Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Síða 21
Vikublað 15.–17. nóvember 2016 Kynningarblað - Skreytum heimilið 5 Heillandi jólabirta: Sífellt fleiri láta skreyta hús sín fyrir jólin Garðaþjónusta Íslands Þ róunin er sú að sífellt fleiri nýta sér þessa þjónustu – að láta okkur setja upp jólaseríur á hús sín. Hins vegar finnst okkur íburð- urinn ekki vera að aukast heldur er fólk að sækjast eftir einföldum, stílhreinum seríuuppsetningum. Minna er meira, þannig virðist tíðarandinn vera núna.“ Þetta segir Hjörleifur Björnsson, eigandi Garðaþjónustu Íslands ásamt Róberti Bjargarsyni. Mjög hefur færst í vöxt að landsmenn kaupi hjá þeim jólaskreytingar- þjónustu á aðventunni sem felst þá í uppsetningu jólasería utan á hús, á tré og í görðum. Garðaþjónusta Íslands veitir húseigendum afar fjölbreytta og umfangsmikla þjónustu eins og lesa má um á heimasíðu fyrirtækis- ins,www.gardathjonustaislands.is. Á þessum árstíma býður fyrirtækið einnig upp á hálkueyðingu og snjó- mokstur, sem margir nýta sér. Að sögn Hjörleifs hefur mikil framþróun orðið í gerð þeirra pera sem eru í ljósaseríunum þeirra: „Við erum nær eingöngu með svokallaðar LED-seríur sem hafa ekki þessa skæru stingandi birtu heldur fallega birtu sem tónar vel við umhverfið og andann. Einu skiptin sem við notum ekki LED- perur er þegar fólk á gamlar seríur sjálft eða biður sérstaklega um annað.“ Hægt að skreyta fyrir bæði mikinn og lítinn pening Fólk getur valið um að kaupa ser- íur af Garðaþjónustunni eða nota seríur sem það á sjálft. Einnig er í boði að geyma seríur hjá Garða- þjónustunni. Í sumum tilvikum hefur fólk seríuna utan á tré allt árið en slekkur á ljósunum eftir jólin eða í lok skammdegistímans. Hægt er að skreyta fyrir háar fjárhæðir ef fólk vill mikið umfang og síðan er líka hægt að skreyta fyrir mjög viðráðanlega upphæð með einföldum en fallegum seríum sem gefa frá sér aðlaðandi jólabirtu. n Nánari upplýsingar um þjón- ustuna veita: Hjörleifur Björnsson í síma 844- 6547, netfang hjorleifur@garda.is og Róbert Bjargarson í síma 866-9767, netfang robert@garda.is Eigendur Garðaþjónustu Íslands Hjörleifur Björnsson og Róbert Bjargarson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.