékklandi vill byggja átöppunarverksmiðju hér á landi
Lóðin Aqua Angels Iceland ehf.
sótti um lóðina Norðurhellu 3.
Kaldárbotnar Eigendur
tékkneska fyrirtækisins Aqua
Angels vilja lóð í Vallahverf-
inu en þeir hafa að undan-
förnu tappað hafnfirsku vatni
úr Kaldárbotnum á flöskur til
útflutnings. Mynd Sigtryggur Ari
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is
Sigmundur oft-
ast strikaður út
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
var sá frambjóðandi sem kjós
endur Framsóknarflokksins í
Norðausturkjördæmi strikuðu
oftast yfir. Í fréttum RÚV áí gær,
mánudag, kom fram að útstrik
un á seðlum Framsóknarflokks
hafi verið áberandi fleiri en hjá
öðrum flokkum. Ekki er ljóst
hvort þetta mun hafa áhrif á röð
un þingmanna í kjördæminu, en
til þess að Sigmundur Davíð fær
ist niður um sæti þurfa 25 pró
sent kjósenda í kjördæminu að
hafa strikað hann út.
Fékk skurð á
höfuðið
Tvö slys urðu í umdæmi lög
reglunnar á Suðurnesjum undir
og um helgina. Í dagbók lögreglu
segir að karlmaður hafi verið að
fara niður af millilofti í Innileikja
garðinum eftir að hafa verið þar
að störfum.
Maðurinn hugðist nota stiga
til að komast aftur niður en ekki
vildi betur til en svo að stiginn
rann undan honum með þeim
afleiðingum að maðurinn féll á
gólfið. Hann fékk skurð á höf
uðið og kvartaði undan eymslum.
Hann var fluttur á bráðamóttöku
Landspítala og tilkynning send á
Vinnueftirlit ríkisins.
Þá slasaðist ungur drengur
þegar hann var að spila fótbolta
í Reykjaneshöllinni og féll aftur
fyrir sig. Talið var að hann hefði
handleggsbrotnað og var hann
fluttur til aðhlynningar á Heil
brigðisstofnun Suðurnesja.