Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Blaðsíða 8
Vikublað 15.–17. nóvember 20168 Fréttir Þ órólfur Júlían Dagsson hefur kært tvo menn fyrir líkamsárás sem átti sér stað um hábjartan dag í Borgartúni þann 13. júlí síðastliðinn. Vitni að árásinni gáfu skýrslu nú fyrir helgi. Þórólfur rotaðist við árásina en hún var að hans sögn tilefnislaus en móðir hans varð vitni að því þegar hann var sleginn niður. Var hún í áfalli eftir að hafa séð son sinn liggja í blóði sínu. Þórólfur var í 3. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi og er kafteinn Pírata á Suðurnesjum. Hann er reyndur sjómaður og skip­ stjóri til margra ára. Segir hann árásina hafa skemmt mikið fyrir sér, bæði andlega og þá hafi hann misst af stóru atvinnutækifæri á meðan hann var að jafna sig á meiðslunum. „Er ekki allt í lagi með ykkur?“ Í samtali við blaðamann lýsir Þórólfur atburðarásinni á þá leið að hann hafi verið farþegi í bíl móður sinnar og voru þau að aka niður Borgartún í töluverðri umferð þegar bílstjóri svarts jeppa freistaði þess að aka þvert fyrir þau og inn á næsta bílaplan. „Það var ekki mögulegt að hleypa þeim í gegn, við vorum alveg uppi við annan bíl.“ Þórólfur segir farþega jeppans hafi tekið þessu illa og fengu þau mæðgin fúkyrðaflauminn yfir sig. Umferðin mjakaðist loks áfram og þegar öku­ maður jeppans tók beygjuna inn á bílaplanið fyrir aftan þau henti far­ þegi jeppans einhverju í bíl þeirra mæðgina. Við það heyrðist töluverð­ ur dynkur og óttaðist Þórólfur að bíll­ inn hefði orðið fyrir hnjaski. „Ég fór strax út úr bílnum til að athuga hvort það hefðu orðið ein­ hverjar skemmdir. Tveir menn stigu þá út úr jeppanum, annar þeirra var Kristens Brynjar Kristensson en hinn þekkti ég ekki,“ segir Þórólfur. Í aftur­ sætinu var Sævar Hilmarsson en hann tók ekki þátt í árásinni. „Ég var eðlilega reiður og kallaði til þeirra: „Er ekki allt í lagi með ykkur?“ Ég sá strax að þeir voru í annarlegu ástandi. Ég vissi ekki á þessum tíma­ punkti hverjir þessir menn voru og hugsaði að þeir gætu átt við geðræn vandamál að stríða og þyrftu jafnvel hjálp en eftir á að hyggja hljóta allir sem hegða sér með þessum hætti að eiga við vandamál að stríða. Ég ákvað því að hörfa.“ Þórólfur segir að annar mannanna hafi öskrað: „Djöfull ert þú harður að stíga út úr bílnum“ og fylgdi högg í kjöl­ farið. Þórólfur lagði þá á flótta en segir mennina hafa fylgt honum fast á eftir. „Hann sló mig eins fast eins og hann gat í andlitið og ég sá bara svart og rotaðist,“ segir Þórólfur. Það fossaði blóð úr nefi hans. „Vitni sögðu að þau hefðu séð að sparkað var í höf­ uðið á mér þar sem ég lá í götunni en þeir létu sig síðan hverfa.“ Menn sem þurfa á hjálp að halda Eftir árásina var Þórólfur með tölu­ verða áverka. „Móðir mín tók þetta nærri sér og það fékk á hana að verða vitni að árásinni.“ Þórólfur var frá í margar vikur vegna bakmeiðsla, en hann stundaði sjómennsku á þessum tíma og hafði verið boðið að eignast hlut í bát ásamt félaga sínum með því að veiða upp í hlutinn. „Ég og félagi minn vorum komnir með munnlegt samkomulag um að við myndum vinna saman með það að markmiði að eignast þennan bát. Það datt alveg gjörsamlega upp fyrir.“ Þórólfur segir ólíðandi að ekki sé hægt að stöðva menn sem séu til vand­ ræða í samfélaginu. Þetta séu menn sem þurfi á hjálp að halda og eigi ekki að fá að leika lausum hala í samfélaginu, í sumum tilfellum virðist engu skipta þótt menn séu á skilorði vegna annarra brota. Bendir hann á að lögreglan hafi myndskeið af árásinni undir höndum. Þórólfur var frá vinnu í nokkrar vikur vegna árásarinnar og kveðst ekki enn kominn yfir erfiðasta hjallann. „Ég er ekki búinn að jafna mig and­ lega á árásinni. Ég hef ekki haft tíma til þess að fara í gegnum þessa ferla, og sálfræðimeðferðir eru ekki greidd­ ar niður eins og tímar hjá geðlæknum og því hefur verið erfitt um vik að sækja áfallahjálpina sem nauðsynleg er fyrir mig og móður mína.“ n Barinn til óBóta fyrir framan móður sína n „Sá bara svart og rotaðist“ n Missti af stóru atvinnutækifæri Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is „Djöfull ert þú harður að stíga út úr bílnum Búinn að kæra Þórólfur segir að árásin hafi átt sér stað í Borgartúni. HVAR ER SÓSAN? Það er aðeins eitt sem er ómissandi í pítu og það er pítusósan. Kannski pítubrauðið líka. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. MagnesíuM Kísill Hin fullkomna tvenna fyrir Heilsu og fegurð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.