Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 6
Vikublað 1.–3. nóvember 20166 Fréttir
S
tjórnendur Landsbank
ans hafa ekki enn höfðað
mál fyrir dómstólum vegna
sölu bankans á eignarhlut
hans í Borgun hf. Helga
Björk Eiríksdóttir, formaður banka
ráðs, vill ekki svara því hvort búið
sé að ákveða hverjum verði stefnt
eða hvenær niðurstaða muni liggja
fyrir. Ákvörðun um málshöfðunina
var tekin á fundi ráðsins fimmtu
daginn 11. ágúst og segir Helga að
málið sé enn í vinnslu og að engar
frekari upplýsingar verði veittar að
sinni.
Ekkert heyrt
Landsbankinn sendi frá sér frétta
tilkynningu daginn eftir að banka
ráðið tók ákvörðun um málshöfð
unina en þá var ekki búið að taka
ákvörðun um hverjum yrði stefnt. Í
henni kom fram að fyrirtækið ætli
sér að höfða mál vegna sölu á 31,2
prósenta hlut bankans í greiðslu
kortafyrirtækinu á 2,2 milljarða
króna. Landsbankinn seldi hlut
inn í lokuðu söluferli til tveggja fjár
festahópa í nóvember 2014. Eigend
ur Eignarhaldsfélagsins Borgunar
slf. keyptu þá 24,96 prósenta hlut
og félag á vegum stjórnenda Borg
unar, BPS ehf., keypti 6,24 prósent.
Samkvæmt upplýsingum DV hafa
forsvarsmenn félaganna ekkert
heyrt af fyrirhugaðri málshöfðun
fyrir utan það sem kom fram í til
kynningu bankans.
Helga Björk segir í skriflegu svari
við fyrirspurn DV að málið sé enn í
vinnslu og að hún geti ekkert tjáð
sig um það að svo stöddu. Í sam
tali við DV í ágúst síðastliðnum
sagði hún að lögfræðingar bank
ans væru að undirbúa málshöfð
unina og að það gætu liðið nokkrar
vikur, eða meira, þangað til niður
staða um hverjum verði stefnt lægi
fyrir. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri
Bankasýslu ríkisins, sem fer með
98,2 prósenta hlut ríkisins í Lands
bankanum, hafði þá engar frekari
upplýsingar um málið en þær sem
komu fram í stuttri tilkynn
ingu bankans. Vísaði hann
þá í tilkynningu Lands
bankans frá 16. mars
síðastliðnum um að
bankinn hefði falið
lögmönnum sín
um að undirbúa
málsókn vegna
Borgunar
sölunnar.
Skýrslan birt
í nóvember
Bankaráðið
telur Lands
bankann hafa
farið á mis
við fjármuni
í viðskiptun
um þar sem honum hafi ekki ver
ið veittar nauðsynlegar upplýsingar.
Eins og frægt er orðið samdi bank
inn ekki um viðbótar greiðslu vegna
milljarðagreiðslunnar sem Borgun
hefur innheimt vegna yfirtöku Visa
Inc. í Bandaríkjunum á Visa Europe.
Stjórnendur hans gerðu aftur á móti
fyrirvara um hlutdeild í greiðsl
um sem Valitor fékk vegna samrun
ans en bankinn seldi Arion banka
38,62% hlut sinn í greiðslukorta
fyrirtækinu í desember 2014 eða
mánuði eftir að viðskiptin með bréf
in í Borgun kláruðust.
Ríkisendurskoðun vinnur að úttekt
á allri eignasölu Landsbankans á ár
unum 2010 til 2016. Ákveðið
var að ráðast í hana
vegna beiðna frá eins
taka þingmönnum,
Landsbankanum og
Bankasýslu ríkisins
um að hún tæki
eignasöluna til
skoðunar í kjölfar
Borgunarmáls
ins. Samkvæmt
upplýsing
um frá Ríkis
endurskoðun er
enn stefnt að því
að niðurstöður
hennar verði
birtar í skýrslu til
Alþingis í næsta
mánuði. n
Opnunarpartý / afmælishóf
Við flytjum á nýjan stað og fögnum 3ja ára afmæli
Þér er boðið í opnunarpartý og afmælishóf
á nýja staðnum - Holtasmára 1 (Hjartarverndarhúsið)
Þriðjudaginn 1. Nóv kl. 17-21
25% afsláttur af öllum vörum þetta kvöld
Léttar veitingar og notaleg kvöldstund
Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 571-5464
20% afsláttur til 5. nóvember
Einu eggin á neytendamarkaði
með löggilda vottun
Lífrænu hænurnar
hjá Nesbúeggjum
• Fá lífrænt fóður
• Fá mikið pláss
• Njóta útiveru
nesbu.is
NESBÚ
EGG
LandSbankinn hefur
ekki enn höfðað máL
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
n málshöfðun vegna borgunarmálsins enn í vinnslu n ríkisendurskoðun skilar í nóvember
Formaður bankaráðs
Helga Björk Eiríksdóttir.
Landsbankinn
Þann 11. ágúst
birtist frétt á vef
bankans um að
bankaráðið hefði
tekið ákvörðun um
málshöfðun vegna
Borgunarmálsins.