Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Qupperneq 26
Vikublað 1.–3. nóvember 201622 Skrýtið 10 kvikmyndir sem þú munt aldrei geta séð Myndirnar sem eru týndar og tröllum gefnar M eð öllum þeim tækninýj- ungum sem hafa litið dagsins ljós á síðustu ára- tugum er nokkuð ljóst að það sem einu sinni fer á netið verður aðgengilegt þar um ald- ur og ævi. Þó að þetta eigi ekki við um allt á þetta sannarlega við um kvik- myndir sem ganga á milli manna á netinu – hvort sem okkur líkar betur eða verr. Á upphafsárum kvikmyndarinnar – og áratugunum þar á eftir – þurfti að gæta þess vandlega að geyma film- ur á öruggum stað enda voru kvik- myndir ekki til á stafrænu formi. Því miður eru nokkrar af elstu perlum kvikmyndanna týndar og tröllum gefnar. Sumar þessara mynda voru engin stórvirki í samanburði við þær myndir sem sýndar eru í kvikmynda- húsum í dag en eru þó verðmætar í sögulegu tilliti. Til dæmis er fyrsta talsetta teiknimyndin týnd. Hér má sjá stutt yfirlit yfir tíu kvikmyndir sem þú munt líklega aldrei sjá. n Batman Fights Dracula Já, það var gerð kvikmynd þar sem Batman berst gegn vampírunni Drakúla. Það skal tekið fram að DC, sem á útgáfuréttinn að Batman, gaf ekki leyfi fyrir þessari filippseysku kvikmynd sem Jing Abalos fór með aðalhlutverk í. Myndin var kvikmynduð árið 1967 en er í dag týnd og finnst hvergi. Það eina sem er eftir af henni er þetta forláta plakat. Chikara to Onna no Yo no Naka Þetta er ekki frægasta teiknimynd sem gerð hefur verið en þó einstök að því leytinu til að hún er fyrsta talsetta teiknimynd sögunnar. Japanir hafa lengi verið framarlega á sviði teiknimynda, en þessari tilteknu mynd frá árinu 1933 var leikstýrt af Kenzo Masaoka sem var einn af frumkvöðlum japanskr- ar kvikmyndalistar. Myndin naut talsverðra vinsælda í Japan á sínum tíma en finnst hvergi í dag. King Kong Appears in Edo Myndirnar um King Kong hafa notið stöðugra vinsælda í gegnum kvik- myndasöguna og eru til ófáar myndir um þessa ófreskju, þá sérstaklega í Japan. King Kong Appears in Edo var þögul kvikmynd í tveimur hlutum sem kom út í Japan árið 1938. Lítið er vitað um myndina en talið er að hún hafi verið endurgerð á vinsælli King Kong-mynd með sama nafni frá árinu 1933. Myndin týndist fyrir margt löngu og þrátt fyrir mikla leit finnst hún hvergi. Squadron Leader X Þessi breska njósnamynd er frá árinu 1943 og þótti einkar vel heppnuð ef litið er á kvikmyndarýni þess tíma. Í myndinni, sem er í fullri lengd, mátti sjá þó nokkur áhættuatriði en söguþráður- inn snýr að þýskum njósnara sem lendir í alls konar vandræðum í Belgíu og Bret- landi. Því miður er myndin týnd og þrátt fyrir mikla leit Bresku kvikmyndastofn- unarinnar, BFI, hefur ekki tekist að hafa upp á henni. Him Þessi tiltekna kvikmynd þótti marka nokkur tímamót árið 1974 þegar hún kom fyrst út. Í raun var um að ræða dökkbláa kvikmynd og var markhópurinn samkynhneigðir karl- menn. Framleiðendum myndarinnar þótti mistakast hrapallega að gera myndina aðlaðandi. Söguþráðurinn bætti ekki úr skák því hann fjallar um karlmann sem verður ástfanginn af sjálfum Jesú. Þrátt fyrir mikla leit hefur eintak af myndinni aldrei fundist og hafa sumir fullyrt að myndin hafi í raun aldrei verið gerð. Þetta hafi allt verið eitt stórt grín. Kvikmyndavefurinn Film Threat setti myndina þó á lista yfir eftirsóttustu týndu kvikmyndirnar. Wasei Kingu Kongu Eins og nafnið gefur til kynna fjallaði þessi mynd um King Kong sem Japanir voru mjög hrifnir af á sínum tíma. Þetta var þögul mynd og í raun eins konar gamanmynd um mann, Santa að nafni, sem klæðir sig í górillubúning og tekur þátt í sýningu til að heilla stúlku sem hann er hrifinn af. Þegar Santa tekur eftir stúlkunni við hlið karlmanns á áhorfendapöllunum bregst hann ókvæða við og gengur berserksgang, í górillubúningnum, um götur Tókýó. Le avventure di Pinocchio Það munaði sáralitlu að ítalska kvikmynda- fyrirtækinu Cartoni Animati Italiani Roma tækist að klára teiknimynd um ævintýri Gosa. Framleiðsla á þessari tilteknu mynd, Le avventure di Pinocchio, var sett á ís vegna fjárhagsörðugleika fyrirtækisins. Ráðgert var að myndin kæmi út árið 1933 en á lokametr- unum varð fyrirtækið gjaldþrota og myndin því aldrei kláruð. Að baki lá ómæld vinna, hundruð þúsunda teikninga, sem enginn veit hvar er að finna í dag. The Big Boss, Original Mandarin Cut Árið 1971 kom Bruce Lee-myndin The Big Boss út og enn þann dag í dag er hægt að nálgast eintök af henni. Það hefur hins vegar reynst erfiðara að nálgast óklipptu útgáfuna. Myndin, sem var framleidd í Hong Kong, var ritskoðuð hressilega á sínum tíma og fjölmörg blóðug og ofbeldisfull atriði klippt út. Þannig er klippta útgáfan, sem er til víða, nokkuð frábrugðin upprunalegu útgáfunni. Í upprunalegu útgáfunni sást persóna Bruce Lee meðal annars sænga hjá vændis- konum. Þessi tiltekna útgáfa virðist með öllu glötuð. Litaða útgáfan af Citizen Kane Citizen Kane er að sumra mati besta kvikmynd sögunnar, en hún kom út í leik- stjórn Orson Welles árið 1941. Á níunda áratug liðinnar aldar var til umræðu að gefa myndina út í lit til að hún höfðaði betur til yngri áhorfenda. Orson Welles er sagður hafa verið mjög andvígur þessum hugmyndum en það kom ekki í veg fyrir að vinna við það hæfist. Aðeins síðasta spólan var lituð og enginn veit hvar hún er niðurkomin. Í heimildamynd BBC frá níunda áratugnum má þó sjá eina mínútu úr lituðu útgáfunni. Upprunalega útgáfan af Foodfight! Foodfight! er teiknimynd sem kom út árið 2012 og því nokkuð frábrugðin öðrum kvikmyndum á listanum. Ekkert var til sparað við framleiðsluna og voru stórleikar- ar eins og Hilary Duff, Charlie Sheen og Eva Longoria fengnir til að talsetja myndina. Myndin floppaði all rosalega og er raunar á lista IMDb yfir verstu kvikmyndir allra tíma. Einkunnin er 1,7. Sagan á bak við þessa mynd er frekar mögnuð því framleiðendur hennar hafa haldið því fram að upprunalegu eintaki myndarinnar hafi verið stolið. Framleiðend- ur hafi þurft að hnoða myndina saman á örskömmum tíma, með lítið sem ekkert fjármagn, og þess vegna sé hún jafn léleg og raun ber vitni. Hvort þetta sé sannleikanum samkvæmt skal ósagt látið, en þessi betri og flottari útgáfa myndarinnar hefur ekki sést. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.