Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Blaðsíða 15
Vikublað 15.–17. nóvember 2016 Fréttir Erlent 15
Bláuhúsin v. Faxafen
s: 568 1800 s: 588 9988 s: 511 2500
Kringlunni Skólavördustíg 2
Bestir í sjónmælingum
Tímapantanir í síma
5 Danmörk Danir skipa fimmta sætið í þessum undirflokki og 9. sætið í það heila á lista Legatum. Það sem dregur Dani helst niður er heilbrigðiskerfi landsins,
en þar eru Danir í 23. sæti. Danir standa þó vel að vígi hvað varðar efnahag þar sem þeir
eru í 6. sæti og hvað varðar menntunarstig þar sem þeir eru í 7. sæti.
7 Þýskaland Þýskaland er eitt öruggasta ríki heims og öruggasta ríki Evrópu með íbúafjölda yfir 10 milljónir. Þetta er raunin þrátt fyrir að hryðju-
verkaógn hafi reglulega skotið upp kollinum undanfarin misseri. Þjóðverjar skora hátt í
öllum undirflokkum, en neðstir eru þeir þegar kemur að persónulegu frelsi einstaklinga
þar sem Þjóðverjar eru í 21. sæti.
6 Noregur Noregur skorar hæst á lista Legatum þegar allar breytur og allir undirflokkar hafa verið reiknaðir saman. Þeir eru þó í 6. sæti þegar kemur að flokknum
öryggi og velferð. Þess má geta að Norðmenn eru á topp 15 listanum í öllum undirflokkum.
8 Sviss Sviss er eitt öruggasta ríki heims og það þarf í raun ekki að koma á óvart. Sviss er í fjórða sæti á lista Legatum
þegar allir undirflokkar hafa verið teknir saman, en þess má geta að
Sviss er í 1. sæti þegar kemur að flokknum menntun. Þar eru lögð til
grundvallar atriði á borð við fjölda nemenda á hvern kennara, gæði
háskóla og afstöðu nemenda til gæða náms sem þeir stunda svo
dæmi séu tekin.
10 Svíþjóð Svíar rétt skríða inn á topp 10 listann að þessu sinni en þeir geta þó ágætlega við unað enda í 8. sæti á lista Legatum í
heildina. Svíar skara ekki beint fram úr í neinum undirflokkum en eru ekki
heldur neðarlega í neinum sem heitið getur. Efst eru þeir í 3. sæti í flokknum
hagkerfi en þar er tekið tillit til þátta eins og markaðsstærðar, atvinnuleys-
is, verðbólgu og hagvaxtar. Neðstir eru þeir þó í 18. sæti í flokknum félags-
legur auður en þar er að finna atriði sem lúta að félagslegum þáttum. Má
þar nefna traust gagnvart náunganum, tækifæri til vinamyndunar, þátt-
töku í góðgerðastarfi, traust til lögreglu og kosningaþátttöku.
9 Austurríki Nágrannaríki Sviss, Austurríki, er of-arlega á lista þegar kemur að öryggi og velferð þegna.
Austur ríki er einu sæti neðar en Ísland, í 15. sæti, í heildina. Það eru
aðallega tveir flokkar sem draga Austurríki niður á heildarlistan-
um; heilbrigðiskerfið (25. sæti) og persónulegt frelsi (23. sæti).