Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Page 31
Vikublað 1.–3. nóvember 2016 Menning 27 Sumargjöfin í ár! Þráðlausu Touch heyrnartólin á Hópkaup.is. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Fæst á www.mytouch.rocks FÁKASEL - FYRIR ALLA Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050 matur, drykkur og skemmtun hvorki hvað stílgáfu, málsnið né nokkuð annað varðar. Samskipta- formið býður ef til vill ekki upp á það. En alltént byrjaði ég að sjá fyrir mér hvernig umræðan gæti litið út ef fólk væri almennt séð vel máli farið og tjáði sig allajafna á biblíuskotnu máli. Síðan þróuðust textarnir út frá því og tóku á sig þá mynd sem í kver- inu er að finna. Urðu þeir að vísu tals- vert fleiri en rötuðu í kverið. Ég fann mig knúinn til að taka það grófasta út enda vandur að virðingu minni.“ Bókin inniheldur einnig þó nokkrar teikningar eða afrit af lista- verkum sem kallast á við textana, en myndirnar eru eftir Sigtrygg Berg Sigmarsson, Morgan Betz og Þor- björn Björnsson. „Ástæðan fyrir því að ég fór þess á leit við téða menn að þeir skreyttu verkið er einfald- lega sú að ég er á því myndir þeirra kallist á við textana og endurspegli einkunnarorð kversins um að lífið sé djók en að það sé í lagi að hlæja þótt maður fatti ekki djókið.“ n kristjan@dv.is The Internet Laugardagur kl. 21.20 í Valshöllin. Ekki síður en netið sem sveitin heitir eftir er The Internet ágætis tákn um fjölbreytni og víðsýni nútímans, þegar tónlistarmenn geta sótt sér innblástur og fyrirmyndir hvaðanæva að og úr dýpstu afkimum vefsins getur blandan orðið óvænt og bragðmikil. Hér hefur suðupotturinn getið af sér retró-fútúrískt nýsálarhip-hop með svarta lesbíska hjóla- brettatýpu við míkrófóninn. Söngkonan og forsprakki sveitarinnar, Syd tha Kyd, var lengi framan af einn helsti taktsmiður rappgengis- ins Odd Future. Pertti Kurikan Nimipäivät Laugardagur kl. 23.30, Gaukurinn. Margir kannast við finnsku pönksveitina Pertti Kurikan Nimipäivät eftir að kvartettinn tók þátt í Eurovision-söngvakeppninni árið 2015. Hljómsveitin hefur vakið heimsathygli fyrir hrátt og einfalt pönk sitt allt frá árinu 2009 þegar sveitin var stofnuð í félagsmið- stöð fyrir fólk með þroskaskerðingu, en meðlimirnir eru með ólíkar fatlanir á borð við einhverfu og Downs-heilkennið. PJ Harvey Sunnudagur kl. 22.30, Valshöllin (nauðsynlegt að tryggja sér miða á föstudag). Stærsta nafnið á Iceland Airwaves í ár er vafalaust hin 47 ára gamla Polly Jean Harvey sem hefur á 25 árum markað sér stöðu sem einn mætasti listamaður rokksögunnar, hljóðheimurinn er yfirleitt hrár og gruggugur og tónlistin fléttar saman fallega myrkri viðkvæmni, kraft- miklum töffaraskap og einstöku skynbragði á ljóðrænu og popplag- línur. Nýjasta platan, The Hope Six Demolition Project, er ljóðræn stúdía á samtímanum í gegnum sögu af þróun fátækrahverfis í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Gjörningalistamaður rekinn út og eltur af starfsfólki Bláa lónsins Johannes Paul Raether þurfti að hætta við síðasta hluta gjörnings síns G jörningalistamaðurinn Jo- hannes Paul Raether var rek- inn úr afgreiðslu Bláa lónsins og eltur út af svæðinu þegar hann framkvæmdi gjörninginn Pro- tekto.x.x. Absurd Alloy (5.5.5.4), sem var hluti af tón- og myndlistarhátíð- inni Cycle á föstudag. Um var að ræða hluta í gjörn- ingaröð þar sem Johannes, í hlut- verki tækninornarinnar Protecto x.x., heimsækir og rannsakar staði sem tengjast hinum ýmsum frum- og jarð- efnum sem eru falin í þeim tækjum og tólum sem nútímamenn notast við dagsdaglega. Heil rúta af áhorfendum elti Pro- tekto x.x. í álverið í Straumsvík þar sem hópurinn fékk leiðsögn og því næst í Bláa lónið. Þar voru viðtökurn- ar ekki jafn vinalegur, en þegar lista- maðurinn reyndi að næla sér í kísil úr lóninu var hann stöðvaður af starfs- manni. Því næst skoðaði listamaður- inn sig um í verslun Bláa lónsins en var þá vinsamlegast beðinn um að yfir gefa bygginguna – enda þyrfti leyfi fyrir slíkum uppákomum. Næst ætlaði listamaðurinn að baða sig í litlum kísilfylltum polli utan baðsvæðis Bláa lónsins en neyddist til að hætta við eftir að öryggisvörður elti rútuna af svæðinu. n kristjan@dv.is Tók það grófasta út Þrátt fyrir að hún sé óhefluð og klámfengin segir Ólafur Guðsteinn að hann hafi sleppt mörgum grófustu textunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.