Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Síða 28
Vikublað 15.–17. nóvember 201620 Lífsstíll
Einu eggin á neytendamarkaði
með löggilda vottun
Lífrænu hænurnar
hjá Nesbúeggjum
• Fá lífrænt fóður
• Fá mikið pláss
• Njóta útiveru
nesbu.is
NESBÚ
EGG
Annar hver sendir myndir
af kynfærum eða brjóstum
n Framhaldsskólanemar nota klám til sjálfsfróunar n Sammála um að það gefi ranga mynd af kynlífi
Í
slensk ungmenni byrja að
meðal tali að horfa á klám um 13
ára aldur. Drengir sjá klám fyrst
11,9 ára að jafnaði, en stúlkur
tveimur árum síðar, 13,8 ára.
Þetta kemur fram í nýrri íslenskri
rannsókn, Klámnotkun íslenskra
framhaldsskólanema, en höfundur
hennar er Guðbjörg Hildur Kol
beins, doktor í fjölmiðlafræði. 70
prósent karla skoða klám nokkrum
sinnum í viku eða oftar af fúsum og
frjálsum vilja, í samanburði við 12,5
prósent kvenna. Um það bil annar
hver framhaldsskólanemi hafði sent
mynd af brjóstum eða kynfærum
til annars aðila. Niðurstöðurnar
byggja á svörum 1.867 framhalds
skólanema við 28 skóla á landinu.
Mikill meirihluti þátttakenda hafði
séð klám, eða 98,8 prósent karla og
87,4 prósent kvenna.
Hvað er klám?
Talsverður munur reyndist á milli
kynja þegar spurt var hvað væri
klám. 28,7 prósent karla töldu
myndir af nöktum brjóstum vera
klám en aðeins 15,8 prósent kvenna.
Þá töldu 95 prósent kvenna að
myndir af nöktum kynfærum væri
klám en aðeins 54 prósent karla.
Karlar horfa meira á klám
Rannsóknin sýndi fram á mikinn
mun á klámnotkun kynjanna. Um
þriðjungur karla í framhaldsskólum
skoðar klám næstum því á hverjum
degi, eða oftar, en innan við fjögur
prósent kvenna. Fjórðungur kvenna
skoðar klám af fúsum og frjálsum
vilja nokkrum sinnum í mánuði og
annar fjórðungur nokkrum sinn
um á ári. 12,5 prósent kvenna skoða
klám nokkrum sinnum í viku eða
oftar, en um 70 prósent karla.
Sjö af hverjum tíu konum sem
skoða klám gera það í einrúmi en
hlutfallið er hærra hjá körlum, 87
prósent. Sex prósent kvenna og
15,5 prósent karla skoða klám með
maka.
Langflestir nota klám
til sjálfsfróunar
Þátttakendur svöruðu spurningum
um ástæðu þess að klám væri skoð
að af fúsum og frjálsum vilja. 57,2
prósent kvenna gera það til sjálfs
fróunar en 46,5 prósent af forvitni,
34 prósent til gamans og 15 prósent
til fræðslu. 8,2 prósent kvenna skoða
klám af fúsum og frjálsum vilja til
þess að hafa kynmök. 12,6 prósent
kvenna skoða klám aldrei af fúsum
og frjálsum vilja. Tölurnar líta öðru
vísi út á meðal karla. 83 prósent karla
nota klám til sjálfsfróunar en 43 pró
sent merktu við að þeir notuðu það
til gamans. 31 prósent skoðar það
af forvitni en 12 prósent til fræðslu.
Rúm fimm prósent karla skoða klám
til að hafa kynmök. Aðeins tvö pró
sent karla skoða klám aldrei af fús
um og frjálsum vilja.
Margir vildu sjá tvær
konur í kynmökum
Nokkur munur reyndist einnig á því
hvers kyns klám fólk horfir á. Flestir
karlar vildu sjá karl og konu í kynlífi,
65,4 prósent. Næst flestir vildu sjá
tvær konur í kynmökum, 48 prósent
en fast á hæla þess fylgdu munn
mök, eða 45 prósent. 34 prósent
vildu sjá þrjá einstaklinga í kyn
mökum, litlu fleiri en þeir sem vildu
sjá endaþarmsmök, 32,7 prósent.
Konur vildu helst sjá karl og
konu í kynmökum, eða 52 prósent.
Næst flestar vildu sjá tvær konur í
kynmökum, 32,3 prósent, en jafn
margar vildu sjá munnmök og þrjá
einstaklinga í kynmökum.
Athygli vekur að um það bil eitt
prósent svarenda af báðum kynj
um vildi sjá fólk í kynmökum með
börnum eða dýrum.
Helmingur hefur sent myndir
af brjóstum eða kynfærum
Viðhorf kvenna og karla til kláms
eru mjög ólík, að því er fram kemur
í rannsókninni. „Konur eru mun
líklegri en karlar til að segja að
klám sé ógeðslegt og að það leiði til
nauðgana og vændis. Tæpur þriðj
ungur kvenna segir samt að klám
sé skemmtilegt. Þótt bæði karlar
og konur séu þeirrar skoðunar að
klám sé gert fyrir karla þá telja karl
ar að klámið sé líka gert fyrir kon
ur, en ekki í jafn miklum mæli. Kon
ur, hins vegar, eru frekar ósammála
körlunum því hlutfallslega telja
mun færri konur að klámið sé gert
fyrir þær.“
Bæði kyn eru sammála um að
klám gefi ranga mynd af kynlífi, 67
prósent karla og 76 prósent kvenna.
Um helmingur kvenna í fram
haldsskólum, sem hafa haft
kynmök, hefur sent myndir af
brjóstum sínum og/eða kynfærum
til annarra en hlutfallið hjá körlum
er 44 prósent. 17 prósent kvenna og
14 prósent karla sögðust hafa verið
mynduð í kynmökum. n
„Konur eru mun
líklegri en karlar
til að segja að klám sé
ógeðslegt og að það leiði
til nauðgana og vændis.
Klámnotkun Konur eru líklegri
en karlar til að skoða klám með
maka. Hlutfallið er 15,5 prósent hjá
konum en 6 prósent hjá körlum.
Mynd 123rf.coM
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is