Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Síða 28
Vikublað 15.–17. nóvember 201620 Lífsstíll Einu eggin á neytendamarkaði með löggilda vottun Lífrænu hænurnar hjá Nesbúeggjum • Fá lífrænt fóður • Fá mikið pláss • Njóta útiveru nesbu.is NESBÚ EGG Annar hver sendir myndir af kynfærum eða brjóstum n Framhaldsskólanemar nota klám til sjálfsfróunar n Sammála um að það gefi ranga mynd af kynlífi Í slensk ungmenni byrja að meðal tali að horfa á klám um 13 ára aldur. Drengir sjá klám fyrst 11,9 ára að jafnaði, en stúlkur tveimur árum síðar, 13,8 ára. Þetta kemur fram í nýrri íslenskri rannsókn, Klámnotkun íslenskra framhaldsskólanema, en höfundur hennar er Guðbjörg Hildur Kol­ beins, doktor í fjölmiðlafræði. 70 prósent karla skoða klám nokkrum sinnum í viku eða oftar af fúsum og frjálsum vilja, í samanburði við 12,5 prósent kvenna. Um það bil annar hver framhaldsskólanemi hafði sent mynd af brjóstum eða kynfærum til annars aðila. Niðurstöðurnar byggja á svörum 1.867 framhalds­ skólanema við 28 skóla á landinu. Mikill meirihluti þátttakenda hafði séð klám, eða 98,8 prósent karla og 87,4 prósent kvenna. Hvað er klám? Talsverður munur reyndist á milli kynja þegar spurt var hvað væri klám. 28,7 prósent karla töldu myndir af nöktum brjóstum vera klám en aðeins 15,8 prósent kvenna. Þá töldu 95 prósent kvenna að myndir af nöktum kynfærum væri klám en aðeins 54 prósent karla. Karlar horfa meira á klám Rannsóknin sýndi fram á mikinn mun á klámnotkun kynjanna. Um þriðjungur karla í framhaldsskólum skoðar klám næstum því á hverjum degi, eða oftar, en innan við fjögur prósent kvenna. Fjórðungur kvenna skoðar klám af fúsum og frjálsum vilja nokkrum sinnum í mánuði og annar fjórðungur nokkrum sinn­ um á ári. 12,5 prósent kvenna skoða klám nokkrum sinnum í viku eða oftar, en um 70 prósent karla. Sjö af hverjum tíu konum sem skoða klám gera það í einrúmi en hlutfallið er hærra hjá körlum, 87 prósent. Sex prósent kvenna og 15,5 prósent karla skoða klám með maka. Langflestir nota klám til sjálfsfróunar Þátttakendur svöruðu spurningum um ástæðu þess að klám væri skoð­ að af fúsum og frjálsum vilja. 57,2 prósent kvenna gera það til sjálfs­ fróunar en 46,5 prósent af forvitni, 34 prósent til gamans og 15 prósent til fræðslu. 8,2 prósent kvenna skoða klám af fúsum og frjálsum vilja til þess að hafa kynmök. 12,6 prósent kvenna skoða klám aldrei af fúsum og frjálsum vilja. Tölurnar líta öðru­ vísi út á meðal karla. 83 prósent karla nota klám til sjálfsfróunar en 43 pró­ sent merktu við að þeir notuðu það til gamans. 31 prósent skoðar það af forvitni en 12 prósent til fræðslu. Rúm fimm prósent karla skoða klám til að hafa kynmök. Aðeins tvö pró­ sent karla skoða klám aldrei af fús­ um og frjálsum vilja. Margir vildu sjá tvær konur í kynmökum Nokkur munur reyndist einnig á því hvers kyns klám fólk horfir á. Flestir karlar vildu sjá karl og konu í kynlífi, 65,4 prósent. Næst flestir vildu sjá tvær konur í kynmökum, 48 prósent en fast á hæla þess fylgdu munn­ mök, eða 45 prósent. 34 prósent vildu sjá þrjá einstaklinga í kyn­ mökum, litlu fleiri en þeir sem vildu sjá endaþarmsmök, 32,7 prósent. Konur vildu helst sjá karl og konu í kynmökum, eða 52 prósent. Næst flestar vildu sjá tvær konur í kynmökum, 32,3 prósent, en jafn margar vildu sjá munnmök og þrjá einstaklinga í kynmökum. Athygli vekur að um það bil eitt prósent svarenda af báðum kynj­ um vildi sjá fólk í kynmökum með börnum eða dýrum. Helmingur hefur sent myndir af brjóstum eða kynfærum Viðhorf kvenna og karla til kláms eru mjög ólík, að því er fram kemur í rannsókninni. „Konur eru mun líklegri en karlar til að segja að klám sé ógeðslegt og að það leiði til nauðgana og vændis. Tæpur þriðj­ ungur kvenna segir samt að klám sé skemmtilegt. Þótt bæði karlar og konur séu þeirrar skoðunar að klám sé gert fyrir karla þá telja karl­ ar að klámið sé líka gert fyrir kon­ ur, en ekki í jafn miklum mæli. Kon­ ur, hins vegar, eru frekar ósammála körlunum því hlutfallslega telja mun færri konur að klámið sé gert fyrir þær.“ Bæði kyn eru sammála um að klám gefi ranga mynd af kynlífi, 67 prósent karla og 76 prósent kvenna. Um helmingur kvenna í fram­ haldsskólum, sem hafa haft kynmök, hefur sent myndir af brjóstum sínum og/eða kynfærum til annarra en hlutfallið hjá körlum er 44 prósent. 17 prósent kvenna og 14 prósent karla sögðust hafa verið mynduð í kynmökum. n „Konur eru mun líklegri en karlar til að segja að klám sé ógeðslegt og að það leiði til nauðgana og vændis. Klámnotkun Konur eru líklegri en karlar til að skoða klám með maka. Hlutfallið er 15,5 prósent hjá konum en 6 prósent hjá körlum. Mynd 123rf.coM Baldur Guðmundsson baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.