Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Blaðsíða 32
Vikublað 15.–17. nóvember 201624 Menning Þ að er óhætt að segja að þrí- leikur Jon Fosse, sem sam- anstendur af Andvöku, Draumum Ólafs og Kvöldsyfju sé sérstæður yndislestur af þeim toga sem maður fær ekki upp í hendurnar á hverjum degi. Allar bera bækurnar undirtitilinn Frásögn og er það með réttu, enda stíll höfundar þannig á mörkum þess forms að vera skáldsaga, eins og hún er svona al- mennt skilgreind. Auðvitað hafa verið gerðar ótal til- raunir með formið þannig að „ raddir“ hefjast og hníga í framvindu einhvers konar frásagnar sögumanns af at- burðum og persónum. En tilraunin sem gerð er í þessu verki, sem mun hafa skilað höfundinum Bókmennta- verðlaunum Norðurlandaráðs í fyrra, sýnir fram á svo óyggjandi vald höf- undar á því „frásöguformi“ sem hann velur sér til að segja sögu Öldu/Ásu og Ása/Ólafs að það verður eiginlega að skilgreina aðferðina sem einhvers konar Fosse-íska ljóðrænu sem erfitt sé að líkja eftir. Jon Fosse er höfundur fjölda leik- verka, raunar norskt leikritaskáld sem hefur verið sett upp um víða veröld og ef líkja má frásögu fyrsta hlutans við eitthvað þá er það einmitt leiktexti þar sem „það sem lesandinn upplifir“ er það sem persónurnar segja eða hugsa, með örlitlum viðbótum sem skapa hinn sérkennilega ljóðræna stíl, uppfullan af taktvissum endurtekn- ingum sem skapa takt og hraða í textann sem gera hann sérlega áhugaverðan til flutnings. Hvort þessi ljóðræni texti truflar les- andann verður hver að eiga við sig en á einhvern hátt rígheld- ur hann í mann svo maður líð- ur áfram, tætir hann í sig og nýt- ur smáatriða í botn þannig að á stundum er eins og maður sé að fara í gegnum ægilega spennu- sögu fulla af „hengiflugs-brell- um“. Verkið í heild spannar manns- aldur og segir frá ástum og örlög- um fátæks fólks, ef til vill fyrir rúmum hundrað árum, kannski tvö hundruð, en örlög hinna fá- tæku hafa ekki breyst svo mjög að það standi manni fyrir hugskotssjónum hvenær hún eigi sér eiginlegan stað. Það er nefnilega tímaleysi sem að- ferð höfundar miðlar sem skilar sér í ógleymanlegri ferð um vitundir þar sem hver síða geymir á einhvern hátt eitthvað óvænt. Ekki að söguþráður- inn sé fullur af U-beygjum eða óvænt- um snúningum í raun, þegar upp er staðið, heldur er það stíll höfundar sem felur í sér að maður staldrar aldrei við og reynir einhvern veginn að ímynda sér hvað gerist næst, eða að einhvers konar lyklar séu sett- ir fram sem feli í sér að mann renni í grun hvað muni gerast næst. Þannig er lestur bókarinnar einhvers konar reynsla, uppfull af „núi“ frekar en að það sé verið að miðla einfaldri sögu- línu eða frásagan feli í sér niðurstöðu um hvernig persónur breyttu eða hefðu getað breytt, hvernig þær hefðu getað forðast örlög sín og hvernig einhvers konar bölvun hefði getað verið aflétt. Verkið hverfist um persónur sem eru fullar af ást, samkennd og ör- væntingu sem maður upplifir „beint í æð“ en á einhvern hátt er hægt að halda því fram að það sé sjaldgæfur eiginleiki „stóru skáldsagnanna“ nú til dags. Þríleikurinn er þannig í sínu epíska formi stórvirki þótt hann telji í raun rétt um 230–240 síður allt í allt. Ef til vill má spyrja sig hvers vegna hann sé framreiddur í þremur litlum heftum en ekki einni innbundinni bók, en í raun og veru má líka segja að það sé eitthvað við fínleika hvers heftis fyrir sig og skýra skiptingu á milli hluta verksins sem láta það ganga upp með þeim hætti sem það raunverulega gerir. Helsti gallinn á þeirri framsetningu má aftur segja að sé sá að fyrsta heftið er magnaðast, annað heftið er einhvers konar framvindu- og atburðalykill en það þriðja eftirmáli þeirrar sögu sem þá hefur átt sér stað. Ef lesandinn á því lítinn tíma og skortir almennt úthald til að lesa bækur, þá mælir undirrit- aður í það minnsta með því að leggja til atlögu við Andvöku, því að stíll þess sker auk þess úr um hvort maður þol- ir að lesa þessa tegund af texta. Takist manni það, þá liggja seinni bindin tvö beint við og renna ljúflega niður. n Ógleymanlegt ferðalag um vitundir Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Bækur Andvaka, Draumar Ólafs og Kvöldsyfja Höfundur: Jon Fosse Útgefandi: Dimma „Á einhvern hátt rígheldur hann í mann svo maður líður áfram, tætir hann í sig. Jon Fosse eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Fæst í öllum helstu apótekum. Þurr augu? Augnheilbrigði Tvöföld virkni Sex sinnum lengri ending Nýtt Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks sem sækir innblástur beint til náttúrunnar. Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við nátt- úrulegu efnin trehalósa, sem kemur á jafnvægi og verndar frumurnar á yfirborði hornhimnunnar, og hýalúronsýru, sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka. TREHALÓSI Finnst í mörgum jurtum og hjálpar þeim að þrífast við þurrar aðstæður. Trehalósi verndar frumurnar og gerir þeim kleift að starfa með fullum afköstum. HÝALÚRONSÝRA Er að finna í augunum og hefur einstaka getu til að binda vatn. Hjálpar til við að smyrja og viðhalda táravökvanum á yfirborði augans. án rotvarnarefna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.